Morgunblaðið - 13.10.2012, Qupperneq 11
krafta sem eru hér innanhúss. Út-
gáfa rómantísku bókanna er hrein
viðbót við hljóðbækurnar, en útgáfa
hljóðbóka verður öflug áfram því
markaðurinn fer stækkandi. Við höf-
um líka gefið út tónlist meðfram
hljóðbókunum og ljósmyndabækur
fyrir ferðamenn. Núna ætlum við á
innlendan markað með prentaðar
bækur.“
Gáski, léttlyndi og ást
Allar fyrstu bækur Lesbókar
eru þýddar erlendar skáldsögur.
„Það er einskær tilviljun að allar
bækurnar sem búið er að semja um
eru skrifaðar af konum sem flestar
hafa náð fótfestu í hinum stóra heimi
og verið gefnar út í tuttugu til þrjá-
tíu löndum. Fyrsta bókin okkar, Ég
fremur en þú, eftir Jojo Moyes, segir
frá manni í hjólastól sem fær aðstoð-
arkonu sem breytir lífi hans með
gáska, frumleika, léttlyndi og ást.
Þetta er bók sem skilur mikið eftir
sig. Ellen Feldman er bandarískur
verðlaunahöfundur sem hefur verið
tilnefnd til Orange-verðlaunanna.
Bókin hennar heitir Næstum eins og
ástin, og kemur út á þriðjudaginn.
Þetta er vel skrifuð ástarsaga sem
gerist á árunum 1941 til 1964 í
smábæ í Bandaríkjunum og fjallar
um ungu konurnar sem urðu eftir
heima þegar mennirnir voru sendir í
stríð, um erfiðleikana og raunirnar,
ástina og vonina.“
Líka fyrir karlmenn
Herdís segir að bækurnar
þeirra séu ekki svokallaðar skvísu-
bækur þótt þær séu vissulega mið-
aðar aðeins meira við kvenpening-
inn. „Ég trúi því að þessar bækur
geti líka höfðað til karlmanna, því
rómantík er fyrir allt fólk og þetta er
mjög mannlegt efni sem fjallað er
um í þessum bókum. Til dæmis er
bókin sem kemur frá Spáni, Beðið
eftir Robert Capa, byggð á sann-
sögulegum atburðum og gerist í
borgarastríðinu. Hún segir frá ung-
um manni, ljósmyndara, og ungri
konu sem er algjör nagli og fer inn á
yfirráðasvæði karlanna. Þau lifa og
hrærast í hættum stríðsins og þetta
er því spennusaga með innfléttaðri
rómantík.“
Bókin Þú afhjúpar mig, eftir
Sylviu Day, er fyrsta bókin í Cross-
fire-trílógíunni en hún er erótísk ást-
arsaga sem er ofarlega á metsölu-
listum um víða veröld. „Sylvia er
mest seldi rómantíski höfundurinn í
Bandaríkjunum. Í gagnrýni um
þessa bók má sjá að hún fær mun
betri umsögn en Fifty Shades of
Gray. Okkur voru að berast þær
fréttir að önnur bókin í ritröðinni,
sem heitir á ensku Reflected by You,
er núna í efsta sæti metsölulista
New York Times yfir rafbækur. Við
hlökkum svo sannarlega til að gefa
þessar bækur út á íslensku. Við höf-
um lagt metnað okkar í að ná í höf-
unda sem eru virkilega vel skrif-
andi,“ segir Herdís og bætir við að
þau hafi vandað til þýðinganna. „Til
dæmis hafa leikkonurnar og vinkon-
urnar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og
Þóra Karitas Árnadóttir séð um að
þýða þessa erótísku ástarsögu. Við
völdum þær af því þær hafa það sem
þarf til að gera svona þýðingu trú-
verðuga og vandaða. Það skiptir
máli hvernig tilfinningu þýðendur
hafa fyrir tungumálinu. Róman-
tískar bækur eiga ekki að þurfa að
vera illa skrifaðar eða lélegar. En
því miður er oft snúið út úr þeim.
Þetta geta sannarlega verið góðar
bókmenntir og fallega skrifaðar
bækur, enda er rómantík og erótík
falleg.“
30 titlar á næsta ári
Herdís segir að Lesbók sé rétt
að byrja og þau séu búin að ná út-
gáfusamningum fyrir fjölda bóka.
„Við erum fjögur sem rekum þetta
fyrirtæki og erum að byggja það
upp. Við gerum ráð fyrir að gefa út
um þrjátíu nýja titla á næsta ári. Þar
á meðal er til dæmis bókin Söngur
Akkílesar eftir Madeline Miller sem
fékk hin virtu Orange-verðlaun núna
í ár. Einnig höfum við tryggt okkur
útgáfuréttinn að framhaldi bók-
arinnar The Devil Wears Prada, sem
heitir The Revenge Wears Prada
eða Hefndin gengur í Prada, eftir
hina heimsþekktu Lauren Weis-
berger.
Hljóðbókin Dalalíf eftir Guð-
rúnu frá Lundi kemur fljótlega út og
það er sko alvörurómantík. Þetta
eru yndislegar bækur, ég hefði ekki
trúað því. Ég nennti aldrei að lesa
þær en núna þegar ég hlusta á hljóð-
bókina heyri ég hvílík gersemi þetta
er.“
Höfundar Sylvia Day, Jojo Moyes og Medeline Miller eru meðal höfunda fyrstu bókanna sem Lesbók gefur út.
Krimmar geta verið al-
veg ágætir en mín til-
finning er að fólk vilji
stundum geta gefið
einhverjum bók án
þess að eiga á hættu
að viðtakandanum
fari að líða illa vegna
innihaldsins.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012
Kolabrautin er á 4. hæð Hörpu
Borðapantanir í síma 519 9700
info@kolabrautin.is
www.kolabrautin.is
MEISTARINN FRÁ TOSCANA
frá 24. okt. til 28. okt.
Kolabrautin fagnar haustkomu og býður einn fremsta
matreiðslumeistara Chianti Classico velkominn í heimsókn.
Matia Barciulli er yfirmatreiðslumeistari á hinum þekkta veitingastað
Osteria Passignano. Það er óhætt að segja að heimsókn Barciulli sé
heimsviðburður og nú þegar eru flest borð bókuð þá daga sem hann
sýnir listir sínar á Kolabrautinni. Við hvetjum því áhugafólk um
ítalska matargerð í hæsta gæðaflokki til að hafa samband við okkur
fyrr en síðar til að eiga möguleika á að njóta eins þess besta sem
Toscana hefur upp á að bjóða.
Samtök Lífrænna neytenda standa
fyrir viðburði á morgun sunnudag kl.
14 í Norræna húsinu. Yfirskriftin er
lífrænt Ísland - framboð, fræðsla,
smakk. Þar verður leitast við að gefa
sem gleggsta mynd af stöðu hins líf-
ræna Íslands eins og það er í dag. Líf-
rænir framleiðendur kynna vörur sín-
ar og leyfa gestum að smakka af
framleiðslu sinni. Stuttir og fræðandi
fyrirlestrar verða á dagskrá á mál-
stofu allan daginn og umræða á milli
dagskrárliða. M.a. ætlar Hildur Há-
konardóttir að segja frá matjurta-
garðinum sínum, Hafsteinn Hafliða-
son garðyrkjugúrú segir frá
garðinum sínum sem er án eiturefna,
Ingólfur Guðnason, Engi, talar um
hvað við getum ræktað á Íslandi,
Ólafur R. Dýrmundsson fjallar um
dýravelferð í lífrænum búskap, Arn-
heiður Hjörleifsdóttir, Bjarteyj-
arsandi, segir frá reynslu af vist-
vænni svínarækt, og ótal margt
fleira.
Endilega…
Morgunblaðið/Valdís Thor
…smakkið ís-
lenskt lífrænt