Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Síða 9
AFMÆLI
Frá frumbyggjasamkomunni
í Skjólgaröi 29. júní. Myndirnar
meö greininni tók Jónas Þór
Jóhannsson.
Umhverfisverkefni
Eitt af því sem Egilsstaðabær hefur lagt áherslu á eru
úrbætur í umhverfismálum og undanfarin tvö ár hefur
Sigurborg Hannesdóttir unnið að stefnumótun fyrir bæj-
arstjóm í umhverfismálum. Gerð hefur verið grein fyrir
þessu verkefni áður í Sveitarstjómarmálum. A hátíðar-
fundi bæjarstjómar 8. júlí sl. vom samþylckt markmið
Egilsstaðabæjar í umhverfismálum og eru þeim gerð
nánari skil annars staðar í blaðinu. Ljóst er að almenn-
ingur og stjómvöld em á síðustu ámm að vakna til vit-
undar um mikilvægi þess að við förum vel með um-
hverfið okkar og að nauðsynlegt er að allir séu þátttak-
endur. Þeir fundir sem haldnir hafa verið í tengslum við
verkefnið hafa sýnt að áhugi almennings er ótvíræður
fyrir því.
Afmælisáriö - hátíöardagskrá
Ýmislegt hefur verið gert til hátíðarbrigða á árinu
vegna afmælisins og var skýrt frá dagskrá hennar í 2.
tbl. Sveitarstjómarmála. Hinn 24. maí var þess minnst
að 50 ár voru frá því að Alþingi samþykkti lög um
stofnun Egilsstaðahrepps og 10 ár frá því að bærinn öðl-
aðist bæjarréttindi. A hátíðarsamkomu þennan dag var
Egilsstaðabók, „Frá býli til bæjar“, kynnt, en hún kom
út þennan dag. Keppni um afmælislag bæjarins var
haldin í apríl, en höfundur þess lags og texta sem valið
var er „Strandamaðurinn sterki", Hreinn Halldórsson, en
hann hefur verið búsettur hér á annan tug ára. Lagið
heitir „Bærinn okkar“.
Aðalhátíðarhöldin voru svo dagana 27.-29. júní, en
þau hófust með heimsókn forseta Islands og konu hans
sem tóku þátt í hátíðarhöldunum fram á sunnudags-
morgun. Tekið var á móti þeim við Lagarfljótsbrúna og
Lagarfljótsormurinn seiddur fram. Daginn eftir opnaði
forsetinn Lómatjamargarðinn, en hann er skrúðgarður í
miðjum bænum og hefur verið í byggingu sl. 10 ár. A
hátíðarsamkomu á íþróttavellinum þann sama dag undir-
rituðu landbúnaðarráðherra og bæjarstjóri afsal vegna
lands sem ríkið hafði keypt upphaflega undir þéttbýlið á
Egilsstöðum. Langþráður draumur hafði ræst, en undan-
farin ár hefur verið reynt að ná samningum við ríkið um
þessi kaup. A sunnudeginum 29. júní bar hæst dagskrá
sem innfæddir Egilsstaðabúar sáu um. Þar var ýmislegt
rifjað upp frá fyrstu ámm bæjarins, en sú dagskrá hófst
með því að bæjarbúar voru vaktir með hanagali um
morguninn.
Fjölbreytt dagskrá var alla helgina og of langt mál að
telja það upp hér. Bekkjarmót hafa verið haldin í sumar
og fjölmargir brottfluttir Egilsstaðabúar hafa heimsótt
bæinn í tilefni af afmælinu. Sérstaklega vom þeir áber-
andi afmælishelgina, en þá hittust sjö bekkjarárgangar.
A hátíðarfundi bæjarstjómar hinn 8. júlí sl„ sem áður
er getið, var Guðmundur Magnússon, fv. sveitarstjóri,
gerður að heiðursborgara, eins og annars staðar er skýrt
frá í þessu tölublaði, og nokkrir íbúar bæjarins heiðraðir
fyrir störf í þágu sveitarfélagsins.
1 99