Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Page 16

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Page 16
Þjóðlegur fróðleikur Páll Lýðsson, Jv. oddviti Sandvíkurhrepps: Sameining og slit Grafhings og Þingvallasveitar á 19. öld Grafningshreppur í Árnessýslu er líklegast það sveitarfélag á Islandi sem oftast hefur sameinast öðrum sveitarfélögum - eða slitið sig frá þeim. I manntalinu 1703 eru Grafningsmenn taldir með íbúum Ölfushrepps. Svo er einnig þegar skrifuð er Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns í Ölfussveit í Árnessýslu í ágúst og septembermánuðum 1706. Skrásetning Ölfússveitar hefst með Grafningi, sem er þó í sér kafla: „Ellefu lög-býli hin fýrstu"1’ en að lokinni lýsingu þeirra segir: „Hér endast Grafningur, en byrjar sjálft Ölves.“2) Þingstaður í Ölfusi var þá að Bakkárholti. Þangað áttu Grafningsmenn að sækja manntalsþing sitt (sýslumannaþing). I öllum finnanlegum mann- talsbókum á 18. öld eru Grafningsbændur á Bakk- árholtsþingi. Má vera að skynsamlegur sé fyrirvari Lýðs Björnsssonar sagnfræðings í Sögu sveitar- stjórnar á Islandi um Þingvallasveit og Grafnings- hrepp: „Byggðalög þessi kunna og að hafa verið sérstök framfærsluumdæmi innan hinna fornu Ölfus- og Grímsneshreppa."31 Árið 1787 er Grafningshreppur örugglega orðinn „hreppur meðal hreppa“. Það sannar skrá Steindórs Finnssonar sýslumanns frá 20. febrúar 1787 um búljárfelli í Árnessýslu af völdum Skaftáreldanna.41 Páll Lýðsson sagnfrœðingur var oddviti Sandvikurhrepps á árunum 1970-1998, sat í sýslunefnd Árnessýslu 1974-1988 og í héraðsnefhd í tíu ár. Hann var hrepp- stjóri Sandvíkurhrepps 1982-1996. Páll varfrórði oddvitinn I óslitinn karllegg ogfrórði hreppstjórinn frá 1867 til l.febrúar 1998, er embættið var lagt niður. Hann hefur verið bóndi i Litlu-Sandvík i 42 ár. Páll hefur skrifað sjö bœkur. Svo byrjar sama ár gerð landbúnaðarskýrslu úr hverri sveit landsins (Tabel on den oeconomiske Tilstand) og strax fyrsta árið er komin skýrsla úr Grafningshreppi.5) I fýrra dæminu er talað um „Grafnings Sveit“, en landbúnaðarskýrslan á haustnóttum 1787 notar hið dönskuskotna nafn „Grafnings Repp“. Grafningshreppur lifir nú sjálfstæðu lífi um nokkurra áratuga skeið. Þótt sveitin væri fámenn og jarðirnar fylltu varla meira en tuginn, þreifst þar góður búskapur. Einkum voru fjárjarðir þar mikils metnar, enda afréttarland víðfeðmt og gott. Fáar sögur fara af hreppstjórnarmönnum fyrr en árið 1809 þegar „hreppstjórainstruxið“ kom. Það laga- boð fólst í því að hreppsnefndir, þ.e. hreppstjórnar- menn, hurfu en við tóku hreppstjórar, einn eða tveir í hverri sveit. Þeir voru opinberir embættis- menn og urðu að sverja konungi eið við upphaf embættistöku sinnar. Fyrsti eiðsvarni hreppstjóri Grafningshrepps var Gísli Gíslason, bóndi á Villingavatni. Verður nú um hann fjallað um stund. Höfðingi sinnar sveitar Gísli Gíslason var ættaður frá Þúfu í Ölfusi, sonur Gísla Sigurðssonar frá Ásgarði í Grímsnesi, bróður séra Jóns á Rafnseyri sem var afi Jóns Sigurðssonar forseta. Kvæntur var Gísli Gíslason Þjóðbjörgu Guðnadóttur frá Reykjakoti í Ölfusi, og bjuggu þau fyrst á Tannastöðum þar í sveit en fluttust að Villingavatni 1804, þar sem þau bjuggu síðan í 46 ár. Gísli var talinn höfðingi sinnar sveitar. Hreppstjóri var hann í tæp 30 ár, sáttasemjari og meðhjálpari í 44 ár og bólusetjari i 40 ár. í embættisverkum hlífði hann hvorki sér né öðrum, lét suma bændur lóga fénaði á haustin ef honum þótti glannalega sett á. En að sama skapi hjálpaði hann mönnum á vorin ef heyþrot eða matarskortur vofðu yfir. Hann var slíkur reglumaður á vín og tóbak að sveitungar hans þorðu ekki drukknir á mannamót ef þeir vissu af honum þar. Gísla er svo

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.