Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Page 42
*Fjármál heimilannaEiga stóran fjölskyldubíl en spara með því að skipta úr bensíni yfir í metan
V
ið erum kannski ekki
sparsamasta fólk í heimi
en við reynum að vera
hagsýn og gera sem
mest sjálf,“ segir Svava Björk Ás-
geirsdóttir, kennari og nemi, um
heimilisreksturinn í Víðigerði í Mos-
fellsdal. Býr Svava þar ásamt manni
sínum, Kristmundi Antoni Jónssyni,
og þremur ungum börnum þeirra.
Landið í kringum húsið nýtir fjöl-
skyldan m.a. til ræktunar auk þess
sem 12 landnámshænur ásamt ein-
um hana hafa þar aðstöðu.
„Við erum til dæmis með kart-
öflur, gulrætur, rófur, jarðarber,
klettakál og spínat,“ segir húsmóð-
irin. „Þá reyni ég líka að vera dug-
leg að baka um helgar, sérstaklega
sætabrauð, en við förum afar sjald-
an í bakarí,“ bætir hún við. Land-
námshænur heimilisins hafa þar
reynst mikil búbót. „Þær gefa vana-
lega af sér um 8 egg á dag,“ segir
hún og mælir svo sannarlega með
búskapnum séu til þess aðstæður.
Til dæmis var allur jólabakstur síð-
ustu jóla bakaður með heima-
orpnum eggjum.
Varðandi almenn innkaup segist
Svava hafa ákveðin leiðarljós í huga
þar eins og títt er með ungt fjöl-
skyldufólk. „Ég reyni að ákveða mat-
seðil vikunnar nokkurn veginn fyrir
fram og geri innkaupalista sem ég
fer yfir,“ segir hún. Reynir hún að
forðast allan óþarfa, sem á til að
safnast fyrir í skápunum. „Við kaup-
um frekar betri fæðu og hreinni en
reynum að búa sem flest til sjálf frá
grunni. Við höfum til dæmis rekið
okkur á að það borgar sig ekki alltaf
að kaupa allra ódýrustu vöruna þar
sem hún vill oft endast skemur en
önnur aðeins dýrari,“ segir hún og
nefnir eldhúsrúllur og salernispappír
þar sem dæmi. Einu sinni í viku er
síðan „klárað-úr -ísskápnum-dagur“
hjá fjölskyldunni þar sem þau reyna
að nota það sem til er í skápnum og
er að nálgast síðasta söludag.
Þá nefnir Svava að fjölskyldu-
bíllinn í Víðigerði sé breyttur
Ford-jeppi sem gengur fyrir met-
angasi. Auk þess að sjá fjölskyld-
unni fyrir nægu plássi skemmir ekki
fyrir heimilismönnum að hann geng-
ur fyrir vistvænni orku auk þess
sem rúmmetrinn af metangasi er
töluvert ódýrari en bensínlítrinn.
Einu sinni í viku er „klára úr ísskápnum-dagur“ hjá fjölskyldunni í Víðigerði, sem hefur reynst vel. Hér eru Svava
og Kristmundur með tvíburana Emmu Björk og Ásgeir Anton í fanginu og heimasætan Bríet Björk er í miðið.
Morgunblaðið/Kristinn
HAGSÝNT HEIMILI Í MOSFELLSDAL
Landnáms-
hænur og
metanbíll
FJÖLBREYTT HEIMARÆKTUN, LANDNÁMSHÆNUR
OG METANBÍLL; ALLT STUÐLAR ÞETTA AÐ HAGKVÆMNI Í
HEIMILISHALDINU HJÁ SVÖVU OG KRISTMUNDI.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
TRYGGINGAR Kannaðu hjá tryggingafélaginu þínu a.m.k. árlega hvort þér
bjóðist ekki betri kjör. Getur það margborgað sig, hafirðu verið skilvís greið-
andi.
INNKAUP Handhægt er að fylgjast með tilboðum matvöruverslana sem og
hvar ódýrasta bensínið er að finna hverju sinni á vefsíðunum matarkarfan.is
og gsmbensin.is.
RAFMAGN Engin ástæða er til að hafa húsið eða íbúðina alla uppljómaða
þegar aðeins er verið í fáum herbergjum. Hafðu fyrir venju að slökkva ljósið á
eftir þér sé herbergið sem er yfirgefið tómt.
ÞRIF Tannkrem er til margra hluta nytsamlegt annarra
en að þrífa einungis tennur. Er einnig hægt að nota
það til að þrífa geisladiska auk þess sem það
gefst vel á smærri brunasár, svo notagildið
er margþætt.
BLÓMARÆKT Vatnið af soðnu kartöflun-
um er ríkt að næringarefnum og getur því
virkað sem besti áburður á stofublómin.
ÞRIF Dagblöð henta vel til að pússa rúður og
glugga heimila og jafnast þar á við besta gluggalög.
SPARNAÐARRÁÐ HEIMILANNA
Eftir því sem olíuverð helst hátt hef-
ur þeim fjölgað sem hafa látið breyta
bílum sínum svo að þeir gangi einnig
fyrir metangasi. Er gasið bæði ódýr-
ara per einingu en olía og orkan um-
hverfisvæn. Þá greiða eigendur met-
anbíla lægri bifreiðagjöld.
Kostnaðarsamt er að breyta bíl
svo að hann geti einnig gengið fyrir
metani en á bilinu 400-700 þúsund
krónur kostar að ráðast í slíka að-
gerð. Sparnaðurinn sem af hlýst get-
ur hins vegar verið tiltölulega fljótur
að vega þar upp á móti, ekki síst í til-
felli stærri og þyngri bifreiða sem
ekið er mikið og eyða miklu bensíni.
Sjá nánar á vefsíðunni www.metan.is
AÐRIR ORKUGJAFAR
Metangas
getur verið
málið
M.v. 13 l/100 km í langkeyrslu, metanverð 149 kr. /Nm3 og bensínverð 257 kr./l.
Orkuinnihald í hverjum Nm3 af metani jafngildir 1,12 l. af 95 oktana bensíni.
Bílar geta eytt allt að 6% minna eftir breytingu, og er gert ráð fyrir því í dæminu.
Hvað kostar að keyra norður?
Eldsneytiskostnaður frá Reykjavík til Akureyrar
á Ford 150, 8 cyl., fyrir og eftir metanbreytingu
388 km
Eftir
breytingu
6.309 kr.
Fyrir
breytingu:
12.963 kr.
Reykjavík
Akureyri