Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Page 73

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Page 73
Frá landshlutasamtökunum Þingfulltrúar og gestir fylgjast með erindi Þórarins V. Sólmundarsonar um byggðaaðgerðir á íslandi í samanburði við önnur lönd. húsnæðislögjafar á ijárhag sveitarfélaga og gerði grein fyrir þeim markmiðum sem uppi voru þegar löggjöf um húsnæðismálin var sett. Það sem kallaði á breytingar var að íbúum á landsbyggðinni fækkaði sem varð til þess að vegna kaupskyldu bar sveitarfélögum að leysa til sín íbúðirnar, sem var sumum þeirra ofviða og kostaði skerðingu á þjónustu og frestun ýmissa framkvæmda. Með nýrri löggjöf um húsnæðismál var hætt að greiða niður vexti, en lánamöguleikum breytt og þeir færðir í húsbréf- vextir eru hærri, en lánshlut- fall er enn hið sama. Guðríður taldi þetta geta gengið upp í góðæri, en ef efnahagsástand versnaði mundi fljótt síga á ógæfúhlið, og það kæmi niður á sveitarfélögum, einkum með tilliti til viðbótarlána en kostnaður vegna þeirra mun lenda að mestu hjá sveitarfélög- unum. Ályktanir þingsins Ásamt því að afgreiða ársreikning ársins 1999 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2001 samþykkti þingið eftirfarandi ályktanir samhljóða: Aukin tengsl menntastofnana og atvinnulífs á Norðurlandi vestra 8. ársþing SSNV samþykkir að koma á sam- starfsnefnd menntastofnana og atvinnulífs á Norð- urlandi vestra. Samstarfsnefndin verði skipuð fulltrúum eftirtalinna aðila: Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Farskóla Norðurlands vestra, Hólaskóla, INVEST og þriggja atvinnufyrirtækja á Norðurlandi vestra. Stjóm SSNV skipi nefndina skv. tilnefningu hlutaðeigandi og framkvæmdastjóri samtakanna kalli hana saman og stýri fúndum hennar. Frumkvöðlasetur Þingið samþykkir að beina því til aðalfúndar IN- VEST að stofnað verði frumkvöðlasetur á Norður- landi vestra. Því er ætlað að hýsa og styðja við fyrirtæki sem byggja á sérstöðu og nýsköpun á starfssvæði félagsins. Aðstoðað verði við stofnun fyrirtækjanna og rekstur þeirra í allt að fimm ár, enda uppfylli þau inntökuskilyrði fyrir frumkvöðlasetrið. Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra annist rekstur frumkvöðlasetursins eftir reglum sem stjórn þess setur. Viðbótarkostnað INVEST vegna reksturs frum- kvöðlaseturs skal greiða með eftirfarandi hætti: • Með leigutekjum af húsnæði sem sveitarfélög leggja fram án endurgjalds. • Með þjónustugjöldum frá frumkvöðlum. • Með styrkjum úr Nýsköpunarsjóði, frá Byggðastofnun og einkaaðilum. Flutningur og staðarval ríkisstofnana Þingið fagnar flutningi Byggðastofnunar til Sauðárkróks og metur mikils það frumkvæði sem með því er sýnt. Þingið leggur til að Veiðimálastofnun verði flutt

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.