Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Síða 14
Samtal
Unnar Stefánsson ræðir við Eirík Pálsson níræðan. Myndirnar með samtalinu tók Gunnar G. Vigfússon.
honum að mér þætti greinin of stutt og bað hann
að lengja hana. Hann gerði það og úr því varð til
bókin Saga Húsavíkur. Hana tel ég mér til tekna.
Og fyrst ég er kominn inn á þessa braut get ég
alveg eins sagt þér frá því að ég tel mig eiga
talsvert í utanþingsstjórn Björns Þórðarsonar á
sínum tíma. Þannig var mál með vexti að ég var
í stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur sem þá stóð að
árlegum fullveldisfagnaði 1. desember. Nú stóð
lýðveldisstofnun fyrir dyrum og því þurfti að
vanda vel val á ræðumanni. Það kom í minn hlut
að leita uppi góðan ræðumann á þessum örlagaríka
tíma. Ég talaði við Björn Þórðarson og fyrir mínar
fortölur féllst hann á að flytja ræðuna 1. desember
1942. Sveini Björnssyni, þáverandi ríkisstjóra, féll
ræðan vel í geð, var víst sammála efni hennar og
hefur ef til vill af þeim sökum fengið Björn til að
mynda utanþingsstjórnina sem tók við völdum
16. desember 1942. Ég tel ntig eiga talsvert í henni
og bera nokkra ábyrgð á henni.“
- Starfaðir þú hjá Alþingi áður en þá koutst að
sveitarstjórnarmálum?
„Já, ég fékk starf á skrifstofu Alþingis 1941.
Meðal verkefna sem ég tók að mér í tengslum við
það starf var að vera framkvæmdastjóri Sögu-
sýningarinnar sem haldin var í húsi Menntaskólans
í Reykjavík 1944. Fékk ég leyfi frá störfum á
Alþingi um þriggja mánaða skeið, vann að undir-
búningi sýningarinnar og daglegum rekstri eftir
opnun hennar 18. júní. I tengslum við lýðveldis-
stofnunina og vinnuna að sýningunni varð mér
hugleikið það hlutverk sem við í ungmenna-
félaginu í Svarfaðardal höfðum ung tileinkað
okkur að vinna ættjörðinni allt. Það sumar rnálaði
Gunnlaugur Blöndal myndina af Þjóðfundinum
1851, Við mótmælum allir, sem prýðir veggi
Alþingishússins. Ég hóf störf á Alþingi aftur um
haustið. Um áramótin 1944 og 1945 losnaði bæjar-
stjórastarfið í Hafnarfirði. Ég bjó við húsnæðis-
skort í Reykjavík, sótti um starfið, var kosinn
bæjarstjóri og tók við því starfi 1. mars 1945.