Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Side 48
DÓMSMÁL
VSÍ gegn Hafnarfjarðarbæ:
Deilt um réttarlega þýðingu yfirlýsingar
Guðmundur Benediktsson hdl., bœjarlögmaður í Hafnarfirði
Vinnuveitendasamband Islands stefndi Hafnarfjarðarbæ vegna yfirlýsingar sem fylgdi skuldabréfi.
Snerist málið um þýðingu yfirlýsingarinnar. Agreiningur var með aðilum málsins hvemig túlka bæri
þessa yfirýsingu og hvaða réttarverkanir hún hefði. Hvort um væri að ræða greiðsluávísun án bæjar-
ábyrgðar úr tilgreindum verksamningi til greiðslu á skuldabréfinu, sem Hafnarfjarðarbær skyldi annast
samkvæmt yfirlýsingunni, eins og bærinn hélt fram, eða hvort í þessari yfirlýsingu fælist einföld
ábyrgð bæjarins eða ígildi slíkrar ábyrgðar eins og VSÍ hélt fram í sinni aðalkröfu.
Málsatvik
Gefið var út skuldabréf til verktakafyrir-
tækis að fjárhæð kr. 8.000.000 til 4 ára. Fjár-
málastjóri Hafnarfjarðarbæjar aðstoðaði fyr-
irtækið við sölu á þessu skuldabréfi og var
yfirlýsing sú sem mál þetta snýst um samin
og undirrituð í því skyni að gera þetta
skuldabréf seljanlegt á verðbréfamarkaði.
Fjármálastjóri fyrirtækisins samdi yfirlýs-
inguna, sem hljóðaði svo:
„Vegna skuldabréfs útgefið 17.12. 1993
af Hymingarsteininum hf. kt. 460493-2269
að nv. kr. 8.000.000 til 4 ára.
Bæjarsjóður hefur skv. meðfylgjandi yfirlýsingu sam-
þykkt að greiðslur skv. verksamningi milli bæjarsjóðs
og Hagvirkis-Kletts frá 28.01. 1994 um hönnun og
byggingu dælu- og hreinsistöðva í Hafnarfirði muni
renna til að greiða niður umrætt bréf.
Verði vanskil á ofangreindu bréfi í framhaldi af þessu
mun bæjarsjóður Hafnarfjarðar sjá til þess að bréf þetta
verði greitt upp á gengi (ávöxtunarkröfu) og þá jafn-
framt hafa rétt að nýta sér bréfið sjálfur á móti áður-
nefndum verksamningi.
Hagvirki-Klettur hf. samþykkir ofangreinda ráðstöfun
á greiðslum úr umræddum verksamningi milli bæjar-
sjóðs Hfj. og Hagvirkis-Kletts hf. dags. 28/1 1994.
Hafnarfirði 1012 1994
f.h. Hagvirkis-Kletts hf.
Sigrún Traustadóttir (sign)
f.li. Hafnaifjarðarbœjar
Þorsteinn Steinsson (sign)
f.h. Handsals hf.
Pdlmi Sigmarsson (sign)"
Þessi yfirlýsing var hvorki lögð fram í bæjarráði né
bæjarstjóm Hafnarfjarðar. Verksamningurinn sem vitn-
að er til i yfirlýsingunni gekk ekki eftir af á-
stæðum sem varða Hafnarfjarðarbæ.
Nióurstaóa héraösdóms
Héraðsdómur var fjölskipaður og klofnaði
rétturinn í niðurstöu sinni. Meirihluti dóms-
ins dæmdi bænum að greiða VSÍ skulda-
bréfið með þeim rökum að hið sértæka
ákvæði í 3. mgr. yfirlýsingarinnar verði, í
ljósi þeirra atvika sem fyrir liggja í máli
þessu, að túlka svo, að það feli í sér það
samkomulag, að Hafnarfjarðarbæ væri ekki
í sjálfsvald sett að fella niður greiðsluskyldu sína sam-
kvæmt yfirlýsingunni með viðtökudrætti á framkvæmd-
um samkvæmt verksamningnum. Þá segir að ef greiðslur
til verktakans hefðu fallið niður vegna atvika sem verk-
takinn bar ábyrgð á, hefði ekki verið um frekari greiðslu-
skyldu Hafnarfjarðarbæjar að ræða. Astæða þess að ekki
varð úr framkvæmd verksamningsins var viljaleysi verk-
kaupans, bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Þá segir að engir
fyrirvarar haft verið gerðir í verksamningnum eða yfir-
lýsingunni, þannig að ætla mætti að nokkur skynsamleg-
ur vafi gæti verið á því, að bærinn stæði við verksamn-
inginn fyrir sitt leyti og að skuldabréfið mundi greiðast
með greiðslum úr honum.
Minnihluti dómsins taldi hins vegar að VSÍ geti ekki,
eins og hér stendur á, reist greiðsluskyldu Haffiarfjarðar-
bæjar á vanefndum bæjarins innan samninga gagnvart
þriðja manni, þ.e. á vanefndum bæjarins gagnvart Hag-
virki-Kletti hf. á verksamningi, og þar sem hvorki bóta-
grundvöllur né bæjarábyrgð hafi verið fyrir hendi beri að
sýkna Hafnarfjarðarbæ af öllum dómkröfum VSÍ í mál-
inu.
Niöurstaöa Hæstaréttar
Bæjarráð gat ekki unað við niðurstöðu meirihluta hér-
aðsdóms og áfrýjaði málinu því til Hæstaréttar íslands.
238