Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Side 35
BRUNAVARNIR
Niðurstaöa útboös
A grundvelli þessarar undirbún-
ingsvinnu, sem hófst með skipan
starfshópsins, auglýsti Innkaupa-
stofnun Reykjavíkurborgar f.h.
Eignarhaldsfélagsins Brunabótafé-
lags íslands og Sambands íslenskra
sveitarfélaga útboð á sjö slökkvibif-
reiðum og slökkvikerrum.
Utboðið þurfti einnig að auglýsa á
Evrópska efnahagssvæðinu og vom
tilboð opnuð 29. júní sl.
Sérstök matsnefnd, skipuð af
Sambandi íslenskra sveitarfélaga og
EBI, fór yfír og lagði mat á tilboðin
skv. ákveðnum valforsendum í út-
boðsgögnunum. I nefndinni vom:
Guðmundur Bjamason, EBI, Birgir
Blöndal, Sambandi íslenskra sveit-
arfélaga, Bergsteinn Gizurason,
Bmnamálastofnun ríkisins, Marinó
Þorsteinsson, Innkaupastofnun rík-
isins og Birgir Finnsson aðstoðar-
slökkviliðsstjóri, Akureyri, fulltrúi
faghóps.
Markmiðið með þessu vinnulagi,
þ.e. að skipa hlutlausa ráðgefandi
nefhd, var að hlutlaust mat og sam-
eiginlegar upplýsingar væru fyrir
hendi fyrir sveitarfélögin, sem síðan
tækju hina formlegu ákvörðun um
kaup.
Eftir yftrferð matsnefndarinnar
liggur fyrir niðurstaða hennar. Alit
nefhdarinnar var að lægsta tilboðið
sem uppfylli útboðsskilmála í svo-
kallaðan A-bíl væri ffá Ólaft Gísla-
syni & Co hf. - Eldvamamiðstöð-
inni, tilboðsverð kr. 10.974.930 án
vsk.
Matsnefhdin komst hins vegar að
þeirri niðurstöðu að taka engu til-
boði í B-bíl en beindi jafnframt
þeim tilmælum til sveitarfélaga er
hyggja á kaup á B-bíl að beina við-
skiptum sínum til einhvers eftirtal-
inna lægstbjóðenda, enda liggja fyr-
ir staðfest verð og útfærslur á bílun-
um. Tilboðsverð í B-bílana án vsk.
em eftirfarandi:
Almenna vönjsalan. MT bilar: kr. 7.846.461
IB Innflutningsmiðlun ehf.: kr. 8.701.869
Ólafur Gíslason & Co. hf.
- Eldvamamiðstöðin kr. 9.460.138
Nýr slökkvibíll sem slökkvilið Akureyrar fékk afhentan I októbermánuði sl. Við bílinn standa
Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri og Viðar Þorleifsson varðstjóri.
Brunavarnir Árnessýslu hafa nýlega fengið einn fullkomnasta slökkvibíl landsins. Bíllinn var
keyptur fyrir milligöngu Eldvarnamiðstöðvarinnar hf. í Reykjavík en yfirbyggingin er frá Noregi.
Norska fyrirtækið heitir Rosenbauer, en það er austurrískt að grunni, undirvagninn er af gerð-
inni Mercedes Benz 16/34 frá Ræsi hf. í Reykjavik. í slökkvibílnum er 340 hestafla vél, eða
rúmlega 22 hestöfl á hvert tonn miðað við hleöslu, drif er 4 X 4, allt splittað, bíllinn er með
ABS-hemlakerfi, 3800 lítra vatnstanki og 200 lítra froðutanki. Heildarþyngd bílsins getur veriö
16 tonn. Slökkvidæla er af gerðinni Rosenbauer NH30, 3000 I og er aftast í yfirbyggingu, knú-
in frá aflúttaki bifreiöar. Afköst hennar eru 2800 I við 10 bar og 200 I við 40 bar. Slönguhjól er
með 90 m slöngu og staðsett ofan við dælu og með 2 x 45 m framlengingu. Vinnuljós eru á
hliðum og aftan á yfirbyggingu. Þá fylgir Ijósamastur, tengt rafstöð sem er í bílnum. Laus
búnaður í bílnum er 5,5 kW rafstöð, yfirþrýstingsblásari, sem blæs 30 þús. m’ á mínútu og
reykblásari, sem blæs 4,8 þús. m’ á mínútu. Þá fylgir einnig búnaður til að klippa bila eftir um-
ferðaróhapp og reykköfunarbúnaður, milli 600 og 700 metrar af slöngum, 16 rása talstöð og
sími, fullkominn stigi og annað ótalið.
Þau sveitarfélög sem tóku þátt í
útboðinu á A-bílnum hafa nú þegar
fest kaup á slökkvibifreiðum og bil-
arnir verða afhentir á þessu ári.
Mikil umræða hefur nú hafist í kjöl-
far útboðsins á nauðsyn endumýj-
unar slökkvibúnaðar.
Það er von EBÍ og Sambands is-
lenskra sveitarfélaga að þetta sé ein-
ungis lyrsta skrefið í endumýjun á
slökkvibílaflota sveitarfélaganna.
Því það er sjálfsögð krafa að íbúar
sveitarfélaganna búi við öryggi í
brunavömum og slökkviliðin í land-
inu séu búin góðum og öruggum
tækjabúnaði við sín hættulegu störf.
97