Morgunblaðið - 13.10.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
O
kkur fannst vera komið
fullmikið af krimmum,
stríði og ofbeldi í bóka-
útgáfu. Í sjónvarps-
þáttum og kvikmynd-
um almennt eru dráp, limlestingar
og grimmd, svo okkur langaði í eitt-
hvað mannlegra og mýkra. Krimmar
geta verið alveg ágætir en mín til-
finning er að fólk vilji stundum geta
gefið einhverjum bók án þess að eiga
á hættu að viðtakandanum fari að
líða illa vegna innihaldsins,“ segir
Herdís Hallvarðsdóttir, annar eig-
andi nýrrar bókaútgáfu sem heitir
Lesbók ehf., en þar verður áhersla á
rómantískar bækur. „Eftir að hafa
skoðað íslenska bókamarkaðinn
fannst okkur vanta fleiri róm-
antískar bækur í háum gæðaflokki
og við erum sannfærð um að þetta
hafi verið rétt athugað.
Hljóðbækurnar verða áfram
Það er alltaf gaman að gera
eitthvað nýtt, en við Gísli Helgason
maðurinn minn höfum rekið hljóð-
bókaútgáfu í áraraðir. Núna viljum
við víkka út starfsemina og nýta þá
Okkur langaði í
mannlegra og mýkra
Þeim fannst vanta fleiri rómantískar bækur í háum gæðaflokki á íslenska bóka-
markaðinum og ákváðu að gera sjálf eitthvað í því. Þau stofnuðu því bókaútgáf-
una Lesbók sem gefur einvörðungu út bækur um ástir, rómantík og erótík.
Morgunblaðið/RAX
Stolt Herdís segist vera afar stolt af útgáfu rómantískra bóka.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Á morgun sunnudag sýnir Möguleik-
húsið barnaleikritið Prumpuhólinn í
Gerðubergi kl 14. Prumpuhóllinn er
eftir Þorvald Þorsteinsson og segir
þar frá Hulda sem er nýflutt úr borg-
inni og upp í sveit. Þegar hún fer í
feluleik með Halla bróður sínum vill
ekki betur til en svo að hún villist og
ratar ekki heim. Henni líst ekkert á
þetta umhverfi þar sem allt er fram-
andi; lyktin er náttúrufýla, grasið
stingur og það eru pöddur út um allt.
Við sérkennilegan hól sem gefur
frá sér dularfull hljóð hittir hún
Steina. Hann er kátur tröllastrákur í
skrítnum fötum sem segir Huldu að
hóllinn sé í raun pabbi sinn. Hann
hafi lent í sólargeisla og orðið að
steini eftir að hafa borðað rosalega
mikinn hundasúrugraut. En hunda-
súrugrauturinn varð ekki að steini.
Ónei, hann ólgar enn svo drynur í
hólnum. Og fýlan … maður lifandi!
Leikarar eru Pétur Eggerz og Anna
Brynja Baldursdóttir og tónlistin er
eftir Guðna Franzson.
Sýningin er ætluð áhorfendum á
aldrinum 2ja til 10 ára og tekur 45
mínútur í flutningi. Tekið er á móti
miðapöntunum í s. 8971813 og á
moguleikhusid@moguleikhusid.is
Leiksýning fyrir börnin
Hundasúru-
grautur í
Prumpuhól
Það er ævinlega gaman að koma við í
Gamla bænum Laufási, sérstaklega
þegar eitthvað er þar um að vera. Í
dag verður annasamt í Laufási á svo-
kölluðum hauststarfsdegi. Frá kl.
13.30-16 munu félagar úr Þjóðhátta-
félagi Handraðans klæða sig upp, sýna
og vinna ýmis störf sem unnin voru á
tímum torfbæjanna, t.d. tóvinnu og
sláturgerð ásamt mörgu öðru for-
vitnilegu. Í tilkynningu segir að með
þessum hætti sé verið að viðhalda
þekkingu sem tilheyrði gamla sveita-
samfélaginu áður fyrr. Forvitnilegur
viðburður fyrir fjölskyldur þar sem
auðvelt er að brúa bil kynslóða. Vert er
að benda á að veitingasalan í Kaffi
Laufási er opin í tilefni dagsins.
Gangnamannadrápa
Í kvöld verður svo Gangnavaka kl.
20.30 í þjónustuhúsi Laufáss, Kaffi
Laufási. Svipmyndir verða sýndar úr
göngum og réttum, lýst verður göng-
um í hinu fallega landsvæði Fjörðum
og Látraströnd, fjárglæfrasögur af
svæðinu verða sagðar og söngur
gangnamanna ásamt gangna-
mannadrápu mun óma um sveitir.
Forvitnileg málverk af bæjunum
sem eitt sinn prýddu Fjörðurnar og
Látraströndina mynda umgjörðina um
þann fríða flokk manna sem stíga á
svið í kvöld sem og áheyrendur þeirra.
Fyrir þá sem ekki vita hvað göngur og
réttir eru eða þekkja ekki orðatiltækin
og réttu hugtökin sem tengd eru
göngum og réttum, er þetta kjörið
tækifæri til að bæta úr því.
Gangnamannakaffi að hætti Kaffi
Laufáss og fjöldasöngur verða svo í
lok þessarar skemmtilegu dagskrár í
Laufási. Allir hjartanlega velkomnir og
enginn aðgangseyrir.
Haustannir í gamla bænum Laufási
Laufás Gamli bærinn er einstaklega fallegur bæði að utan og innan.
Söngur gangnamanna, fjár-
glæfrasögur og sláturgerð
Í dag, laugardag, verður efnt til mál-
þings um barnaheimspeki í Verzl-
unarskóla Íslands, en þar munu
reyndir heimspekikennarar leggja
fram hugleiðingar um heimspeki og
heimspekikennslu sem þátttakendur
geta síðan tekið til umræðu.
Hver er heimspekin í barnaheim-
spekinni? er yfirskrift þingsins og
meðal þess sem velt verður upp er
lýðræði í leikskólum, hlutverk heim-
spekinnar í lýðræðis-, mannréttinda-
og fordómafræðslu, örlítið af góðu
hugferði, mikilvægi heimspekilegs
rýmis innan skólanna, ábyrgð kenn-
ara í heimspekilegri samræðu með
börnum og hvort við getum treyst
innsæinu.
Málþingið er í Græna salnum í
Verzlunarskólanum og verður frá kl.
10-15. Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn. Þeir sem ætla að mæta eru
vinsamlegast beðnir um að skrá sig í
gegnum netfangið heimspekikenn-
arar@gmail.com svo hægt sé að
áætla þær léttu veitingar sem boðið
verður upp á í matarhléinu.
Málþing um barnaheimspeki í dag
Hver er heimspekin
í barnaheimspekinni?
Margir hér á landi æfa kóresku bar-
dagalistina taekwondo en hún er þjóð-
aríþrótt Suður-Kóreu og byggist á alda
gamalli sjálfsvarnarlist sem Kóreubúar
fundu upp fyrir um tvö þúsund árum.
Nú er þetta íþrótt þar sem keppt er í
formi, bardaga og broti.
Á heimasíðu Taekwondosambands
Íslands, www.tki.is, má sjá að fjöl-
margt er í boði fyrir þá sem hafa áhuga
á þessari íþrótt. Þar kemur m.a. fram
að nú um helgina verður haldið sjálfs-
varnarnámskeið með Henrik Frost, en
hann er med 6. dan í taekwondo og er
kennari dönsku lífvarðanna. Hann er
með áratuga reynslu í sjálfsvörn. Þetta
er opinn viðburður fyrir börn og full-
orðna, konur og karla. Námskeiðið
verður hjá taekwondodeild Ármanns í
Laugardal. Áhugasamir geta nálgast
nánari upplýsingar á vefsíðunni.
Vefsíðan www.tki.is
Morgunblaðið/Kristinn
Taekwondo Frábær íþrótt fyrir alla.
Danskur kenn-
ari um helgina