Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Síða 39

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Síða 39
Almenningsbókasöfn Sigrún Hauksdóttir, kerfisbókavörður á Landsbókasafni: Landskerfi bókasafha - Nýtt bókasafhskerfi í mars 1998 kom menntamálaráðherra á fót nefnd sem ætlað var að gera tillögur um val á bókasafnskerfi sem hentað gæti fyrir öll bókasöfn í landinu, þ.m.t. Landsbókasafn íslands - Háskóla- bókasafn, almenningsbókasöfn, skólabókasöfn og rannsóknarbókasöfn. Hlutverk nefndarinnar var að velja bókasafnskerfi sem þjónað gæti öllum landsmönnum eða, eins og segir í erindisbréfi, þá er nefndinni ætlað að hafa að leiðarljósi að öll bókasöfn í landinu geti orðið samtengd og að gagnagrunnar þeirra líti út sem ein heild frá sjónarhóli notenda. Þessu nýja bókasafnskerfi verður hleypt af stokkunum í byrjun næsta árs. Ymsar leiðir eru færar til að samtengja gagna- grunna bókasafnanna. T.d. er hægt að vera með sýndarbókasafn þar sem leitað er í ólíkum kerfum með hjálp samskiptastaðalsins Z39.50. Með notkun þessa staðals er hægt að leita í mörgum bókasöfnum og mismunandi kerfum svo að gagna- grunnar þeirra líti út sem ein heild. Ljóst var að Gegnir, bókasafnskerfi Landsbókasafns íslands, Kennaraháskólans og átta annarra safna, og Fengur, bókasafnskerfi Borgarbókasafns Reykja- víkur og allt að 70 annarra safna, voru orðin úrelt og löngu tímabært að endurnýja þau. Spurningin var á hinn bóginn hvort betra væri að vera með eitt eða mörg kerfi sömu tegundar. Niðurstaðan varð sú að æskilegast væri að vera með eitt miðlægt bókasafnskerfi fyrir allt landið. Helstu rökin voru þau að eitt kerfi er ódýrari lausn því hvert nýtt kerfi kostar i grunninn það sama og fyrsta kerfið. Samnýting þekkingar varðandi kunnáttu, þjálfun, kerfisstjórnun og þjónustu kerfisbókavarða þótti mikill ávinningur því ómældur tími og orka fer í að læra á kerfi og viðhalda lágmarkstækniþekkingu. Að lokum þótti augljóst að þjónusta bókasafna við alla landsmenn muni batna til muna. Nútíma bókasafnskerfi eru öflugar upplýsinga- veitur sem geta miðlað gögnum úr ólíkum gagna- grunnum. Með því að tengja saman gögn frá bókasöfnum við aðra gagnagrunna opnast áður ónýttir möguleikar við samnýtingu gagna og aðgengi almennings að upplýsingum stóreykst. Stafræn bókasöfn veita nú almenningi aðgang að efni í gegnum Netið og tímarit eru nú í æ ríkari mæli aðgengileg á rafrænu formi. Síðastliðin þrjú ár hefur verið unnið að því að velja bókasafnskerfi. Það hefur gengið á ýmsu og var t.d. tvisvar farið í útboð á Evrópska efnahags- svæðinu. Hvert skref í þessu ferli hefur tekið miklu lengri tíma en áætlanir gerðu ráð fýrir. Það er fyrst og fremst reynsluleysi um að kenna því starfs- bræður og -systur okkar erlendis staðhæfa að raunhæft sé að margfalda öll tímaplön með þremur. Ef valið átti upphaflega að taka eitt ár er raunveruleikinn þrjú ár. Búið er að velja bóka- safnskerfið. Kerfið heitir ALEPH500, frá Ex Libris, ísraelsku hugbúnaðarfyrirtæki. Aleph- kerfið er í notkun í yfir 500 bókasöfnum í 40 löndum. ALEPH500 er nýjasta kerfið frá Ex Libris sem hefur 20 ára reynslu í þróun og rekstri bóka- safhskerfa. Hér eru nokkur gagnleg veffong fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá hvernig kerfið lítur út í raun: Athugið að ALEPH virkar best í Microsoft Explorer vafra. Ex Libris http://www.exlibris.com Sigrún Hauksdóttir er kerfis- bókavörður á Landsbókasafni Islands - Háskólabókasafni. Hún hefur verið fulltrúi safnsins í nefnd menntamála- ráðuneytis um val á bóka- safnskerfi sem hentað geti öllum söfnum landsins. Starf nefndarinnar leiddi nýlega til kaupa á Aleph-bókasafns- kerfinu. Nœstu tvö árin mun kerfið verða innleitt í flest bókasöfn landsins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.