Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Page 34
Morgunblaðið/Kristinn
GUÐNÝ SVANDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR, DANSKENNARI
Dansari með
ryksugublæti
RYKSUGAN
Fínasta líkamsrækt og þarfaþing þegar maður er
með þriggja ára polla sem eilílft er að maula um
allt. Ég er með ryksugublæti og þykir fátt betra
en að sjá rykið hverfa úr augsýn minni. Hver
hefur sitt, þetta er mitt.
Nilfisk Extreme fæst í Fönix á 69.900 kr.
BÍLL
Hann er nauðsynlegur til að
ferðast á milli staða með þrjú
börn. Ég er svo sem ekki mikil
bílakona en mér finnst rosaleg
gott að vita af góðum bíl sem
dugir okkur og krökkunum til
að komast á milli staða. Kannski
ekki það umhverfisvænasta sem
hægt er að segja frá en ég er
ánægð með hann.
KIA CEE’D er hægt að fá
frá 3.358.777 kr.
BLANDARINN
Hann er notaður á hverjum morgni til að
búa til „boost“. Ég er alltaf að reyna að finna
uppskrftir að góðum drykkjum. Mér finnst
nauðsynlegt að byrja daginn á góðri næringu.
Það hjálpar mér þegar ég er að kenna dans.
Eins eru krakkarnir sjúkir í þessa drykki og
það hjálpar alltaf til þegar vel gengur að
koma matnum ofan í þau áður en farið er út
í skólann og leikskólann á morgnana.
Bosch-blandari fæst í
Einari Farestveit á 19.900 kr.
KAFFIVÉLIN
Kaffivélin sem ég fékk í brúðkaupsgjöf býr til un-
aðslegt kaffi og hún er notuð á hverjum degi. Litli
bróðir minn er ákafur kaffiaðdáandi og hann er
farinn að venja komur sínar til mín mun oftar eftir
að við fengum vélina. Enda er kaffið mjög gott.
Philips Saeco Syntia kaffivél fæst í Einari
Farestveit og kostar 149.900 kr.
TÖLVAN
Ég nota tölvuna svolítið mikið. Ég viðurkenni það að einstaka sinnum villist ég inn á Fa-
cebook, en svo er ég oft að leika mér í hinum og þessum forritum. Til að mynda hönn-
unarforriti sem á hug minn allan þessa dagana. Þar er meðal annars hægt að hanna stof-
una sína eða fá grunnhugmyndir að málverkum sem mig langar að prófa að mála.
Mac Book Air 11" 64 GB fæst í Epli á 169.900 kr.
GUÐNÝ SVANDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR DANSKENNARI ER ÖNNUM
KAFIN MEÐ ÞRJÚ BÖRN EN EITT AF ÁNÆGJUEFNUM HENNAR Í
LÍFINU ER AÐ RYKSUGA. GUÐNÝ STARFAR HJÁ DANSRÆKT JSB
OG HAFA ÓFÁR KONUR FENGIÐ LEIÐSÖGN HJÁ GUÐNÝJU Í ÞAU
16 ÁR SEM HÚN HEFUR STARFAÐ HJÁ FYRIRTÆKINU MEÐ HLÉUM.
GUÐNÝ SEGIST EKKI MIKIL GRÆJUKONA EN EIGINMAÐURINN SÉ
ÞAÐ OG SVO HAFI ÞAU FENGIÐ MIKIÐ AF FALLEGUM GRÆJUM
ÞEGAR ÞAU GIFTU SIG SÍÐASTLIÐIÐ VOR.
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is
*Græjur og tækiLítil áhöld virðast um að iPhone 5 sé betri en forverinn þótt kortaforritið þyki misheppnað »36