Morgunblaðið - 13.10.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Tjón sauðfjárbænda eftir óveðrið á
Norðurlandi í byrjun september er
enn að koma í ljós og talið mun meira
en flestir gerðu sér grein fyrir í
fyrstu. Í Þingeyjarsýslum og Eyja-
firði er talið að um 3.000 fjár hafi
drepist en tölur fyrir Skagafjörð og
Húnavatnssýslur
liggja ekki endan-
lega fyrir þar sem
enn er verið að
leita og meta tjón-
ið. Það er þó síst
minna vestan
Tröllaskagans en
austan og ljóst að
bændur á Norður-
landi hafa tapað
þúsundum fjár.
Eru dæmi um að
bændur hafi misst allt að þriðjungi
stofnsins og algengt hlutfall 10-20%.
„Þetta er gríðarlegt tjón og tekju-
hliðin alveg farin þetta árið,“ segir
Guðmundur Jónsson, sauðfjárbóndi í
Fagraneskoti í Aðaldal, en hann vant-
ar enn um 120 fjár, bæði ær og lömb.
Alls var hann með um 1.000 fjár á
fjalli. „Verst er að mikið af þessu sem
við höfum fundið er svo lélegt og ekki
sláturtækt. Því verður ekki lógað í
haust, maður er með féð í hálfgerðri
gjörgæslu og það þarf mikið fóður,“
segir Guðmundur og bætir við að
tjónið felist ekki eingöngu í sauðfénu
heldur einnig vegna girðinga og
kostnaðar við leitina. Olíukostnaður
vegur þar þungt sem og tapaðar
vinnustundir, þar sem bændur hafa
ekki getað sinnt annarri vinnu und-
anfarnar vikur.
„Þetta hefur verið gríðarleg vinna
hvern einasta dag, við höfum verið
keyrandi um á bílum, fjórhjólum og
sleðum við slæmar aðstæður og mörg
ökutækin hafa skemmst. Menn eru að
bögglast við að gera við bílana á nótt-
unni til að geta komist áfram á þeim
daginn eftir. Það hefur ekki verið
mikið um svefn hjá manni,“ segir
Guðmundur.
Rætt var við hann í gær og átti
hann von á að mannskapur fengist um
helgina til að kemba Þeistareykja-
svæðið og Reykjaheiði enn betur.
„Vonin um að finna féð lifandi fer
dvínandi en á meðan menn vita af fé á
lífi eru þeir órólegir.“
Guðmundur fagnar því framtaki að
setja af stað landssöfnun því ljóst
væri að bjargráðasjóður myndi ekki
dekka tjón bænda að öllu leyti.
„Elstu menn muna ekki svona
áhlaup eins og gekk hérna yfir. Það
eru sögur um svipað veður hér á þess-
um árstíma árið 1878 en þá fórst ekki
eins mikið af fé. Vonandi þurfum við
aldrei að upplifa þetta aftur,“ segir
Guðmundur í Fagraneskoti.
Aldrei formlegt útkall
Sem fyrr segir urðu bændur um
nær allt Norðurland fyrir tjóni. Mest-
ur var viðbúnaðurinn í Þingeyjar-
sýslum í fyrstu en almannavarnakerf-
ið fór mun seinna í gang í Skagafirði
og Húnavatnssýslum. Fundur var
haldinn í vikunni hjá almannavarna-
nefnd Skagafjarðar með fjallskila-
stjórum þar sem farið var yfir stöðu
mála.
Atli Már Traustason, bóndi á Syðri-
Hofdölum í Skagafirði, segir fundinn
hafa verið gagnlegan og vonandi verði
kerfið fljótvirkara og skilvirkara næst
þegar svona hamfarir verða.
Að hans sögn var ekki hringt í
bændur á svæðinu fyrr en 16 dögum
eftir að óveðrið gekk yfir og spurt
hvort þeir þyrftu á aðstoð að halda.
„Við vissum ekki almennilega í fyrstu
hvert við áttum að snúa okkur eða
hverjir væru í almannavarnanefnd.
Við gerðum okkur heldur ekki grein
fyrir að rétta boðleiðin væri að
hringja í 112 þegar leita þyrfti að roll-
um. Við hringdum í nokkra björgun-
arsveitarmenn sem komu og hjálpuðu
okkur en það kom aldrei neitt form-
legt útkall,“ segir Atli Már.
Sjálfur hefur hann tapað um 170
fjár, þar af eru um 140 lömb. Er þetta
um 10% af öllu fénu. Hlutfallslega
hafa nokkrir bændur í Lýtingsstaða-
hreppi orðið fyrir enn meira tjóni. Atli
Már segir mikið um að ær vanti í hóp-
inn og því sé hætt við að bændur missi
dampinn í fjárbúskapnum næstu tvö
árin eða svo.
Hann segir fjártjónið ekki aðeins
hafa verið á afréttum, fé hafi einnig
fundist í skurðum í heimalöndum
bænda, illa á sig komið eða dautt.
Tjón sauðfjárbænda gríðarlegt
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjártjón Guðmundur Jónsson, sauðfjárbóndi í Fagraneskoti í Aðaldal, hefur síðasta mánuðinn unnið dag og nótt við
að endurheimta fé sitt. Hann hefur líklega misst um 120 fjár af um 1.000. Tjón bænda nyrðra er enn að koma í ljós.
Sauðfjárbændur á Norðurlandi hafa misst nokkur þúsund fjár Tjónið meira en flestir reiknuðu
með í fyrstu Mikill kostnaður vegna leitarstarfs Ökutæki skemmst og gert við þau á nóttunni
Eftirmál óveðursins
» Óveðrið sem gekk yfir Norð-
urland í byrjun september sl.
hefur tekið sinn toll.
» Snjó kyngdi niður á skömm-
um tíma og elstu menn muna
varla annað eins fannfergi á
þessum árstíma.
» Sauðfjárbændur á Norður-
landi, allt frá Húnavatnssýslum
austur í Kelduhverfi, misstu
þúsundir fjár.
» Landssöfnun til styrkar
sauðfjárbændum var hleypt af
stokkunum á Sauðárkróki á
fimmtudag í tengslum við
Bændadaga í Skagafirði.
» Reikningsnúmer söfnunar-
innar er 0161-15-380370, kt.
630885-1409.
Atli Már
Traustason
Lífeyrissparnaður
með góða ávöxtun
Landsbankinn býður fjölbreyttar leiðir í lífeyrissparnaði og
er traustur bakhjarl. Íslenski lífeyrissjóðurinn og Lífeyrisbók
Landsbankans hafa skilað góðri ávöxtun undanfarin ár.