Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Qupperneq 65
HEIÐURSBORGARAR
Árni Helgason heiðursborgari
Stykkishólmsbæjar
Árni Helgason veitir
viötöku heiöursborg-
araskjali úr hendi
Ólats Hilmars Sverris-
sonar, bæjarstjóra
Stykkishólmsbæjar
26. júní. Ljósm.
Flemming Nilssen.
Sambýliskona Helga er Elín Þór-
dís Heiðarsdóttir og eiga þau tvö
börn. Helgi á einnig tvö börn frá
fyrra hjónabandi.
Hallur Magnússon, framkvæmda-
stjóri heilbrigðis- og félagsmála-
sviðs Hornafjarðar, var ráðinn til
Homafjarðarbæjar sem félagsmála-
stjóri og yfirmaður skólamála á ár-
inu 1995.
Hallur var kynntur í 2. tölublaði
Sveitarstjómarmála 1996.
Viðar Helgason bæjar-
stjóri Vesturbyggðar
Viðar Helga-
son stjórnsýslu-
og rekstrarfræð-
ingur hefur verið
ráðinn bæjar-
stjóri Vestur-
byggðar frá 1.
júlí.
Viðar er fæddur í Reykjavík 2.
nóvember 1966, sonur Bergþóru
Andrésdóttur, húsmóður úr Norður-
firði, sem er látin, og Helga Símon-
arsonar, fyrrverandi stýrimanns úr
Hellisfirði.
Viðar lauk stúdentsprófi af við-
skiptabraut frá Fjölbrautaskólanum
við Ármúla 1988 og rekstrarfræða-
prófi frá Samvinnuháskólanum á
Bifröst 1990. Skólaárið 1995-1996
stundaði hann MBA-nám í opin-
berri stjórnsýslu með áherslu á
stjómun heilbrigðisstofnana og fjár-
málastjómun.
Viðar starfaði á Ríkisspítölum frá
árinu 1991 til ársloka 1996 í endur-
skoðunardeild og sem aðalbókari og
deildarstjóri í fjármáladeild. Frá 1.
janúar 1997 hefur hann gegnt starfi
framkvæmdastjóra sjúkrahússins á
Patreksfirði.
Viðar er kvæntur Sigríði Hjartar-
dóttur rekstrarfræðingi og eiga þau
þrjú böm.
Hinn 26. júní kaus bæjarstjórn
Stykkishólmsbæjar Árna Helgason
heiðursborgara bæjarins.
Árni Helgason er fæddur í
Reykjavík 14. mars 1914. Hann
fluttist á fyrsta ári til Eskifjarðar og
dvaldist þar sín uppvaxtarár. Tæp-
lega þrítugur að aldri flutti hann til
Stykkishólms og hefur búið þar síð-
an. Að aðalstarfi var Árni sýslu-
skrifari og lengst af póstmeistari.
Hann sat í stjóm ýmissa fyrirtækja
og stofnana og gegndi nefndarstörf-
um bæði fyrir bæjarfélagið og hér-
aðið.
Um áratugaskeið var Ámi frétta-
ritari fyrir Ríkisútvarpið og fréttarit-
ari Morgunblaðsins í meira en hálfa
öld. Með skrifum sínum og fréttum
kom Ámi reglulega upplýsingum á
framfæri um hvað var að gerast í
Stykkishólmi og hafa margir hlust-
að á og lesið fréttir hans, bæði þeir
sem tengjast Stykkishólmi og aðrir.
,,í störfum Árna sem fréttaritara
nýttust eiginleikar hans, bjartsýni og
jákvætt lífsviðhorf einstaklega vel,“
sagði Ólafur Hilmar Sverrisson,
bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, er
hann tilkynnti heiðursborgarakjörið.
Ennfremur sagði Ólafur Hilmar:
„Ámi Helgason er mikill félags-
málamaður og hann hefur komið að
hinum ýmsu félögum hér í Stykkis-
hólmi, ekki síst æskulýðsfélögum.
Má þar meðal annarra nefna Lúðra-
sveit Stykkishólms og starfsemi
stúkunnar hér í Hólminum sem hvílt
hefur á hans herðum en Ámi hefur
alla tíð verið virkur innan bindindis-
hreyfingarinnar og unnið ötullega
að málefnum þeirrar hreyfingar og
barist gegn því böli sem áfengi og
aðrir vímugjafar geta valdið.“
Er Ámi hafði veitt heiðursborg-
araskjalinu viðtöku risu viðstaddir
úr sætum og hylltu hinn nýja heið-
ursborgara með þreföldu húrra-
hrópi.
Ámi Helgason er sjötti heiðurs-
borgari Stykkishólms. Jóhann
Rafnsson ljósmyndasafnari var kjör-
inn heiðursborgari árið 1980, en
áður höfðu hlotið slíka viðurkenn-
ingu þeir Rögnvaldur Lárusson
skipasmíðameistari, Sigurður
Magnússon hreppstjóri, Kristján
Bjartmars oddviti og Sigurður
Ágústsson alþingismaður.
255