Sveitarstjórnarmál - 01.06.2000, Page 55
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
Björg Ágústsdóttir formaður og Guðjón Ingvi Stefánsson, framkvæmdastjóri
SSV, á aðalfundinum.
til hliðsjónar við framtíðarsteíhumótun. Af
þeim leiðum, sem þar er bent á, er mælt
með að leiðir 3 og 4 verði teknar til sér-
stakrar skoðunar. Þar er gert ráð íyrir tals-
verðum breytingum á starfsemi SSV. Aðal-
fundurinn leggur í samræmi við áðumefnd-
ar leiðir áherslu á áframhaldandi tilvist
samtakanna sem mikilvægs samráðsvett-
vangs og hagsmunagæsluaðila íyrir svæðið
í heild. Ýmsum verkefnum þurfi að finna
nýjan farveg og samstarfsfletir sveitarfé-
laga miðist fyrst og ffemst við þarfir þeirra
og hagsmuni.
Sem dæmi um verkefni SSV i framtíð-
inni má nefna:
• Halda fundi með sveitarstjómarmönnum
á Vesturlandi til að ijalla um sameigin-
leg málefni.
• Vinna að stefhumótun sveitarstjóma fyr-
ir Vesturland til að fjalla um sameigin-
leg málefni.
• Taka virkan þátt í mótun löggjafar og reglugerða sem
snerta sveitarfélög.
• Efla samstarf við atvinnulífið, félagasamtök og ríkis-
valdið um sameiginleg viðfangsefni og hagsmuna-
mál.
• Stofna til samstarfs um rekstur í einstökum mála-
flokkum.
Nýkjörin stjóm SSV vinni að nánari útfærslu ofan-
greinds og boði til fulltrúaráðsfundar eigi siðar en 10.
mars árið 2000 til ákvarðanatöku um þessi mál.
Erindi samgönguráöherra
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra flutti erindi um
þá málaflokka sem heyra undir ráðuneyti hans og þau
verkefni sem þar em efst á baugi. I upphafi rakti hann
með nokkmm orðum árangur SSV í þágu byggðanna á
Vesturlandi og þátt framkvæmdastjórans í því starfi en
Sturla hefur verið þátttakandi eða áhorfandi að því sem
á vettvangi SSV hefur verið unnið í 30 ára sögu samtak-
anna. Síðan fjallaði ráðherra ítarlega um ferðamál, vega-
mál, hafnamál, fjarskipti o.fl. og þau mörgu verkefni
sem unnið er að á þessum sviðum. Að loknu erindinu
vom umræður og siðan svömðu Hermann Guðjónsson
siglingamálastjóri, Magnús Oddsson ferðamálastjóri,
Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri og Sturla Böðvars-
son samgönguráðherra fjölmörgum fyrirspumum fund-
armanna.
SSV 30 ára
Að lokinni móttöku og dagskrá í Snorrastofu var há-
tíðarkvöldverður í tilefni 30 ára afmælis samtakanna.
Dreift var annál SSV þar sem skráðir em helstu við-
burðir á Vesturlandi, dagskrá aðalfunda og helstu verk-
efhi ásamt lista yfir alla stjómarmenn SSV i 30 ár. Flest-
ir af fyrrverandi formönnum komu og kynnti fram-
kvæmdastjóri þá og helstu verkefhi sem unnið var að á
starfstíma þeirra. Avörp og ámaðaróskir fluttu formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga, alþingismenn Vestur-
lands og margir aðrir hátíðargestir.
Ályktanir fundarins
Á fundinum störfuðu sex nefndir og vom nefndarálit
afgreidd á laugardegi 13. nóvember.
Mörg sameiginleg verkefni í höfn
Hér fara á eftir ályktanir fundarins:
Aðalfundur SSV fagnar því að mikið hefur áunnist við
að hrinda i framkvæmd ályktunum síðasta aðalfúndar. í
ár vom Símenntunarmiðstöðin, Upplýsinga- og kynning-
armiðstöð Vesturlands (UKV) og Vesturlandsvefurinn
formlega stofhuð og stofnun eignarhaldsfélags með þátt-
töku Byggðastofnunar er á næsta leiti.
Fundurinn fagnar því sérstaklega að komið er að opn-
un sameiginlegs sorpurðunarstaðar í Fíflholtum og beinir
því til sveitarfélaga að þau móti sér sameiginlega stefnu í
umhverfismálum.
Félagslegar íbúðir
Aðalfúndur SSV hvetur til þess að áfram verði leitað
leiða til þess að leysa vanda sveitarfélaganna vegna inn-
lausnar félagslegra íbúða, þannig að viðunandi niður-
staða fáist í kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfé-
laga á afskriftum í félagslega íbúðakerfmu.
Mótmælt lækkun á ríkisframlagi til fráveitumála
Aðalfúndur SSV mótmælir þeirri lækkun sem birtist i
framlögðu fjárlagafmmvarpi á framlagi ríkissjóðs til að
styrkja framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum. í
1 1 7