Morgunblaðið - 22.09.2012, Síða 24
mjög góð veiði miðað við stöðuna.,“
segir Einar. Veitt var á sex stangir að
jafnaði í ánni en á fjórar stangir hluta
sumars. „Auðvitað var sumarið ekki
eins gott og við vonuðum í upphafi
vertíðar en það sem við vorum
ánægðastir með er að það gekk tals-
vert mikill fiskur, bæði stór og smár.
Núna er talsvert mikill fiskur í ánni
og gangnamenn sem voru að smala
síðustu helgi höfðu samband við mig
og sögðust hafa séð mikið af laxi í
ánni,“ segir Einar. Á milli 480 og 500
stangveiðidagar voru í Haffjarðará í
sumar sem þýðir rúmlega tvo laxa á
stöng á dag og telur Einar það mjög
gott miðað við aðstæður.
Norðurá mikil vonbrigði
Stangveiðifélag Reykjavíkur er
m.a. með Norðurá og Langá og segir
Bjarni Júlíusson formaður að veiðin í
Norðurá hafi valdið miklum von-
brigðum. „Henni var lokað hinn 11.
september með 953 laxa. Það eru
mikil vonbrigði því veiðin hefur verið
að fara yfir 2.000 laxa sumar eftir
sumar undanfarin ár. Ég segi fullum
fetum að þetta sé eitt lélegasta lax-
veiðisumar í Norðurá í seinni tíð. Síð-
ustu veiðihóparnir í ánni veiddu þó
ágætlega, veiðin tók kipp undir lokin
enda var komið gott og mikið vatn og
fiskurinn var farinn að dreifa sér,“
segir Bjarni.
Langá er ennþá opin og þar hafa
veiðst yfir 1.000 fiskar. „Hún virðist
hafa varið sig betur. Það er skrýtið að
líta upp mýrarnar, þarna ertu með
Langá sem hefur jú átt slæmt sumar
en þó er ástandið skárra en í mörgum
öðrum ám. Svo hafa Hítará og Haf-
fjarðará verið að koma prýðilega út.
Allar þessar ár eru lindár, maður
spyr sig hvort það hafi skipt máli
varðandi niðurgöngur á seiðunum í
fyrra,“ segir Bjarni. Veiði í Langá
hefur verið prýðileg í september, jöfn
og góð. Langá verður lokað 27. sept-
ember og segir Bjarni að mesti kraft-
urinn sé nú farinn úr veiðinni þar.
„Það sem brást í bæði Langá og
Norðurá var veiðin um mitt sumar.“
Ástandið batnað í september
Veiðiþjónustan Strengir er m.a.
með Breiðdalsá, Jöklu og Hrútafjarð-
ará. „Það hefur gengið vel í Breið-
dalsá í september eftir að fór að
rigna, oft verið um tíu laxar á dag og
alltaf nýr lax að ganga, gríðarlega
stór og flottur,“ segir Þröstur Elliða-
son, eigandi Strengja, og bætir við að
elstu menn muni vart eftir svo miklu
vatnsleysi fram eftir sumri.
Á Jöklusvæðinu hafa veiðst um 350
laxar. „Ástandið var erfitt framan af
og svo kom yfirfallið í ágúst og trufl-
aði þó að veiði væri áfram í hliðarám.
Við höldum áfram út mánuðinn og
vonumst eftir að veiðin verði í heild
nálægt 400 löxum,“ segir Þröstur.
Í Hrútafjarðará hafa veiðst á bilinu
160-170 laxar og mun heildarveiðin
væntanlega verða í kringum 200 lax-
ar, en í fyrra veiddust 318 laxar í ánni.
„Hrútafjarðaráin hefur tekið við sér
og þar hafa aðstæður verið ágætar í
september fyrir utan óveðrið.“ Sept-
ember virðist því ætla að bjarga því
sem bjargað verður í ánum þremur
að sögn Þrastar.
Veiði heldur tekið við sér í september
Veiðin í Haffjarðará ágæt í sumar miðað við aðstæður Eitt slakasta veiðisumarið afstaðið í
Norðurá Aðstæður í Breiðdalsá batnað mikið í september og um tíu laxar fengist á dag
Sá stóri Róbert Haraldsson veiddi þennan 101 cm hæng í Hofsá hinn 11.
september. Viðureign Róberts og þess stóra tók um 40 mínútur.
Aflahæstu árnar Staðan 19. september 2012
Heimild: www.angling.is
Veiðivatn Veiði
Lokatölur
2011Stangafj.
Lokatölur
2010
Lokatölur
2009
*Lokatölur
Ytri-Rangá og Hólsá 22 3.887 4.961 6.210 10.749
Eystri-Rangá 18 2.690 4.387 6.280 4.229
Miðfjarðará 10 1.545 2.364 4.043 4.004
Selá í Vopnafirði 9 1.444 2.021 2.065 1.993
Haffjarðará 6 1.146* 1.526 1.978 1.622
Langá 12 1.010 1.934 2.235 2.254
Hofsá og Sunnudalsá 10 962 956 1.046 1.143
Norðurá 14 953* 2.134 2.279 2.408
Blanda 16 832* 2.032 2.777 2.413
Elliðaárnar 4 830* 1.150 1.164 880
Þverá - Kjarrá 14 738* 1.825 3.760 2.371
Hítará 4 529 900 824 1.298
Laxá í Kjos 10 494 1.112 1.170 1.404
Haukadalsá 5 475 667 1.174 1.107
Laxá í Leirársveit 7 467 907 1.175 1.266
STANGVEIÐI
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Laxveiði fer nú senn að ljúka og í
mörgum ám er veiði þegar lokið. Víð-
ast hvar er veiði mun minni en und-
anfarin ár, jafnvel áratugi. Hinsvegar
hafa borist fregnir af stórum löxum
sem hafa fengist undanfarið, enda
fara hængarnir oft á ferð á þessum
tíma. Á vefnum votnogveidi.is kemur
fram að nokkrir stórir laxar hafi verið
dregnir á land í ám landsins að und-
anförnu, t.d. 23. punda lax í Breið-
dalsá, um 20 punda lax í Þverá og 101.
cm lax í Hofsá.
Róbert Haraldsson, sá er veiddi
hænginn væna í Hofsá var að vonum
ánægður með fenginn. „Þetta var
frekar óvænt því við vorum á leiðinni í
mat þegar ég leit niður eftir ánni og
sá girnilega beygju og straum. Ég
ákvað að rölta niður eftir og prófa.
Þetta var ómerktur staður sem kom
dálítið á óvart en áin breytir sér svo-
lítið þarna niður frá,“ segir Róbert. Í
kjölfarið beit á og viðureignin tók 40
mínútur. Laxinn er stærsti fiskur
sem Róbert hefur veitt en samtals
náðu hann og félagi hans sex fiskum á
eina stöng í þá þrjá daga sem þeir
voru í Hofsá. „Það voru frekar fáar
stangir þessa þrjá daga eða fjórar.
Það komu svona 2-6 fiskar á land á
dag, þar á meðal einn 85 cm,“ segir
Róbert sem var yfir sig hrifinn af
Hofsá og að hans sögn er um algera
paradís að ræða, kærkomið hafi verið
að komast í ána eftir erfitt veiði-
sumar.
Ánægja með Haffjarðará
Veiði í Haffjarðará lauk 12. sept-
ember og Einar Sigfússon, annar
leigutaka, segist nokkuð ánægður eft-
ir sumarið í ljósi stöðunnar í laxveiði í
heild. „Haffjarðará ásamt Selá og
Hofsá hefur komið hvað best út í
sumar. Það var ekki jafn mikill fiskur
í ánni og undanfarin ár en samt sem
áður töluverður. Við enduðum í 1.146
löxum, við vorum að vísu með 1.550
laxa í fyrra en þrátt fyrir það er það
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
MIKIÐ ÚRVAL AF FLOTTUM
ÚLPUM FYRIR HAUSTIÐ
Kringlunni | s. 512 1766 | www.ntc.is | erum á
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
4
3
2
5
9
568 8000 | borgarleikhus.is
Sigríð
ur Th
orlac
ius,
söng
kona
4 sýn
ingar
að eig
in val
i
Áskri
ftar-
kortið
mitt