Morgunblaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Melrakkasetrið í Súðavík er smátt og
smátt að festa sig í sessi sem miðstöð
rannsókna og fræða. Verkefnin eru af
margvíslegum toga, en öll tengjast
þau melrakkanum eða tófunni eða
hvaða nafn sem notað er af þeim fjöl-
mörgu sem refurinn hefur verið
nefndur hér á landi. Upphefðin kemur
ekki síst að utan en stórar erlendar
sjónvarpsstöðvar hafa leitað til að-
standenda safnsins um viðtöl og
myndir og vísindasamfélagið leitar
þangað eftir upplýsingum og lífsýnum,
en þróun dýrsins hér á landi er á
margan hátt einstök.
Nýlega var fjallað um íslenska ref-
inn í BBC wildlife magazine og viðtal
við aðstandendur Melrakkaseturs
verður í útvarpsþætti hjá BBC í októ-
ber. Einnig má sjá kvikmynd um tóf-
una á Íslandi á sjónvarpsrás National
Geographic.
Margir hafa sýnt safninu áhuga og
verið í samskiptum við starfsmenn, en
auk þess hafa síðustu þrjú sumur um
sex þúsund manns heimsótt setrið á
hverju sumri, en það er opið allt árið.
Setrið er í gamla Eyrardalsbænum í
Súðavík og kom sveitarfélagið að end-
urbyggingu húsnæðis á myndarlegan
hátt ásamt því að vera stærsti hluthafi
Melrakkasetursins.
Félag um reksturinn var stofnað
fyrir réttum fimm árum, en opið hefur
verið á Melrakkasetri frá vorinu 2010.
Þrjú ársverk eru hjá Melrakkasetri,
en yfir sumarið eru umsvifin meiri og
starfsmennirnir þá um fimm talsins.
Auk þess hafa síðustu sumur um 30
sjálfboðaliðar komið að starfseminni.
Segja má að ekkert „refslegt“ sé að-
standendum setursins óviðkomandi.
Auk rannsókna, þar sem refurinn á
Hornströndum er í forgrunni, má
nefna verkefni sem tengjast líffræði,
mannfræði, þjóðháttum, fornleifa-
fræði, sagnfræði og jarðfræði grenja
svo eitthvað sé nefnt. Sýninga af ýms-
um toga má njóta í setrinu og þar er
rekið Rebbakaffi fyrir gesti og gang-
andi, enda er starfsemin nátengd
ferðaþjónustu á svæðinu.
Hefur braggast vel
Síðustu áratugi hefur íslenski ref-
urinn braggast vel og hefur stærð
stofnsins margfaldast, farið úr um eitt
þúsund dýrum upp úr 1970 í um eða
yfir tíu þúsund dýr 40 árum seinna.
Ástandið virðist stöðugt um þessar
mundir, en hvort þessi stofnstærð er
ákjósanleg eða hvort stofninn er orð-
inn of stór er umdeilt. Fólk er farið að
verða meira vart við refi í kringum
mannabústaði, sumir segja að tófu-
gagg sé að taka við af fuglasöng og ref-
urinn gangi nærri mörgum öðrum teg-
undum. Á sama tíma er minna fé varið
til veiða á ref.
Ester Rut Unnsteinsdóttir, líffræð-
ingur og forstöðumaður Melrakkaset-
urs, segir það staðreynd að refastofn-
inn hafi ekki verið stærri síðan mat á
stofnstærð hófst árið 1986 með þeim
aðferðum sem nú eru notaðar. Stofn-
inn hafi reyndar verið að ná sér á strik
eftir að hafa verið í algeru lágmarki á
þeim tíma. Hún segir mikilvægt að
skoða mögulegar skýringar og áhrifa-
valda og að halda áfram að mæla allar
breytur sem skipta máli.
Mikilvægustu þættirnir eru lífslíkur
dýra yfir erfiðasta tímann, þ.e. hávet-
urinn, hlutfall kynþroska kvendýra
sem tímgast og frjósemi þeirra, þ.e.
hversu marga yrðlinga þær eignast.
Þar sem tófan er einkvænisdýr, heldur
parið saman meðan bæði lifa og þau
verja sitt óðal þar sem þau koma upp
yrðlingum. Sé óðal ekki til staðar, né
maki, nær viðkomandi einstaklingur
ekki að tímgast. Fjöldi óðala sem eru í
boði fer eftir fæðuframboði á hverju
Merkilegur melrakki
Morgunblaðið/Ómar
Vísindi Ester Rut Unnsteinsdóttir við rannsóknir á beinum refa í höfuðstöðvum Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Stofnstærð refsins hefur margfaldast hér á landi síðustu áratugi Á víða undir högg að sækja erlendis
Mikilvægt að halda rannsóknum áfram Starfsfólki Melrakkaseturs ekkert „refslegt“ óviðkomandi
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012
Það er ekki aðeins refurinn sem á hug forstöðumanns
Melrakkaseturs, því Ester Rut er upptekin við músa-
veiðar þessa dagana. Hún vinnur að doktorsverkefni
sínu í líffræði við Háskóla Íslands um árstíðasveiflur ís-
lenskra hagamúsa. Jafnframt kennir hún nemendum á
þriðja ári um vistfræði spendýra.
Hún hefur rannsakað hagamýs á Kjalarnesi, við Mó-
gilsá og veiðir þessa daga mýs í Urriðaholti. Um líf-
veiðar er að ræða þannig að mýsnar eru veiddar, merkt-
ar og síðan sleppt. Nemendur á námskeiðinu taka þátt í
veiðunum og á þennan hátt fást upplýsingar um lífs-
hætti músa við mismunandi aðstæður.
Hagamýs hafa af ýmsum verið taldar veðurglöggar.
Sagt hefur verið að ef þær gerðu holur sínar snemma
eða þær drægju að sér mikinn forða fyrir veturinn vissi
það á harðan vetur. Sömuleiðis fyndu þær á sér hvaða
vindáttir yrðu erfiðastar og holuopin sneru undan
vindi.
Spurð um þessi vísindi segir Ester Rut: „Ég er ekki
viss um að þær spái því hvernig veturinn verður, en það
er hægt að sjá á þeim hvernig síðasti vetur var. Hversu
margar lifðu hann af og hvernig þeim reiddi af. Ég
kaupi ekki alveg þessar sögur um hversu veðurglöggar
mýsnar eiga að vera, en þetta eru skemmtilegar sögur
og kannski ekki verri en aðrar.“
Kennir vistfræði spendýra
KAUPIR EKKI SÖGUR UM VEÐURGLÖGGAR MÝS
Kalt Brugðið á leik með Frosta ref í Heydal. Melrakk-
inn er norðlægasta refategundin og finnst á strönd-
um og eyjum í kringum norðurheimskautið.
Melrakki mun vera elsta heitið
sem notað er um tófu eða ref og
vísar til rakkans á mjöllinni í gam-
alnorsku. Á heimasíðu Melrakka-
seturs er einnig að finna nöfn eins
og djangi, djanki, fjallarefur, grá-
fóta, heimskautarefur, holtaþór,
lágfóta, skolli, vargur, vembla. Á
Wikipedia bætast við nöfn eins og
dratt(h)ali, gortanni, lágfóta,
skaufhali og vemma. Þar segir að
ekkert annað dýr á Íslandi hafi
haft eins mörg heiti.
Karldýrin eru oftast nefnd
steggur eða högni en einnig kemur
fyrir að þeir séu nefndir refur.
Kvendýrin eru nefnd læða eða
bleyða en einnig kemur fyrir að
þær séu nefndar tófur. Afkvæmið
er yfirleitt nefnt yrðlingur.
Fjölmörg
heiti á
refnum
RAKKINN Á MJÖLLINNI
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.Dreifing:
HÁR EHF
s. 568 8305 | har@har.is | REDKEN Iceland á
FYRIR LIÐAÐ HÁR FYRIR HÁRLOSFYRIR ALDRAÐ HÁRFYRIR ÚFIÐ HÁR
FYRIR SKEMMT HÁR FYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ
FYRIR LJÓST HÁR
FYRIR ÓLITAÐ HÁR FYRIR LITAÐ HÁR
FYRIR ÞURRT HÁR
FYRIR ÓRÓLEGT HÁRFYRIR FÍNGERT HÁR
REDKEN býður upp á fullkomna línu fyrir hárgerð þína í sjampói, næringu og djúpnæringu
SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR
HVERS ÞARFNAST ÞITT HÁR?