Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 58

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 58
184 Afmæli Sigurlið í reiptoginu „Hrepparígur" úr kvenfélaginu Iðunni úr gamla Hrafnagiishreppi. Nú þegar tíu ár eru liðin frá stofnun Eyjafjarðar- sveitar er eðlilegt að menn velti fyrir sér hver sé reynslan af sameiningunni. Eins og víða hefur komið í ljós, er sameining sveitarfélaga mjög vandasamt verkefni og hefur jafnan í for með sér einhverjar breytingar sem skiptar skoðanir geta verið um meðal íbúanna og slík mál hafa komið upp í Eyjafjarðarsveit, eins og við sameiningu annars staðar, en þau hefur þó tekist að leysa með allgóðri sátt. Eins og fram kom hjá þeim sem töluðu á afmæl- ishátíðinni, er það mat manna að reynslan af sam- einingunni sé góð, jafnvel betri en búist var við. Tekist hefur að halda við og jafnvel að auka það góða þjónustustig sem fyrir var hjá gömlu hrepp- unum og þrátt fyrir að ráðist hafi verið í miklar framkvæmdir og fjárfestingar á vegum sveitar- félagsins, er ijárhagur þess góður. Og mörkin milli gömlu sveitarfélaganna virðast nú vera flestum gleymd og gamli hrepparígurinn er helst hafður að gamanmálum sem menn skemmta sér við á góðri stund, eins og á afmælishátíðinni laugardaginn 7. júlí. HITAVEITA SUÐURNESJA HITAVEITA SUÐURNESJA LEIÐANDI FYRIRTÆKI í NÝTINGU JARÐVARMA Hitaveita Suðurnesja er fyrsta orkuveitan í heiminum sem tvinnar saman framleiðslu á heitu vatni til húshitunar, heitu kranavatni auk framleiðslu á rafmagni. Þekking byggð á íslensku hugviti og reynslu hefur gert okkur kleift að skipa okkur sess sem leiðandi fyrirtæki í sölu á ódýrri orku til fyrirtækja og heimila. Ódýr orka í formi gufu og eða rafmagns, ferskvatn og hreinn sjór úr hraunlögum sem kælimiðill til hverskyns iðnaðar, mannauður og nægjanlegt auðunnið landrými fyrir hverskyns atvinnustarfsemi í nálægð alþjóðaflugvallar og góðra hafnarmannvirkja setja Suðurnesin efst á blað hvað kosti varðar við ákvörðun staðsetningar stóriðju jafnt sem smærri fyrirtækja. Nýttu þér reynslu okkar og þekkingu og leitaðu upplýsinga. Hitaveita Suðurnesja • Brekkustíg 36 • 260 Reykjanesbæ • Sími 422 5200 • Fax 421 4727 • www.hs.is

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.