Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 24
Menningarmál
Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari og verkefnisstjóri:
Tónlist fyrir alla
Kynnum bömum óravíddir lifandi tónlistar!
Tónlist fyrir alla er samstarfs-
verkefni ríkis og sveitarfélaga
sem hefur staðið fyrir reglu-
bundnu tónleikahaldi í grunn-
skólum landsins fyrir tugþús-
undir barna síðastliðin níu ár.
A þessum árum hefur Tónlist
fyrir alla skipað sér fastan sess
og orðið til þess að góð lifandi
tónlist nær eyrum barna sem
rnörg hver færu á mis við hana
ella. Eru allir sammála um ágæti
þessa uppeldisstarfs, jafnt tón-
listarmennirnir, sem vilja miðla
list sinni til barna, skólamenn og
ekki síst börnin sjálf sem oftast
Áshildur Haraldsdóttir nam
flautuleik við Tónlistarskólann í
Reykjavík og lauk síöan háskóla-
prófum frá The New England
Conservatory of Music, Juilli-
ard-skólanum í New York og
Konservatoríinu í París. Hún
hefur unnið til verðlauna í fjór-
um alþjóðlegum tónlistarkeppn-
um og hljóöritað Jjóra einleiks-
geisladiska. Aukþess að koma
reglulega fram sem einleikari
með Sinfóníuhljómsveit íslands
hefur hún leikið einleik með
hljómsveitum í Ameríku, Evrópu
ogAfriku.
eru gagntekin af þessari reynslu.
Tónlist á erindi við börn, því
að eins og aðrar listir örvar hún,
þroskar og gleður. Tilgangur
Tónlistar fyrir alla er að kynna
íslenskum grunnskólabörnum
ólíkar tegundir tónlistar sem þau
fá að njóta í lifandi flutningi frá-
bærra tónlistarmanna. Reynslan
sýnir að virk þátttaka í list- og
verknámi eykur námsgetu í bók-
legum greinum. Þó kemst stór
hluti grunnskólanema aldrei í
beina snertingu við listir, utan
hefðbundinnar kennslu, þar sem
listnám er dýrt og undir efnahag,
áhuga og búsetu foreldra komið
hvort börn fá notið listviðburða.
Mikið framboð er hins vegar á
fjöldaframleiddu afþreyingarefni
sem börn neyta effirlitslítið.
Tónlist fyrir alla hefur það hlut-
verk að skapa mótvægi við
þessa léttvægu afþreyingu og að
gefa börnum tækifæri til að upp-
götva óravíddir lifandi tónlistar.
Þar með aukast líkurnar á að sú
kynslóð sem nú er að vaxa úr
grasi eigi eftir að njóta góðra
lista og halda við þeirri hefð og
sérstöðu Islendinga að sækja
hlutfallslega oft listviðburði.
Tónlist fyrir alla er faglegt
uppeldisstarf og reglubundinn
þáttur í tónmennta- og tónlistar-
kennslu barna og unglinga.
Margir af fremstu tónlistar-
mönnum íslendinga eru í sam-
starfi við kennara um tónleikana
og fræðslu og þátttöku nemenda
tengda tónleikunum.
í sókn austanlands
og vestan
Kostnaður sveitarfélaga vegna
þátttöku í starfi Tónlistar fyrir
alla er í formi hóflegs nemenda-
gjalds, sem er 155 kr. fyrir hvern
nemanda sem sækir skólatón-
leikana.
í ár er reiknað með að skóla-
tónleikar Tónlistar fyrir alla nái
til 22.639 barna. Það er meira en
helmingsaukning frá því í fyrra,
en þá hlýddu 9.578 grunnskóla-
nemendur á skólatónleika (bæði
að hausti og vori). A þessu ári
eru 363 tónleikar á áætlun en
voru í fyrra 197. Þessi mikla
aukning í starfi Tónlistar fyrir
alla stafar af hækkun á ríkisfjár-
veitingu, en hún jókst úr 3,5
millj. kr. árið 2000 í 4,5 millj.
kr. árið 2001, en einnig fékk
verkefnið einnar milljónar króna
styrk frá Íslandsbanka-FBA.
Fjáraukningin í ár hefur gert
kleift að bjóða öllum sveitar-
félögum á Vestfjörðum og
Austurlandi að bætast í hóp
47 sveitarfélaga á Suðurlandi,
Vesturlandi, Suðurnesjum og
höfuðborgarsvæðinu sem taka
þátt í samstarfinu við Tónlist
fyrir alla. Sveitarfélög á
Vestfjörðum og Austurlandi hafa
lengi verið utanveltu og eru það
því gleðifréttir að bót hefúr ver-
ið ráðin á því máli.
Það er einlæg von mín að hag-
ur Tónlistar fyrir alla vænkist
enn á næsta ári til að hægt sé að
bjóða sveitarfélögum á Norður-
landi þátttöku og að skólatón-