Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Síða 10
13ó
Afmæli
Sveitar
stjórnar
múl
Frá ársbyrjun 1968 verður sú breyting á að heiti tímaritsins er
komið efst á siðuna til vinstri, merki sambandsins efst til hægri
og myndin nær yfir neðri hluta síðunnar. Gísli B. Björnsson
hannaði kápurnar á tímaritið frá 1963 til ársloka 1983.
um með einum eða öðrum hætti. Skiptir þá ekki
máli hvort um er að ræða kynningu á einstökum
sveitarfélögum og viðfangsefnum þeirra eða viðtöl
við sveitarstjórnarmenn. Raunar flýtur stundum
efni af öðru tagi með í greinum af þessu tagi og í
viðtölum og skal það síst lastað, stundum er þar
fróðleik bjargað frá glötun og ekki síst viðhorfum
viðmælenda til ágreiningsmála. Lög og reglugerðir
voru áberandi hluti efnisins á meðan Jónas
Guðmundsson hélt um stjómvöl tímaritsins.
Hann hefur vafalaust ekki farið í grafgötur um að
sveitarstjórnarmenn almennt keyptu ekki Stjórnar-
tíðindi og því talið tímaritið bæta úr brýnni þörf
með því að birta slíkt efni. Síðustu áratugi hefur
verið látið nægja að birta skrá yfir það í Sveitar-
stjórnarmálum. Málaflokkar á borð við fjármál
sveitarfélaga, verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga,
skóla- og menningarmál, löggæslu, málefni
aldraðra og sameiningu sveitarfélaga hafa oft verið
til umfjöllunar í tímaritinu, einnig gatna- og
vegagerð, vatns- og hitaveitur og sorphreinsun.
Nýir málaflokkar hafa komið fram á sjónarsviðið
og það áður en sett voru lög um þá, til dæmis
náttúruvernd, staðgreiðsla skatta, umhverfismál
og virðisaukaskattur. I Sveitarstjórnarmálum er
yfirleitt gefið greinargott yfirlit yfir ráðstefnur á
vegum sambandsins en þær skipta orðið tugum og
hafa fjallað um hið fjölbreytilegasta efni. Tímaritið
Frá ársbyrjun 1984 færist heiti tímaritsins á hægri brún, merkið
situr neðst til vinstri og númer tölublaðsins lengst til hægri.
Myndin er komin í glugga. Kristján Svansson hannaði þá kápu
og hefur hún verið óbreytt til þessa.
kynnir sveitarstjórnarmenn og birtir frásagnir af
ársfundum og landsþingum sambandsins og aðal-
fundum landshlutasamtaka ásamt samþykktum
þessara samkoma. Þar er ýmsan fróðleik að finna.
Höfundur þessarar greinar var og þakklátur fyrir
hann þegar ritun Sögu sveitarstjórnar á íslandi stóð
yfir. Hann telur einsýnt að hið sama verði uppi á
teningnum ef framhald þeirrar sögu verður
einhvern tíma ritað.
Ekki er unnt að fjalla svo um Sveitarstjórnarmál
að geta fylgirits tímaritsins að engu, Handbókar
sveitarstjórna. Kominn er út á þriðja tug hefta af
Handbókinni. Efni Handbókarinnar er sérhæft,
sveitarstjórnarlög, kosningalög, skipulagslög og
skýrslur nefnda á vegum sambandsins, til dæmis
skýrslur Sameiningarnefndar sveitarfélaga.
Sveitarstjórnarmannatal er gefið út í ritröð þessari
að loknum sveitarstjórnarkosningum hverju sinni.
Fyrsta talið var gefið út árið 1958. Fyrsta Hand-
bókin var annars gefin út árið 1963 og geymir hún
upplýsingar um lög, skipulagsmál og ráðstefnu-
niðurstöður og fleira efni af því tagi.
Sveitarstjórnarmannatalið hefur komið mörgum að
notum og við ýmis tækifæri.