Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Blaðsíða 46
FÉLAGSMÁL
sem best uppfylltar. Þetta er í megindráttum sú leið sem
farin hefur verið í vestrænum þjóðfélögum til að ákveða
kerfi og form félagslegrar þjónustu sem hið opinbera
veitir þegnum sínum. Sjálft hugtakið „félagsþjónusta“,
sem til umræðu er á þessari ráðstefnu, táknar kerfið sem
opinberir aðilar hafa sett á laggimar til að sinna þörfum
þeirra sem geta ekki af eigin rammleik aflað þeirra gæða
sem þeir þurfa til að lifa. Líkt og í fyrri hefðinni sem ég
hef lýst blasir við að þeir sem þjónustunnar njóta eru
þiggjendur þeirra gæða sem hið opinbera eða sérfræð-
ingar á vegum þess ákveða að veita þeim.
Þær tvær áhrifamiklu heimspekihefðir, sem ég hef
gert örstutta grein fyrir, veita ólíka sýn á hugsanlega
framtíð félagsþjónustunnar. I annarri er gengið að því
vísu að í framtíðinni verði þjónustan ákvörðuð í ljósi
„huglægra einkahagsmuna“ okkar sem frjálsra einstakl-
inga sem hugsa fyrst og fremst um eigin hag. I hinni á
félagsþjónustan að að taka mið af „hlutlægum heildar-
hagsmunum" þjóðfélagsins með æ nákvæmari og fræði-
legri greiningu á þörfum og aðstæðum hinna ýmsu fé-
lagshópa sem líða nauð vegna vangetu sinnar til að
standa á eigin fótum.
í mínum huga dugar hvorug þessara hefða til að veita
okkur þá framtíðarsýn sem við þörfnumst til að skapa
þau skilyrði sem nauðsynleg eru fyrir komandi kynslóð-
ir til að takast á við og leysa þann vanda sem sprettur af
því að við búum og lifum saman og þurfum sífellt hvert
á öðru að halda i lífsbaráttunni.
Ég vil því að lokum reyna að gera ykkur grein fyrir
þeirri heimspekilegu sýn á sjálf okkur sem ég tel að
framtíð félagsþjónustunnar byggist á. Hver erum við? Ég
efast um að sú sýn sem við höfum á okkur sjálf í ljósi
hefðanna tveggja, sem ég hef lýst fyrir ykkur, sé í sam-
ræmi við veruleikann. „Ég“ er ekki „frjáls og sjálfstæður
einstaklingur“ sem ákveð í ljósi eiginhagsmuna minna
hvað ég vil leggja til þeirra sem em minnimáttar í samfé-
laginu. „Ég“ er ekki heldur meðlimur í félagslegri heild
sem getur leyft sér að ákveða hvers „ég“ þarfnast til að
lifa. Og sama gildir um „þig“, manneskjuna sem „ég“
ávarpa og tala til. „Þú“ ert hvorki stak í mengi einhverrar
heildar né fyllilega „frjáls og sjálfstæður einstaklingur".
Hver ertu? Og hvar ertu? Hver er staða þín í tilverunni?
Ertu kannski ósýnileg?
Mér kemur í hug ljóð eftir Stefán Hörð Grímsson sem
ber hið undarlega nafn „Eter“:
Þú sem ert ekki hér, hvers vegna skyldi mér vera
ljóst að þú ert hér ekki? Ég slæ þessari spum-
ingu fram af því mér fmnst skrýtið að ég,
sem tek mjög illa eftir því sem hér er, skuli
veita því athygli sem er hér ekki. Mig langar til
þess að vita hvar þú ert, hvemig þér líður, hvort
þú ert að brosa eða ekki, hvort þú ert vakandi
eða hvort þú ert sofandi og hvemig þú ert ef
afdu ekki áhyggjur!
Oryggissiminn vaktar húsið þitt
- allan sólarhringinn
rglæsilegur heimilissími
- einstakur öryggisvörður
Helstu kostir öryggiskerfisins
■ Reykskynjari.
■ Innbrotavörn. Hreyfi- og segulskynjarar nema hreyfingu
inni og fikt við hurðir og glugga.
■ Innbyggð vörn gegn því aö reynt sé að aftengja
skynjara, síma og rafmagn.
■ Lætur vita um bilun í rafmagni og síma.
■ Neyöarhnappur
- ómetanlegt öryggistæki fyrir aldraöa og sjúklinga
■ Tengimöguleiki fyrir ótal práðlausa skynjara til viöbótar.
■ Einföld uppsetning, engir præðir.
Hvernig virkar öryggiskerfið?
Þú getur stillt kerfið inn á 9 mismunandi símanúmer
úti í bæ sem hringja og láta vita ef það fer í gang.
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 • SlMI 569 1500
umboðsmenn um land allt
l 08