Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 91

Sveitarstjórnarmál - 01.06.2001, Side 91
Fjármál sambærilegra eigna ekki þekkt skal skráð matsverð ákveðið eftir bestu fáanlegri vitneskju um sam- bærilegt gangverð með hliðsjón af kostnaði við gerð mannvirkja, aldri þeirra, legu eignar með til- liti til samgangna, nýtingarmöguleikum og öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á gangverð eignarinnar. Á árinu 2000 fóru flest sveitarfélög á höfuðborg- arsvæðinu fram á endurmat á fasteignamati fjölda eða allra fasteigna í viðkomandi sveitarfélagi. I framhaldi af því beindi fjármálaráðuneytið því til Fasteignamats ríkisins að endurmeta fasteignamat íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis, sumarhúsa, úti- húsa og lóða um land allt en fasteignamat lands utan þéttbýlis og hlunninda verður endurskoðað síðar. Einnig var frestað endurmati fasteignamats á nokkrum sérhæfðum byggingum sem og húsum sem upplýsingar skortir um. Endurskoðun fasteignamatsins var framkvæmd með því að nýta upplýsingatækni til að samkeyra upplýsingar um gangverð úr rúmlega 17.000 kaup- samningum saman við ýmsar skráningarupplýsing- ar um fasteignir svo sem um gerð þeirra, bygging- arkostnað, aldur og legu og finna með tölfræðileg- um aðferðum liklegast gangverð þeirra. Hlutfall landmats í heildarfjárhæð fasteignamats fasteignar hækkar almennt en hlutfall mannvirkis lækkar. Það endurspeglar hækkun undanfarinna ára á verðmæti lands, kostnað við gatnagerðar-, tengi- og lagna- gjöld og almennan kostnað vegna frágangs. Hið endurskoðaða fasteignamat er byggt á sama verðlagi og núgildandi fasteignamatsskrá sem gef- in var út 1. desember 2000 og miðast við gangverð fasteigna í nóvember 2000. Fasteignamatsskrá, sem miðast við gangverð fasteigna í nóvember 2001, verður síðan gefin út 31. desember 2001 og verður hún grundvöllur álagningar 2002. Heildarfjárhæð fasteignamats að endurmati Borgarplast er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðastaðlinum ISO 14001, eitt fyrirtækja í eigu íslendinga. Fyrirtækið framleiðir fjölmargar úrvalsvörur til verndunar náttúrunni. BCRGARPLAST 1/.;\j'JiXí\íJ IG 'VJ£5-j*V. MT Borgarplast framleiðir rotþrær, olíuskiljur, sandföng, brunna, vatnsgeyma og einangrunarplast. Öll framleiðsla fyrirtækisins er úr alþjóðlega viðurkenndum hráefnum og fer fram undir ströngu gæðaeftirliti. Rotþrær, olíu- og fituskiljur Borgarplasts eru viðurkenndar af Hollustuvernd ríkisins. Sefgarðar 1-3 • 170 Seltjarnames Sólbakka 6 • 310Borgarnes Sími: 5612211 • Fax: 561 4185 Sími: 4371370 • Fax: 4371018 Netfang: borgarplast@borgarplast.is BCRGARPLAST

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.