Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Page 65

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Page 65
Byggðamál 191 Tillögur byggðanefndar sambandsins • Byggðamál, sveitarstjórnarmál, skipulags- og byggingarmál verði sameinuð í eitt ráðuneyti, ráðuneyti byggða- og sveitarstjórnarmála, og markvisst verði unnið að því: • Að byggja upp tvö tilþrjú öflug kjarnasvæði sem valkost við höfuð- borgarsvœðið og • Að fækka sveitarfélógunum í 40 til 50 með frjálsri sameiningu - ella verði sveitarfélög sameinuó með lögum í samráði við ríkisvaldið. Þessar eru megintillögur byggðanefndar santbandsins. Byggðanefnd sambandsins hef- ur skilað áliti ásamt greinargerð og fer hvort tveggja hér á eftir: í allri umræðu um byggðarþró- un er mikilvægt að greina eðli hennar með nákvæmari hætti en verið hefur og aðgerðir í byggða- málum taki mið af þeirri grein- ingu. Þannig er ljóst að áhrifa höfuðborgarsvæðisins gætir víðar en áður og þróun byggðar á hin- um ýmsu svæðum landsins er breytileg. Nefndin er sammála um að þróun byggðar í landinu mótist iyrst og fremst af efna- hags- og atvinnumálum. Byggða- nefndin leggur m.a. til að ríki og sveitarfélög vinni saman að byggðamálum á grundvelli eftir- farandi: 1. Byggðamál, sveitarstjórnar- mál, skipulags- og bygging- armál verði sameinuð í eitt ráðuneyti, ráðuneyti byggða- og sveitarstjórnarmála. Með sameiningu þessara mála- flokka undir eitt ráðuneyti ætti að fást betri yfirsýn yfir þróun byggða- og sveitarstjórnarmála og aðgerðir í þessum málaflokk- um ættu að verða markvissari. 2. Hagsmunir landsins alls eru fólgnir í samstarfi höfuð- borgar og landsbyggðar. Samkeppnisgeta höfuðborg- arsvæðisins gagnvart útlönd- um verði tryggð þannig að þar geti þróast öflugt alþjóð- iegt atvinnu- og efnahags- umhverfi. Öflugt höfuðborgarsvæði með fjölbreyttum atvinnutækifærum verður að vera valkostur fyrir ungt vel menntað fólk sem að öðrum kosti er hætta á að ílengist við störf erlendis. 3. Ahersla er lögð á að byggð dreifist um landið. Markvisst verði unnið að því að byggja upp tvö til þrjú öflug kjarna- svæði sem valkost við höfuð- borgarsvæðið. Þessi kjarna- svæði verða að hafa burði til að treysta búsetu í viðkom- andi Iandshlutum og vera þannig kjölfesta fyrir byggð í landinu öllu. Nauðsynlegt er að kjarnasvæði og höfuð- borgarsvæði hafi með sér náið samstarf og verka- skiptingu, sem byggist á sameiginlegri framtíðarsýn. Þessi kjarnasvæði gætu verið á Eyjafjarðarsvæði (35^f0 þús. íb.), Vestfjörðum (10 þús. íb.) og Mið-Austurlandi (10 þús. íb.) Þau þyrftu að bjóða upp á mikla þjónustu og fjölbreytt atvinnulíf. Ríkisvaldið beiti sér fyrir því að nýjum opinberum stofnunum verði valinn staður á þessum svæðum. Sérstaða annarra svæða getur kallað á staðsetningu tiltek- innar opinberrar starfsemi utan kjarnasvæða. 4. Sveitarfélögin verði stækkuð og efld til að þau ráði betur við núverandi sem og ný verkefni. Markvisst verði unnið að því á næstu átta árum að fækka sveitarfélög- unum í 40 til 50 með frjálsri sameiningu. Náist það mark- mið ekki er lagt til að Sam- band íslenskra sveitarfélaga, í samráði við ríkisvaldið, beiti sér fyrir því að sveitar- félög verði sameinuð með lögum. Verulegur árangur hefur náðst í stækkun sveitarfélaga á undan- förnum árum samkvæmt ákvarð- anatöku íbúa hvers einstaks sveitarfélags. Til að ná enn frekari árangri í stækkun sveitar- félaga þarf hugsanlega að endur- skoða þær aðferðir sem beitt

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.