Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Síða 9

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Síða 9
Afmæli koma á fót félagi íslenzkra sveitarstjórnarmanna, sem þá að sjálfsögðu tæki við útgáfu ritsins og setti því ritstjórn, en sú er venjan um svipuð rit annars staðar, þar sem ég hef spurnir af.“ Jónas Guðmundsson gaf Sveitarstjórnarmál út fyrir eigin reikning fram i júlímánuð árið 1947. Þá náðust samningar um að Samband íslenskra sveitarfélaga tæki að sér útgáfuna að öllu leyti, en jafnframt hét félagsmálaráðherra ríflegum útgáfustyrk næstu fimm ár. Stefán Jóh. Stefánsson var félagsmálaráðherra sumarið 1947. Sambandið hefur gefið tímaritið út síðan en var á árunum 1956-1965 í samstarfi við Tryggingastofnun ríkisins um útgáfuna. Samstarf þetta var með þeim hætti að Tryggingastofnun keypti um 300 eintök af Sveitarstjórnarmálum fyrir ákveðið verð og lagði til efni að hálfu á móti sambandinu. Nokkru eftir þetta eða á árinu 1968 var siðan gert samkomulag við Brunabótafélag íslands um að Brunabóta- félagið keypti um 100 eintök af Sveitarstjórnar- málum gegn því að fá þar birtar greinar ef á þyrfti að halda. Samningur þessi var við lýði til ársins 1997. Fyrstu árin var nokkuð á reiki hve mörg hefti komu út ár hvert. Þau voru til dæmis aðeins tvö árið 1947 og þrjú næsta ár. Fjögur hefti voru gefin út 1949-1955 ár hvert og síðan sex hefti á ári 1956-1962. Fjögur hefti af Sveitarstjómarmálum komu út árið 1963 en síðan voru heftin sex á ári Framhlið fyrsta tölublaðs Sveitarstjórnarmála. fram um 1995 en þá var þeim fækkað í íjögur til fimm og hefur þetta haldist. Alloft bar við á árunum 1942-1960 að einstök hefti væru talin tvöfold og það þó að þau væru ekki þykkari en almennt gerðist. Slíkt hefur ekki átt sér stað eftir 1960. Lesmálssíðuljöldi jókst meira en fjölgun hefta á ári gefur til kynna. Lesmálssíður voru til dæmis 68 árið 1947 en 284 árið 1972. Síðan hefur hver árgangur verið á þriðja hundrað lesmálssíður og jafnvel yfir þrjú hundruð. Jónas Guðmundsson var ritstjóri og ábyrgðar- maður Sveitarstjórnarmála 1941-1946 og ábyrgð- armaður 1947, 1953-1955, 1957-1966. Eiríkur Pálsson var ritstjóri og ábyrgðarmaður 1949-1952 og Þorvaldur Árnason 1956-1957. Upp frá því hefur formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga jafnframt verið ábyrgðarmaður Sveitarstjórnar- mála, fyrst Jónas Guðmundsson og síðan þeir Páll Líndal 1967-1978, Jón G. Tómasson 1978-1982, Björn Friðfinnsson 1982-1987, Sigurgeir Sigurðs- son 1987-1990 (starfandi formaður) og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson frá og með 1990. Unnar Stefáns- son varráðinn ritstjóri Sveitarstjórnarmála 1968 og hefur gegnt því starfi síðan. Hann hóf raunar störf við timaritið árið 1961 og var ritstjórnarfulltrúi þess á árunum 1965-1967. Unnar á því fjörutíu ára starfsafmæli við Sveitarstjórnarmál á þessu ári. Heiti tímaritsins er réttnefni, allt efni þess undanfarna sex áratugi tengist sveitarstjórnarmál- Sveitar stjórnax* xxiál Frá og með 1. tölublaði 1963 verður breyting á útliti og umbroti tímaritsins. Þá er á efri helmingi framhliðarinnar birt mynd þvert yfir síðuna. Heiti tímaritsins situr á neðri helmingi, ágrip af efni tölublaðsins þar fyrir neðan og númer tölublaðs lengst til hægri.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.