Morgunblaðið - 22.09.2012, Qupperneq 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2012
Starfsemi Lands-
bankans hf. í Bretlandi
var samþykkt af „Fin-
ancial Services Autho-
rity“ (FSA), breska
fjármálaeftirlitinu sem
fullgildur meðlimur í
FSCS (breska inni-
stæðutrygging-
arsjóðnum) í júlí 2006
með skírteinisnúmer:
FSA No. 207250 áður
en bankinn hóf Icesave
starfsemina.
Tryggingarsjóðir innistæðueig-
enda og fjárfesta í ESB (og EES)
byggjast allir á sömu tilskipun Evr-
ópusambandsins. Þeir eru sam-
tryggingarsjóðir fjármálastofnana
og ætlað að bera sig sjálfir og rík-
isábyrgð bönnuð.
FSCS er fjármagnaður af fjár-
málaþjónustufyrirtækjunum.
Hverju fyrirtæki sem samþykkt er
af FSA er skylt að greiða árleg ið-
gjöld, sem standa straum af rekstr-
arkostnaði og kostnaði sem sjóð-
urinn greiðir.
Staðfestingar á að Icesave var
tryggt í breska tryggingarkerfinu
eru fjölmargar. 3) Landsbankinn var
meðlimur í breska trygging-
arsjóðnum og greiddi í sjóðinn
vegna innistæðna í Bretlandi með
svonefnda „top-up“ tryggingu, sem
var hugsuð sem viðbótartrygging
frá 20.886 EUR og upp í 50.000 GBP
sem gilti í Bretlandi, sama aðferð
var viðhöfð í Hollandi
Við fall Landsbankans ákváðu
bresk stjórnvöld án samráðs við ís-
lensk yfirvöld að greiða öllum „smá-
söluinnistæðum“ (einstaklingum) út
allar þeirra innistæður eins og rakið
er hér að neðan.
Aðgerðir breska
fjármálaeftirlitsins
Þann 6. október voru sett neyð-
arlög á Íslandi um fjármálastarfsemi
og um leið féllu stóru bankarnir.
Sama dag sendi FSA í Bretlandi til-
kynningu til Landsbankans í Lond-
on um að eftirlitið tæki yfir starf-
semi útibúsins. 4) Þann
3. okt. hafði FSA einnig
sent bréf sem lagði
ýmsar skorður við
starfsemi útibúsins.
Þann 8. okt. sendi FSA
út yfirlýsingu til við-
skiptavina (retail) Ice-
save þar sem þeir eru
fullvissaðir um að fá
allar sínar innistæður,
ekki aðeins 50.000 GBP
hámarkið. 5) Þann 29
okt. 2008 sendi FSA
annað bréf til við-
skiptavina (retail) þar
sem tekið er fram að ríkisstjórnin
hafi ábyrgst að þeir muni fá allar
innistæður sínar til baka.
Starfsemi FSCS.
Í sameiginlegu bréfi 6) FSA og
FSCS í des. 2008 til Samtaka fjár-
málastofnana í Bretlandi upplýsa
þau um þann kostnað sem sam-
tryggingarkerfið hafi tekið á sig
vegna falls nokkurra banka, og þar
áréttar og staðfestir FSA eðli og
hlutverk tryggingarsjóðsins og
ábyrgð hans vegna Icesave inni-
stæðna.
Niðurstaða.
Breski tryggingarsjóðurinn gat
ekki fjármagnað þá 19,7 milljarða
GBP sem (Icesave 1,4 milljarðar
GBP af því) hann varð að greiða
vegna falls banka, þó síðar muni
mest allt endurheimtast úr þrotabú-
um þeirra. Þessi upphæð, 19,7 millj-
arðar GBP, nam 2,06% af 952,7 millj-
arða GBP innistæðum í Bretlandi.
Í bréfinu tilkynnir FSA/FSCS að
iðgjöld í innistæðuflokkinum muni
hækka og nema um 1 milljarði GBP
vegna vaxta og rekstrarkostnaðar
næstu þrjú árin. Allan kostnað um-
fram þennan 1 milljarð mun rík-
issjóður Breta taka á sig sem og all-
ar innistæður umfram 50.000 GBP.
Samkvæmt kerfinu átti breska
ríkið aldrei að koma að þessu máli.
Landsbankinn var tryggður hjá
breska sjóðnum (sama í Hollandi)
fyrir allar upphæðir umfram 20.886
EUR. Við fall Landsbankans átti ís-
lenski tryggingarsjóðurinn (TIF) að
greiða samkvæmt bókstafnum lág-
markið og átti síðan endurkröfu á
þrotabú Landsbankans. Íslenski
tryggingarsjóðurinn (TIF) var ófær
um að greiða slíkar upphæðir í er-
lendum gjaldeyri í þeirri upplausn
sem var haustið 2008.
Frumkvæði breskra stjórnvalda
að greiða allar innistæður ein-
staklinga í Icesave án nokkurs há-
marks var fyrst og fremst pólitísk til
að róa breska innistæðueigendur al-
mennt vegna hræðslu um kerf-
ishrun. Setning hryðjuverkalaga á
íslenska banka í Bretlandi og síðan
kröfur um endurgreiðslur Icesave
voru sýndarmennska til heima-
brúks.
Þessi ákvörðun breskra stjórn-
valda setti allar innistæður, líka und-
ir 20.886 lágmarkinu, til greiðslu í
gegnum FSCS, tryggingarkerfið
breska, og því varð eðlilega leiðin í
framhaldinu að FSCS gerði kröfu á
islenska sjóðinn (TIF), sem aftur
gerir kröfu í þrotabú Landsbankans
fyrir lágmarkinu, en FSCS gerir
kröfur í það sem umfram er. Þannig
er málið í dag og átti alltaf að vera.
Þetta er kjarni málsins og kvörtun
ESA byggð á hæpnum forsendum
m.v. þær aðstæður sem uppi voru.
Það er rannsóknarefni af hverju ís-
lensk stjórnvöld lofuðu í upphafi
(undir pressu í samningum um að-
stoð AGS) og svo aftur og aftur að
semja um, það sem samkvæmt til-
skipuninni var fjármálakerfisins að
greiða. Í pólitísku hræðslukasti
tókst breskum stjórnvöldum svo vel
að gera Íslendinga að blóraböggli og
fela inngrip sitt í málið, að enn er tal-
að um að Ísland skuldi þessum ríkj-
um stórfé.
3) http://www.fscs.org.uk/what-we-cover/
products/investments/eea-top-ups/
4) www.fsa.gov.uk/pubs/final/lands-
banki_6oct08.pdf
www.fsa.gov.uk/pubs/final/lands-
banki_3oct08.pdf
5) http://www.fsa.gov.uk/pages/
consumerinformation/firmnews/2008/
icesavestatementcustomers_.shtml
http://www.fsa.gov.uk/pages/consumer-
information/firmnews/2008/icesavecomp-
ensationupdate_.shtml
6) www.fsa.gov.uk/pubs/other/fscs_le-
vies.pdf
Meðlimagjöld FSCS hækka við fall fjár-
málastofnana:
https://fsahandbook.info/FSA/html/
handbook/FEES/6/Annex1
Af hverju varð Icesave
að pólitísku máli ?
Eftir Sigurbjörn
Svavarsson » Frumkvæði breskra
stjórnvalda að
greiða allar innistæður
einstaklinga í Icesave
án nokkurs hámarks var
fyrst og fremst pólitísk
til að róa breska inni-
stæðueigendur almennt
vegna hræðslu um kerf-
ishrun. Sigurbjörn Svavarsson
Höfundur er félagi í kjosum.is og
Samstaða gegn Icesave.
Gengið verður til
kosninga um tillögur
stjórnlagaráðs að nýrri
stjórnarskrá. Burtséð
frá því að líklegast verð-
ur kosið um að þau drög
verði „lögð til grundvall-
ar“ að nýrri stjórn-
arskrá og fólk myndi þá
kjósa um óskrifað plagg,
þá er víst að alþýða
manna fái að kjósa um
nokkur einstök atriði.
Það er miður að sú grein tillagna
stjórnlagaráðs sem hefur hvað mesta
stjórnskipulega þýðingu hefur ekki
verið nefnd í því samhengi.
Önnur grein núgildandi stjórn-
arskrár segir að dómstólar, ráðherrar
og löggjafi fari hvert með sína grein
ríkisvaldsins. Ekki er gert ráð fyrir að
annar en Alþingi geti sett lög sem hafa
gildi á Íslandi. Það bannar í raun fram-
sal fullveldis.
111. gr. tillagna stjórnlagaráðs leyfir
hinsvegar framsal fullveldis. Svo mats-
kennd skilyrði eru fyrir því framsali í
greininni að ætla má að hún leyfi vald-
höfum að meta það hverju sinni hvort
þau séu uppfyllt. Eða með öðrum orð-
um, hún myndi gera Evrópusam-
bandsaðild stjórnskipulega mögulega,
þó að ákvæðið geri vissulega ráð fyrir
að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um
slíkt.
Eitthvað virðist þetta vefjast fyrir
ákveðnum stjórnlagaráðsmanni. En
einn vísar í nýlegri færslu sinni til þess
að ESS-samningurinn hafi ekki verið
borinn undir þjóðina. Þess vegna telur
hann það misskilning að telja að 111.
gr. tillagna stjórnlagaráðs geti haft
nokkuð með ESB-aðild að gera (að
öðru leyti en að tryggja þjóð-
aratkvæðagreiðslu um aðild).
Sumir virðist leggja að jöfnu ESS-
samkomulagið sem byggist einungis á
þjóðréttarsamningum og fullveld-
isframsal á jafn veigamikinn hátt og
ESB-aðild er. Það er ekkert deiluefni
innan stjórnskipunarréttar að stjórn-
arskrárbreyting sem lýtur að þessu er
forsenda og skilyrði fyrir Evrópusam-
bandsaðild. Eitt er þó rétt að 111. gr.
yrði ekki til þess fallin að
gera það mögulegt að
„lauma“ Íslandi í Evr-
ópusambandið, en hins-
vegar myndi hún gera
Evrópusambandsaðild
mögulega yfirhöfuð.
Það er mat mitt að ein
af meginástæðunum fyr-
ir því að efnt var til
stjórnlagaþings, sem
breyttist svo í skipað ráð,
sé að koma þeim stjórn-
lagabreytingum sem
nauðsynlegar eru fyrir
inngöngu í Evrópusam-
bandið í gegn. Það myndi hvort tvegga
útskýra þrjósku og staðfestu Samfylk-
ingarinnar þegar kemur að málefnum
stjórnlaga. Þá miklu fremur en sér-
stakur áhugi á auðlindaákvæði eða
löngun til þess að leyfa fólki að velja
eða hafna veru Þjóðkirkjunnar í stjórn-
arskránni.
Þeir bræður mínir er land vort
byggja, hvort sem þeir telja búdrýg-
indi eða búsifjar af Evrópusambands-
aðild, hljóta að gera þá kröfu að kjósa
eigi um veigamikil atriði, eigi þá yf-
irhöfuð að kjósa um nokkur. Hundr-
aðasta og ellefta grein tillagna stjórn-
lagaráðs er eflaust með veigameiri
breytingum á stjórnlögum landsins
sem lagðar hafa verið til.
Nú þegar hefur verið skautað
framhjá jafn veigamiklu atriði, þá
munu kosningar um tillögur stjórnlag-
aráðs verða enn meiri bjögun á lýðræð-
inu en skipun þess. Þó þau ákvæði sem
kjósa á um séu ekki algerlega þýðing-
arlaus, má álykta að þau séu einungis
til þess fallin að drepa málum á dreif.
Þ.e.a.s. að dylja kjósendur meginhvat-
ans að baki tilurð stjórnlagaráðs.
Að skauta framhjá
aðalatriðunum
Eftir Brynjólf Svein
Ívarsson
» Grein sem beint er
gegn villandi um-
ræðu um 111. gr. til-
lagna stjórnlagaráðs um
drög að nýrri stjórnar-
skrá.
Brynjólfur Sveinn
Ívarsson
Höfundur er ritari Ísafoldar
og Herjans.
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
564 1500
32 ára
Fasteignasalan
EIGNABORG
Til leigu
Til leigu glæsilegt
411 m2 einbýlishús
á tveimur hæðum
við Skildinganes 50
Reykjavík. Húsið
stendur við
sjávarsíðuna í
Skildingarnesi.
Fyrsta hæð er 140
m2 fyrir utan geymslur sem eru um 80 m2. Aðalhæð þar sem er
inngangur og bílageymslur eru um 251,0 m2. Yfir aðalhæð er um
30 m2 stofa með arni og miklu útsýni. Bifreiðageymslan er um
41 m2 og með rafmagnsopnun. Allar innréttingar í húsinu er
mjög vandaðar, á gólfum er granít og parket. Í húsinu eru fimm
svefnherbergi, fjórar stofur, þrjú baðherbergi. Skápar í forstofu
og herbergjum.
Allar nánari upplýsingar veitir Fasteignasalan Eignaborg. sf.