Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Blaðsíða 83
Frá landshlutasamtökunum
Þá var að tillögu nefndarinnar samþykkt tillaga
um flutning á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitar-
félaga, kynningu á Austurlandi, um endurskoðun
á tekjustofnum sveitarfélaga og um að ríkisvaldið
komi enn frekar til móts við sveitarfélögin með
átaki til að leysa fráveitumál sem víða eru erfið
úrlausnar.
Virkjun og orkufrekur iðnaður
Að tillögu atvinnu- og byggðamálanefndar var
m.a. samþykkt svofelld ályktun:
Aðalfundur SSA 2000 itrekar stuðning sam-
bandsins við áform um virkjanaframkvæmdir á
Austurlandi og nýtingu orkunnar til framleiðslu-
starfsemi og atvinnusköpunar í landshlutanum.
í þessu sambandi vill fundurinn taka eftirfarandi
fram:
• Fagna ber vönduðum matsáætlunum sem fram-
kvæmdaraðilar Kárahnjúkavirkjunar og álvers á
Reyðarfirði lögðu fram og kynntu ítarlega.
Skipulagsstofnun hefur þegar samþykkt mats-
áætlanirnar í öllum meginatriðum.
• Anægjulegt er að í sumar hefur tíminn verið not-
aður vel til margvíslegra rannsókna í tengslum
við fyrirhugaða Kárahnjúkavirkjun og álver á
Reyðarfirði.
• Mikilvægt er að yfirlýsing hefúr verið gefin um
að í væntanlegu álveri Reyðaráls verði notuð
fullkomnasta tækni til að halda loft-, jarðvegs-
og vatnsmengun í lágmarki.
• Fundurinn leggur áherslu á að framkvæmdum
sem tengjast áformum um Kárahnjúkavirkjun og
álver á Reyðarfirði verði flýtt eins og frekast er
kostur. í þessu sambandi ber sérstaklega að nefna
framkvæmdir á sviði samgöngumála eins og
vegagerð í Fljótsdal, gerð jarðganga milli Reyð-
arQarðar og Fáskrúðsfjarðar og vegagerð milli
Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.
• Full ástæða er til að lýsa yfir ánægju með hið
mikla samstarf sem framkvæmdaraðilar virkjun-
ar og álvers hafa haft við hlutaðeigandi sveitar-
félög, stofnanir sveitarfélaga og ferðaþjónustu-
samtök á Austurlandi.
• Bent skal á að fyrirhugaðar virkjunarfram-
kvæmdir og bygging álvers á Austurlandi er ein-
hver viðamesta byggðaaðgerð sem stjórnvöld
eiga kost á að ráðast í. Slík aðgerð mun án efa
hafa mikil samfélagsleg áhrif í fjórðungnum auk
þess sem hún gæti verið táknræn fýrir þá stefnu
Hjónin Halldóra Hjaltadóttir og Egill Jónsson, fyrrverandi
alþingismaður, Seljavöllum, sem voru heiðursgestir fundarins.
að byggja upp öflugt atvinnulíf í öllum lands-
hlutum.
Þá var í öðrum ályktunum skorað á ríkisvaldið
að styðja enn frekar jarðhitaleit á köldum svæðum,
að móta skýra stefnu um fjarvinnslu opinberra
verkefna og framfylgja slíkri stefnu með ákveðn-
um hætti og að velja nýjum ríkisstofnunum stað
utan höfúðborgarsvæðisins sé þess nokkur kostur.
Þeim tilmælum var beint til stjórnar Byggða-
stofnunar að endurskoða og aðlaga reglur um starf-
semi eignarhaldsfélaga á landsbyggðinni með það
að markmiði að auðvelda uppbyggingu öflugra
fjárfestingarfyrirtækja til að tryggja nauðsynlegt
nýsköpunarfjármagn í arðsöm verkefni í fjórðung-
unum og að stuðla að því að upplýsingaiðnaður nái
að þróast utan höfuðborgarsvæðisins. Þá harmaði
fundurinn að fyrirheit stjórnvalda um fjarvinnslu
opinberra verkefna á landsbyggðinni hafa ekki náð
fram að ganga. Sýnt hefur verið fram á að auðvelt
er að byggja upp fjarvinnslustöðvar úti á landi ef
verkefni eru til staðar og slík starfsemi mun víða
auka Qölbreytni atvinnulífs til mikilla muna.
Loks er fagnað þeim árangri sem náðst hefur
með samstarfi ferðaþjónustuaðila og sveitarfélaga
á Austurlandi.
Jarðgöng
Að tillögu samgöngunefndar fúndarins var m.a.
gerð eftirfarandi samþykkt:
Aðalfúndur SSA 2000 hvetur til þess að undir-