Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2012, Blaðsíða 57
30. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Spennusaga eftir Evu Joly
kemur út hjá Skruddu 20.
október. Bókin nefnist
Augu Líru og Eva Joly
skrifaði hana ásamt Judith
Perrignon, blaðakonu á Li-
beration. Báðar hafa þær
kynnst skuggahliðum al-
þjóðlega fjármálaheimsins betur en flestir
aðrir og sú reynsla skilar sér með ágætum í
bókinni. Ein af aðalpersónum verksins er
blaðakonan Líra frá Sankti-Pétursborg sem
heldur til Lundúna til að rannska vafasöm
viðskipti rússnesks athafnamanns. Þeir sem
lesið hafa bókina segja að hún sé bæði vel
fléttuð og spennandi.
Friðrik Rafnsson þýðir bókina. Eva Joly
er væntanleg til landsins til að kynna bókina
og árita hana.
Eva Joly
SPENNUSAGA EFTIR
EVU JOLY KEMUR ÚT
Í NÆSTA MÁNUÐI
Eldvitnið er ný bók eftir Lars Kepler sem
er höfundanafn hjónanna Alexanders og Alex-
öndru. Þetta er þriðja bók þeirra. Fyrsta bókin,
Dávaldurinn, var gríðarlega vinsæl og er nú
búið að gera samnefnda kvikmynd eftir bók-
inni. Kvikmyndin hefur verið valin sem framlag
Svíþjóðar til Óskarsverðlaunanna en leikstjór-
inn er hinn frægi Lasse Hallström. Kvik-
myndin verður frumsýnd á Íslandi á næsta ári.
DÁVALDURINN
Í BÍÓ
Íslensk ungmenni sem
syrgja að fá ekki fleiri
Hungurleika, nú þegar
þríleiknum vinsæla er lok-
ið, geta tekið gleði sína
því von er á bók í svip-
uðum stíl. Hringurinn
eftir Söru B. Elfgren og
Mats Strandberg er
upphaf þríleiks sem hefur slegið rækilega í
gegn. Bókin kemur út hjá Bjarti innan
skamms. Sagan fjallar um yfirvofandi
heimsendi og aðalsöguhetjur verksins eru
stúlkur sem eru tilbúnar að ganga mjög
langt til að bjarga sjálfum sér og heim-
inum.
Útgáfurétturinn hefur verið seldur á yfir
tuttugu tungumál og í heimalandinu hefur
bókin selst í um 200.000 eintökum.
SÆNSKIR
HUNGURLEIKAR
VÆNTANLEGIR
Mats og Sara
Friðrik Rafnsson er iðinn
þýðandi. Hann þýðir ekki
einungis skáldsöguna Kortið
og landið eftir Michel
Houellebecq og spennu-
sögu eftir Evu Joly heldur
einnig bókina Mótmælið
öll! eftir hinn 95 ára gamla
Stéphane Hessel. Bókin
er hvatning og ákall til lesenda um að mót-
mæla hástöfum óréttlæti heimsins. Þetta litla
en áhrifaríka kver, 48 blaðsíður, kom fyrst út í
Frakklandi árið 2010 og hefur komið út í um
fjörutíu löndum og selst í milljónum eintaka.
Hessel var virkur í frönsku andspyrnuhreyf-
ingunni og sat í fangabúðum nasista. Hann tók
virkan þátt í að skrifa Mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna og starfaði sem sendi-
herra.
ÁHRIFARÍKT RIT
KOMIÐ ÚT Á ÍS-
LENSKU
Friðrik
Rafnsson
Sagan af Harold Frey sem
leggur upp í langa göngu til
að bjarga lífi vinkonu sinnar
er bæði heillandi og ang-
urvær. Það er enginn byrj-
endabragur á þessari fyrstu
skáldsögu Rachel Joyce sem
skrifar seiðandi texta sem
hrífur lesandann með sér.
Harold Frey er persóna sem allir lesendur hljóta
að vilja fylgja á langri og sögulegri göngu hans.
Þetta er einstaklega vel heppnað verk með fal-
legum boðskap um að hægt sé að hefja nýtt líf.
Heillandi saga um hinn
einstaka Harold Frey
SKÁLDSAGA FYRIR FAGURKERA
Glæpir og
refsing
GÓÐAR SPENNUSÖGUR
SPENNUSÖGUR ROKSELJAST ÞESSI MISSERIN. Á MARK-
AÐNUM ERU NOKKRAR SPENNUSÖGUR SEM HAFA
HLOTIÐ VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR OG LOF
GAGNRÝNENDA. ÞETTA ERU BÆKUR SEM UNNENDUR
SPENNUSAGNA ÆTTU EKKI AÐ LÁTA FRAMHJÁ SÉR FARA.
Norski yfirlögregluþjónninn Lier Horst er
höfundur sex glæpasagna þar sem lögreg-
umaðurinn William Wisting er í aðal-
hlutverki. Norskir bóksalar völdu Vetr-
arlokun bók ársins 2011, en þar þarf
Wisting að leysa hrottalega morðgátu og
leikurinn berst allt til Litháens. Bókin ein-
kennist ekki af mikilli spennu en hún er
skrifuð af öryggi og fagmennsku og óhætt
að segja að starfsreynsla höfundar innan lögreglunnar nýtist vel í lýsingum á
samtímaglæpum. Norskir bóksalar völdu Vetrarlokun bók ársins 2011.
Bók ársins
hjá norskum
bóksölum
Flöskuskeyti frá Per er sennilega besta bók Jussis
Adler-Olsens, en fyrir hana fékk hann Glerlykilinn
árið 2010. Mikill hraði og gríðarleg spenna ein-
kenna verkið en á einum stað eru fimm mann-
eskjur, tvö börn og þrír fullorðnir, annaðhvort
látnar eða í stórkostlegri lífshættu. Hlutirnir gerast
ekki miklu betri í spennubókum. Spennusagnaunn-
endur fagna hverri nýrri bók frá Jussi Adler-Olsen.
Hinn danski Jussi
bregst ekki
Jussi Adler-Olsen
* Listamaður sem staðhæfir að hann sémisskilinn er næstum alltaf lélegur lista-maður sem hefur verið skilinn til fulls. Jo Nesbø BÓKSALA 19.-25. SEPTEMBER
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Pennanum-Eymundssyni.
1 Létta leiðinÁsgeir Ólafsson
2 Fimmtíu gráir skuggar - kiljaE.L. James
3 Hermiskaði - kiljaSuzanne Collins
4 Eldað með Ebbu í LatabæPure Ebba
5 Flöskuskeyti frá P - kiljaJussi Adler Olsen
6 Iceland Small World - small ed.Sigurgeir Sigurjónsson
7 Jesúsa - kiljaElena Poniatowska
8 Hin ótrúlega pílagrímsgangaHarolds Fry
Rachel Joyce
9 Leyndarmál englannaMärtha Louise prinsessa / Elisabeth
Nordeng
10 Hungurleikarnir - kiljaSuzanne Collins
Kiljur
1 Fimmtíu gráir skuggarE.L. James
2 Flöskuskeyti frá PJussi Adler Olsen
3 Hin ótrúlega pílagrímsgangaRachel Joyce
4 Kona tígursinsTéa Obreht
5 Englar alheimsinsEinar Már Guðmundsson
6 Að endinguJulian Barnes
7 Forsetinn er horfinnAnne Holt
8 FantasíurHildur Sverrisdóttir ritst.
9 NæturóskinAnne B. Ragde
10 DjöflastjarnanJo Nesboø
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Þangað vill auðurinn,
sem hann er fyrir.
Tólf ára drengur skrifast á
við raðmorðingja og af-
leiðingarnar verða af-
drifaríkar. Einsemd
drengsins er lýst á áhrifa-
mikinn hátt og sálsýki
morðingjans er óhugn-
anleg. Þetta er vönduð,
vel skrifuð og um margt óvenjuleg verðlauna-
spennusaga sem óhætt er að mæla með. Lokakaflarnir
eru æsispennandi.
Drengurinn
og morðing-
inn