Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Síða 23
RAÐSTEFNUR
sem hann greindi einstök byggðar-
lög í flokka eftir því hvort búseta sé
traust eða byggð í hættu. Gerði hann
þá grein fyrir samningum sem gerð-
ir hafa verið milli Byggðastofnunar
og rekstraraðila atvinnuráðgjafar í
einstökum landshlutum um sérstakt
átak í atvinnuþróunarmálum. I því
sambandi lagði hann áherslu á svo-
kallað héraðaforræði þar sem frum-
kvæði heimamanna væri virkjað til
framfara fyrir viðkomandi svæði.
Atvinnuþróun í dreifbýli
Skotlands
Dr. Kenneth MacTaggart hjá
Highlands and Islands Enterprise,
atvinnuþróunarfélagi í Skotlandi,
skýrði í afar athyglisverðum fyrir-
lestri frá starfsemi og áherslum fé-
lagsins og aðstæðum á starfssvæði
þess og bar það saman við Island. Á
svæðinu hafði fólki verið að fækka
frá því á síðustu öld en fyrir um
20-30 árum snerist þróunin við og
íbúunum hefði fjölgað aftur. At-
vinnulífið hefur verið að byggjast
upp og samsetning þess breyst sam-
hliða. Árstíðabundið atvinnuleysi er
talsvert. Iðnaðarframleiðsla er fjöl-
breytt, mikið er um smáfyrirtæki og
einyrkjavinnu. Áhersla er á ferða-
mennsku, m.a. eru kostaðar af félag-
inu úrbætur á gönguleiðum fyrir
ferðamenn til að gera hálendið að-
gengilegra. Hann nefndi að álveri
hefði nýlega verið lokað og því
breytt í yfirbyggða hlaupabraut og
innanhúss-æfingaaðstöðu fyrir
fjallaklifur. Fjarskiptatæknin hefur
verið notuð til að skapa störf á
svæðinu. Það hefur ekki gerst sjálf-
krafa heldur hefur mikið fé verið
lagt í uppbyggingu ljósleiðarakerfis
og verið hefur rnikil eftirfylgni og
aðstoð við að korna upp búnaði hjá
fyrirtækjum og einstaklingum til
fjarvinnslu ýmiss konar fyrir fjarlæg
svæði, s.s. London. Nú er verið að
undirbúa háskóla í Skosku Hálönd-
unum sem byggist á fjarkennslu og
því fjarskiptakerfi sem þegar hefur
verið byggt upp. I lok erindis síns
sagði MacTaggart að í sífellt eins-
leitari heimi gæti verið kostur að
Egill Jónsson kynnir islandskort sem sýnir hvort grundvöllur
er fyrir búsetu í framtiðinni í hinum einstöku byggöarlögum:
Grænu héruðin: „Grundvöllur búsetu traustur". Bleiku hér-
uöin: „Byggö í hættu".
vera lítill og öðru-
vísi og vísaði í því
sambandi til Islands
og Skotlands.
Breytt alþjóöa■
umhverfi - nýir
möguleikar
Fyrirlestrakafli
sem bar ofan-
greinda yfirskrift
var fyrstur á dag-
skránni 23. apríl.
Þar höfðu framsögu
Albert Jónsson,
deildarstjóri í for-
sætisráðuneytinu,
Hólmar Svansson,
innkaupastjóri hjá
Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna (SH)
á Akureyri, og
Guðrún Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri
markaðsráðs Borgamess.
Albert Jónsson rakti þróun al-
þjóðakerfisins og áhrif hennar á ís-
land, aukið vægi umhverfismála og
möguleika sem felast í þeim miklu
breytingum sem orðið hafa á síðast-
liðnum 10 árum, sérstaklega í Evr-
ópu. Meginniðurstaða Alberts var
sú að um flest væru alþjóðlegar að-
stæður Islendinga
hagstæðar en að
það væri undir okk-
ur komið að nýta
þau tækifæri sem
bjóðast.
Hólmar Svansson
fjallaði um þá
möguleika og þær
takmarkanir sem
eru samfara sam-
skiptum innan og
milli fyrirtækja með
aðstoð tölvu- og
fjarskiptatækninnar.
Hann notaði
reynslu Sölumið-
stöðvar hraðfrysti-
húsanna til hlið-
sjónar í fyrirlestrin-
um en SH hefur ný-
lega sett upp starfs-
stöð á Akureyri sem hefur náin
samskipti við móðurfyrirtækið í
Reykjavík, útibú erlendis og tengda
aðila víða urn heim. Forsenda þess-
ara flutninga um fjarskiptakerfið er
aðgangur að ljósleiðarasambandi.
Hann fjallaði uin skipulag í fjar-
skiptum og hefðbundnum samgöng-
um og loks um það sem hann taldi
Porsteinn Gunnarsson: Háskólinn á Akureyri leggur áherslu
á aö starfa meö atvinnulífinu á landsbyggöinni.
2 1 3