Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 29
Menningarmál
Greinarhöfundur, dr. Þorleifur Eiríksson,
við anddyri Náttúrugripasafns Bolungarvíkur.
verkefni og enda á grunnrannsóknum, því þrátt
fyrir að það sé gefandi að vinna að fræðslu og veita
greinargóðar upplýsingar, þá er það alltaf draumur-
inn að rannsaka náttúru Vcstfjarða.
Náttúrufræðifræðsla
Eitt af mikilvægustu hlutverkum náttúrustofa er
að miðla þekkingu um náttúru svæðisins til
almennings og því er mikilvægt að náttúrustofan
taki virkan þátt í náttúrugripasýningum og annarri
almenningsfræðslu um náttúrufræði.
Sveitarstjórnir á Vestfjörðum og aðrir aðilar eru
meðvitaðir um mikilvægi fræðslu um náttúru Vest-
fjarða. Náttúrustofan er þegar byrjuð að vinna með
sveitarstjórnum að þessari fræðslu.
Náttúrugripasafnið í Bolungarvík
Náttúrugripasafn Bolungarvíkur hafði ekki opn-
að sýningarsal þegar Náttúrustofan tók til starfa, en
söfnun náttúrugripa var hafin og stjórn safnsins
vann að skipulagningu sýningarsalar. Um leið og
verið var að koma Náttúrustofunni á fót fór vinnan
Dr. Þorleifur Eiríksson sýnir Sigrúnu Magnúsdóttur
borgarfulltrúa þúfutittlingshreiður.
við náttúrugripasafnið í fullan gang, enda eitt af
hlutverkum Náttúrustofunnar að vinna að náttúru-
gripasýningum.
Safnið var skipulagt af miklum stórhug og sýn-
ingarsalurinn hafður rúmlega 300 m2 að meðtöld-
um hliðarsal fyrir farandsýningar, fyrirlestra og
skólastarf. Til viðbótar er verið að útbúa þjónustu-
svæði og ganga frá vinnusvæði til að setja upp
sýningar.
Það ýtti einnig á framkvæmdir að safnið hafði
fengið ísbjörn að gjöf, sem núna skipar heiðurssess
á safninu ásamt blöðrusel. Fyrstu sýningarnar voru
tvær. Annars vegar var fuglasýning þar sem yfir
200 uppstoppaðir fuglar voru sýndir, bæði íslenskir
varpfuglar og flækingar. Að grunni til var fugla-
sýningin byggð á einkasafni sem var keypt, en
síðan bárust Qölmargar gjafir frá velunnurum
safnsins. Síðan hefur verið unnið skipulega að því
að safna fuglum, tegundum, litarafbrigðum og mis-
munandi aldursstigum. Fuglunum var annars vegar
komið fyrir í stórurn sérhönnuðum sýningarskáp
og hins vegar í minni skápum til hliðar í salnum.