Morgunblaðið - 22.09.2012, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturj@mbl.is
Það samfélag og stjórnfyrirkomulag
sem norski fjöldamorðinginn And-
ers Behring Breivik vill koma á fót,
samkvæmt svokallaðri stefnuskrá
sinni sem hann birti á netinu áður
en hann framdi fjöldamorð sín í
Osló og á Útey 22. júlí á síðasta ári,
er líkast því fyrirkomulagi sem
þekkist í dag í Íran. Þetta er mat
norska sagnfræðiprófessorsins Øy-
steins Sørensens, sem flutti í gær
erindi á fundi á vegum Varðbergs
og Rannsóknarseturs um nýsköpun
og hagvöxt (RNH) um alræðishug-
arfar Breivik. Hann gaf meðal ann-
ars út bókina „Drømmen om de full-
komne samfunn“ (Draumurinn um
hið fullkomna samfélag) árið 2010
þar sem umfjöllunarefnið eru alræð-
isstefnur eins og fasismi, nasismi,
kommúnismi og íslamismi.
Tilgangurinn helgar meðalið
Sørensen sagði að allar alræðis-
stefnur snerust um hið fullkomna
samfélag og hinn fullkomna mann
sem þeir sem aðhylltust þær teldu
sig hafa fundið. Þær höfnuðu þeim
samfélögum sem til staðar væru og
einkum þeim sem byggðust á lýð-
ræði og frjálslyndi og teldu þau
dauðadæmd. Þeir sem aðhylltust
þessar stefnur höfnuðu ennfremur
því að hægt væri að gera umbætur á
þeim samfélögum sem fyrir væru og
teldu einu leiðina vera ofbeldisfulla
byltingu til þess að leggja grunninn
að fyrirmyndarríkinu. Lögð væri
áhersla á að hafa algera stjórn og
stýra öllu niður í smæstu smáatriði
með regluverki. Þá teldu þeir sem
aðhylltust slíkar alræðisstefnur að
flest venjulegt fólk áttaði sig ekki á
raunverulegu samhengi hlutanna og
fyrir vikið þyrfti að hafa vit fyrir því
og stýra því.
Sørensen sagði að þeir sem að-
hylltust slíkar alræðisstefnur teldu
ennfremur að þeir hefðu siðferðið
sín megin vegna þeirra háleitu
markmiða sem þeir stefndu að. Fyr-
ir vikið skipti ekki máli hvaða að-
ferðum væri beitt í þeim tilgangi að
ná þeim. Venjuleg siðferðissjón-
armið skiptu þar engu máli og ekki
heldur mannslíf, sama hversu mörg
þau væru. Þeim sem stæðu í vegi
fyrir því að hægt yrði að ná þessum
markmiðum væri réttlætanlegt að
víkja til hliðar með einum eða öðr-
um hætti, koma í veg fyrir að þeir
gætu haft áhrif á samfélagið og
jafnvel eyða þeim. Þeir vildu leika
Guð. Sørensen sagði allt þetta koma
vel heim og saman við hugmynda-
heim Breivik, einkum eins og hann
birtist í stefnuskrá hans.
Þannig teldi hann til að mynda
Vestur-Evrópu dauðadæmda, eink-
um vegna fjölda múslima, sem hann
sæi fyrir sér sem samsæri um að
taka yfir Evrópu, og siðferðislegrar
hnignunar. Umbylta yrði samfélag-
inu og stofna nýtt fyrirmyndarríki
sem hann hefði uppskriftina að. Til
að ná þessu markmiði væri honum
heimilt að beita hvaða aðferðum
sem á þyrfti að halda og ekki síst of-
beldi. Í þessu fyrirmyndarríki væru
til dæmis engir múslimar, engir
marxistar (sem Sørensen sagði
Breivik hafa mjög víðfeðma skil-
greiningu á) og engir femínistar.
Hins vegar vildi hann loka öfga-
frjálslynda inni í gettóum þar sem
þeir gætu ekki haft áhrif á sam-
félagið sjálft.
Ekki langt yfir til óvinanna
Eins og fram kom í upphafi telur
Sørensen að helsta samsvörun hug-
myndar Breivik um hið fullkomna
samfélag sé að finna í dag í Íran
undir klerkastjórninni sem þar ræð-
ur ríkjum. Þótt forsendurnar væru
aðrar væri grunnhugsunin sú sama
og í íslamisma. Hann lauk erindi
sínu á því að það væri því ekki svo
langt á milli Breivik og þeirra sem
hann teldi vera sína helstu óvini.
Með hliðstæðum hætti og það hefði
á ýmsan hátt ekki verið langt á milli
Hitlers og Stalíns á sínum tíma.
Stefnt að hinu fullkomna samfélagi
Grunnhugsunin í alræðisstefnum eins og nasisma, fasisma, kommúnisma og íslamisma sú sama segir
norskur sagnfræðiprófessor Íran er helst hliðstæða við hið fullkomna samfélag Anders Breivik
Morgunblaðið/Eggert
Fundur Sagnfræðiprófessorinn Øystein Sørensen talar á fundinum í gær um
alræðisstefnur og norska fjöldamorðingjann Andres Behring Breivik.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012
Ert þú fædd/fæddur 1952?
gekkst þú í Lækjarskóla og/eða Flensborg?
Ef svarið er já, þá átt þú heima í hópnum okkar.
Við ætlum að hittast í Skútunni 19. október kl. 20.30
og fagna 60 ára afmælisárinu okkar.
Léttar veitingar.
Aðgangur kr. 3.000. - sem greiðast inn á
reikning nr. 0545-14-403712, kt. 230452-2029. Steinunn.
Vinsamlegast greiðið fyrir 10 okt.
Makar velkomnir - sami aðgangseyrir.
Nánari upplýsingar gefa Lilja í síma 6640631,
Steinunn í síma 8972045 og Þórdís í síma 5552469
Hlökkum til að sjá ykkur.
Undirbúningsnefndin.
Madeira
22.–31. okt.
31. okt.- 12. nóv.
Blómaeyjan
Beint flug með Icelandair
VITA er lífið
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
MADEIRA
Madeira er gjarnan kölluð
„Eyja hins eilífa vors“ eða
„Garðurinn fljótandi“.
Þessi stórbrotna,
blómstrandi paradísareyja
er um 600 km vestur af
ströndum Afríku og nýtur
því hitabeltisloftslags
sem eykur enn á
aðdráttarafl hennar.
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.IS
V
IT
60
88
0
08
/1
2
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Alto Lido
Fyrirtakshótel í Lido hótelhverfinu. Fjarlægð frá miðbænum
er um 2½ km og þægileg gönguleið í bæinn. Í sundlaugar-
garðinum eru tvær útilaugar og sundlaugarbar. Hótelið er
einnig með heilsulind, upphitaðri innilaug, kokkteilbar og
veitingastað.
Verð frá 155.100 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Á mann m.v. tvo í tvíbýli í 12 nætur.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með morgunverði
og íslensk fararstjórn.
*Verð án Vildarpunkta 165.100 kr.
Ef bókað er á skrifstofu bætist við
1.500 kr. bókunargjald. Einungis er
hægt að nota Vildarpunkta þegar
bókað er á netinu.
Pestana Casino Park
Mjög gott hótel í göngufæri við miðbæinn í Funchal. Sam-
eiginleg aðstaða er mjög hugguleg, tveir veitingastaðir,
flottar setustofur með líflegum bar og lifandi tónlist á
kvöldin.
Verð frá 183.990 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
Á mann m.v. tvo í tvíbýli í 12 nætur.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með morgunverði
og íslensk fararstjórn.
*Verð án Vildarpunkta 193.990 kr.
Ótal fleiri gistimöguleikar á VITA.is
Uppselt!
Erfitt er að
staðsetja
norska
fjöldamorð-
ingjann And-
ers Behring
Breivik hug-
mynda-
fræðilega,
að mati Øy-
steins Sø-
rensen. Það
sem kemst næst því er að
skilgreina hann sem einhvers
konar nýfasista. Hins vegar
tali hann bæði illa um nýnas-
ista og nasista í stefnuskrá
sinni sem hann setti á netið
áður en hann framdi fjölda-
morð sín í Noregi í júlí á síð-
asta ári.
Sørensen segir Breivik ekki
falla undir hefðbundna skil-
greiningu á þjóðernissinna
enda leggi hann enga sér-
staka áherslu á Noreg, norsku
þjóðina eða norska menningu.
Áhersla hans sé þess í stað á
Evrópu og evrópska menn-
ingu.
Staðsetning
Breiviks erfið
NORSKUR PRÓFESSOR
Anders Behring
Breivik
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Persónuvernd hefur fellt niður mál
manns sem kvartaði yfir því að
skattrannsóknarstjóri hefði notað
merkt umslög utan um bréf sem
honum voru send. Maðurinn taldi að
með merkingunum á umslögunum
væri brotið á sér og öðrum sem
kynnu að sæta rannsókn hjá emb-
ættinu.
Í erindi hans til Persónuverndar
segir að nógu íþyngjandi sé að sæta
rannsókn embættisins þó að það sé
ekki „auglýst rækilega með merkt-
um gögnum“. Með þessu væri hugs-
anlega brotin þagnarskylda embætt-
isins. Taldi hann þetta sérstaklega
slæmt í ljósi þess að rannsóknin
hefði reynst tilhæfulaus.
Ekki ástæða til að aðhafast
Í svari skattarannsóknarstjóra
vegna málsins kom fram að alsiða
væri hjá opinberum stofnunum að
auðkenna bréfsefni sitt. Tilgangur-
inn væri að auðvelda að endursenda
þau ef ekki væri tekið á móti þeim.
Ekki væri hægt að sjá að það yrði til
þess að brjóta þagnarskylduákvæði
á nokkurn hátt.
Niðurstaða Persónuverndar var
sú að ekki lægi fyrir að skattrann-
sóknarstjóri hefði miðlað upplýs-
ingum um einkamálefni mannsins til
þriðja aðila. Því þótti ekki ástæða til
þess að aðhafast frekar í málinu.
Merkt bréfsefni brýt-
ur ekki þagnarskyldu