Morgunblaðið - 22.09.2012, Page 22
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Höfn í Hornafirði
Bygging fjölnotahúss yfir
gervigrasvöllinn, sem er hálfur
knattspyrnuvöllur, gengur vel.
Límtrésbitar eru komnir upp og
byrjað á að klæða grindina. Húsið
er afmælisgjöf Skinneyjar-
Þinganess í tilefni 60 ára afmælis
fyrirtækisins. Húsið á eftir að
verða mikil lyftistöng fyrir íþrótta-
iðkun og tímasetning byggingar-
innar hentar vel fyrir meistara-
flokka Sindra í knattspyrnu.
Drengirnir unnu 3. deildina í ár og
leika í 2. deild að ári og stúlkurnar
náðu sínum besta árangri.
Framhaldsskólinn í Austur-
Skaftafellssýslu fagnar 25 ára af-
mæli í ár. Skólinn eldist vel, út-
skrifuðum stúdentum fjölgar með
árunum og fjölbreyttari náms-
brautir eru í boði. Skólinn eignaðist
sinn fyrsta skólasöng sem var
frumfluttur um daginn en höfundar
lags eru Hornfirðingarnir Karl og
Grétar Örvarssynir en höfundur
texta er Karl Kristensen.
Kaþólski söfnuðurinn á
Hornafirði sem í eru á annað
hundrað meðlimir vígði kapellu 8.
september sl. Kaþólski biskupinn
Mons. Pétur Burcher vígði kapell-
una sem er í húsi sem byggt var
sem hárgreiðslustofa en sómir sér
sérstaklega vel sem kapella og
stendur við aðalgötuna í miðbæ
Hafnar.
Nývígður prestur, séra Gunn-
ar Stígur Reynisson, var settur
prestur í Bjarnanesprestakalli við
messu sl. sunnudag. Það er sér-
staklega ánægjulegt þegar ungt
fólk hefur tækifæri til að koma
heim eftir langskólanám en Gunnar
Stígur er fæddur og uppalinn á
Hornafirði.
Ferðafólki fjölgar alltaf í hér-
aðinu og þótt aukið framboð á
gistirými sé á hverju ári dugir það
ekki til að mæta eftirspurninni yfir
háannatímann. Kvikmyndagerðar-
fólk hefur verið áberandi síðustu
daga en Hornfirðingar eru orðnir
vanir slíkum uppákomum og hættir
að kippa sér upp við það þótt
fræga fólkið sprangi um héraðið.
Árleg tónlistarveisla Horn-
fiska skemmtifélagsins verður um
hverja helgi í október. Þema sýn-
ingarinnar er Eurovision-keppnir
frá upphafi. Þessar sýningar hafa
notið vinsælda og uppselt á allar
sýningar undanfarin ár. Á þessum
sýningum skemmtifélagsins hefur
ungt fólk fengið tækifæri til að
spreyta sig í söng og sviðs-
framkomu.
Gott mannlíf á Hornafirði
Ljósmynd/ Sverrir Aðalsteinsson
Fjölnota Húsið sem verið er að byggja yfir gervigrasvöllinn er á íþróttasvæðinu rétt við skólana.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012
Fulltrúar Fossvogsskóla með Hjólaskálina.
Fossvogsskóli fékk í gær Hjólaskál-
ina sem er viðurkenning fyrir efl-
ingu hjólreiða.
Jón Gnarr, borgarstjóri, afhenti
skálina við upphaf ráðstefnu um
hjólreiðar, sem haldin var í gær.
Nemendur í Fossvogsskóla eru
hvattir til þess að koma í skólann
árið um kring á reiðhjóli og síðustu
þrjú ár hefur verið haldin sérstök
hjólavika í skólanum.
Fossvogsskóli fékk
Hjólaskálina
Í tilefni af 60 ára starfi Lions á Ís-
landi var lokaverkefni afmælisárs-
ins að færa þjóðinni að gjöf tæki
til augnlækninga.
Um er að ræða tæki til aðgerð-
ar innarlega í auganu svo sem í
glerhlaupi og til sjónhimnuað-
gerða svo sem við sjónhimnulos.
Einnig aðgerðir vegna sykursýk-
isskemmda í augnbotni og slysa.
Sjónvernd hefur verið efst á
blaði hjá Lionshreyfingunni í
heiminum gegnum tíðina og má
þar nefna sjónverndarátak sem
hefur fært um 30 milljónum
manns sjónina að nýju, segir í til-
kynningu.
Við sölu fyrstu rauðu fjaðrar-
innar hér á landi var gert stór-
átak í tækjavæðingu augndeildar,
auk þess sem heilsugæslustöðvar
voru búnar tækjum, t.d. með
augnþrýstimælum o.fl. Lions hefur
líka verið í nánu samstarfi við
Blindrafélagið og var einn af aðal-
styrktaraðilum Talgervilsins og
einnig við kaup á blindrahundum,
svo eitthvað sé nefnt.
Afhending Kristinn Kristjánsson, fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi, afhenti tækið að við-
stöddum forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, og forstjóra Landspítalans, Birni Zoëga.
Lionshreyfingin færði Landspítalanum
að gjöf tæki til lækninga á innra auga
Líf styrktarfélag stendur fyrir
dótasöfnun helgina 28.-30. sept-
ember nk. Tilgangur söfnunar-
innar er að efla starf félagsins og
gera því betur kleift að styðja
konur og börn á kvennadeild
Landspítalans.
Í tilkynningu segir að allir for-
eldrar viti, að leikföng barnanna
dugi skammt og safnist jafnvel
fyrir í skúmaskotum og geymslum
þegar fram líða stundir. Börnin
vaxi hratt úr grasi og skilji eftir
sig dót af margvíslegu tagi.
Með söfnun Lífs gefist tækifæri
til að koma þessum leikföngum í
réttar hendur og styðja um leið
mikilvæga starfsemi í þágu
kvenna og barna.
Miðstöð söfnunarinnar verður
að Suðurlandsbraut 24, jarðhæð
(gamla Tal-húsið) og verður húsið
opið fyrir nýjum leikföngum föstu-
daginn 28. september frá kl. 16-20
og laugardaginn 29. september frá
kl. 12-20. Sjálfur dótabasarinn fer
fram sunnudaginn 30. september
frá kl. 11-18.
Gamalt dót Leikföng geta öðlast nýtt líf.
Safna dóti til styrkt-
ar kvennadeild
Austurbrú stendur í næstu viku fyrir ráðstefnu um
skapandi hugsun og uppbyggingu á Austurlandi í
tilefni af 10 ára afmæli Menningarráðs Austur-
lands og til að fagna 10 ára menningarsamstarfi
við Vesterålen í Noregi.
Lögð er áhersla á hönnun og uppbyggingu skap-
andi greina á ráðstefnunni, sem stendur yfir dag-
ana 25.-28. september. Fyrirlestrar verða haldnir
á þremur stöðum: Egilsstöðum, Seyðisfirði og
Stöðvarfirði. Inn á milli gefst fólki m.a. tími til að
upplifa sanna austfirska matarlist og að skoða þá
gerjun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum, að því er segir í til-
kynningu. Þar kemur fram að yfir 100 þátttakendur frá 10 löndum taka
þátt í ráðstefnunni.
Allir fyrirlestrar fara fram á ensku en boðið verður upp á þýðingu. Sýn-
ingar, sem settar verða upp í tengslum við ráðstefnuna, verða opnar al-
menningi í Sláturhúsinu á Egilsstöðum frá 26. september til 6. október.
Austurbrú er sjálfseignarstofnun stofnuð á grunni Þekkingarnets
Austurlands, Þróunarfélags Austurlands, Markaðsstofu Austurlands og
Menningarráðs Austurlands og annast auk þess daglegan rekstur Sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi.
Ráðstefna um uppbyggingu á Austurlandi
Ferðamaður við Lagarfljót.
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur
hefst á sunnudag. Mótið er nú hald-
ið í 79. sinn og er það að þessu sinni
haldið í samstarfi við Tölvutek.
Tefldar verða 9 umferðir og fara
umferðirnar fara fram á sunnudög-
um kl. 14 og á miðvikudögum og
föstudögum kl. 19.30. Skráning fer
fram á heimasíðu T.R., taflfelag.is.
Teflt er í húsnæði Taflfélags
Reykjavíkur að Faxafeni 12. Skák-
mótið er opið öllum en er jafnframt
Meistaramót Taflfélags Reykjavík-
ur. Núverandi skákmeistari T.R. er
Guðmundur Kjartansson, sem er al-
þjóðlegur meistari.
Haustmót TR hefst
á sunnudag
STUTT
Taustir lásasmiðir í yfir 24 ár
Verslun, Laugavegi 168 • www.neyd.is • laugavegur@neyd.is
s: 510 8888 • Opið alla virka daga 8:00-18:00
Bíllyklar
Smíðum og forritum flestar
gerðir bíllykla.
Komdu við í verslun okkar á
Laugavegi 168 og kynntu þér
hvað við höfum að bjóða.
Betra verð
Mikið úrval