Morgunblaðið - 13.10.2012, Side 14

Morgunblaðið - 13.10.2012, Side 14
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Við bjuggumst við því að þetta færi niður en ekki svona mikið,“ segir Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur á Veiðimálastofn- un, um laxveiðina í sumar. Hann hefur verið að rýna í veiðitöl- urnar og þá miklu niður- sveiflu sem veiði- menn upplifðu. „Það gera sér ekki allir grein fyrir því að það var fjórðungs samdráttur í veiði á milli áranna 2010 og 2011, en samt var veiðin svo góð að menn sáu það ekki. Þegar síðan bætist við 39% niðursveifla til viðbótar milli ára eru menn komnir í sársaukamörkin,“ segir hann. Miðað við þessa tölu, 39% niður- sveiflu í sumar, er ljóst að niður- sveiflan frá hinu firnagóða laxveiði- sumri 2010 er yfir sextíu prósent. Guðni mun fjalla um veiðisumarið á málþingi sem Landssamband stang- veiðifélaga stendur fyrir á Grand hóteli í Reykjavík í dag klukkan 16. Félagi hans á Veiðimálastofnun, Sigurður Már Einarsson, reynir að svara spurningunni hvort sjá mátti niðursveifluna fyrir, og einnig taka til máls Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga, Þröstur Elliðason, forstjóri Strengja, og veiðimaðurinn Steinar J. Lúðvíksson. Rýnir í tölurnar „Ég kem til með að gera grein fyr- ir því hvernig þær bráðabirgðatölur yfir laxveiðina sem nú liggja fyrir líta út. Hvernig þetta sumar kemur út í samanburði við fyrri ár,“ segir Guðni. „Ég ætla líka að reyna að taka út haf- beitarlaxana og skoða hvernig töl- urnar gætu hafa litið út ef menn hefðu ekki verið að veiða og sleppa.“ Guðni segir að í kjölfar þokka- legrar fiskgengdar á undanförnum árin hafi seiðavísitalan verið um og yfir meðaltali í ánum í fyrra. „Þess vegna kom það okkur á óvart hve mikil þessi niðursveifla var. Við bjuggumst við því að þetta færi niður en ekki svona mikið.“ Hann segir að samanburður á talningartölum úr ánum og veiðitöl- um gefi raunsanna mynd af fisk- gengdinni í árnar. „Laxinn í sumar var líka smár; þegar þeir eru fáir eru þeir smáir. Þegar þeir hafa mikið að éta drep- ast færri og öfugt.“ Guðni segir að vísindamennirnir viti ekki alltaf svörin en þegar eitthvað breytist í umhverfinu þurfi fiskstofnarnir að bregðast við því. „Við erum alltaf að reyna að bregðast við breytingunum og skýra þær í sögulegu ljósi eftir á, en svo væri enn betra að geta sagt til um eitthvað af þessu fyrirfram. En vissulega er það þrautin þyngri.“ Eitt af því sem kom á óvart í nið- ursveiflu sumarsins er slök veiði í Borgarfjarðaránum. „Þessar ár á Vesturlandi hafa verið þær stöðug- ustu gegnum tíðina en nú er sam- drátturinn mestur þar,“ segir Guðni. Kaupa ódýrari leyfi Um 800 veiðimenn tóku þátt í netkönnun vefritins Flugur.is um það hvernig þeir hygðust veiða á komandi sumri. Nær 54% segjast ætla að verja lægri upphæð í veiði- leyfi en í ár, 37% svipuðu en 6% ætla að eyða meiru í leyfi. Sam- kvæmt könnuninni hyggjast 67,5% veiðimanna sækja í ódýrari ár og vötn en á síðasta ári og fæstir ætla að kaupa sér veiðileyfi þar sem stangardagurinn kostar meira en 50.000 krónur. Niðursveiflan í laxveiðinni var 39%  Þegar niðursveiflan í sumar bætist við fjórðungs niðursveiflu í fyrra „eru menn komnir í sársauka- mörkin“, segir Guðni Guðbergsson  Kemur á óvart að mesti samdrátturinn er í ám á Vesturlandi Haustlax Óli Sigmarsson landaði þessum 90 cm langa 18 punda hæng í Laxá í Kjós. Var honum síðan sleppt. ÚR BÆJARLÍFINU Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður Haustlitirnir í gróðri jafnt í húsa- görðum sem í náttúrunni gleðja augu flestra þótt allir viti að þeir lit- ir séu tákn um komandi vetur og kulda. Í görðum í Grundarfirði var óvenjumikið um litadýrð þetta haustið en það helgast af þeirri staðreynd að stillur hafa verið með meira móti þetta haustið. En sunn- anáttin í vikunni sá til þess að hreinsa lituð lauf af trjánum og þá er allt orðið eins og það á að vera segja sumir.    Víkingar hafa tekið sér bólfestu í Grundarfirði og stofnað með sér félagið Glæsi og er það félag systra- félag við Rimmugýg í Hafnarfirði. Framan af sumri sátu væntanlegir víkingar við öll kvöld og smíðuðu sér ýmsa nytsamlega hluti ásamt því að safna skeggi og varð þar úr hin besta félagsmiðstöð. Hugmynd víkinganna er að fá úthlutað land- spildu til að byggja sér langhús til aðseturs og athafna á víkingahátíð- um framtíðarinnar.    Íbúum Grundarfjarðar hefur ekki fækkað mikið undanfarin ár en aldurssamsetning samfélagsins hef- ur hinsvegar mikið verið að breyt- ast. Á árunum í kringum 1995 voru börn á grunnskólaaldri og yngri um þriðjungur íbúanna og þegar flest var voru nemendur í Grunnskól- anum liðlega 200. Þar er nem- endafjöldinn í dag kominn niður fyr- ir 100 og sambærileg hlutfallstala barna komin niður í um 16%. Ljós í myrkrinu er þó að barnsfæðingum hefur verið að fjölga undanfarin ár og þakka margir það Rökkurdögum sem haldnir hafa verið árlega nokk- ur undanfarin ár en verra er að horfur eru á þeir verði ekki haldnir þetta árið og jafnvel ekki nema ann- að hvert ár úr þessu.    Eldri borgurum fjölgar jafnt og þétt og Eldriborgarafélag Grund- arfjarðar fagnar á þessu ári 20 ára afmæli sínu. Þeirra tímamóta verð- ur minnst með sérstöku afmælisriti sem kemur út þessa dagana, enn- fremur verður afmælishátíð félags- ins í Samkomuhúsi Grundarfjarðar sunnudaginn 14. október. Þangað hefur verið boðið sérstaklega öllum þeim sem orðnir eru 60 ára því við það aldursmark miðast fé- lagsþátttakan. Fæstir eru þó til- búnir til þess að hasla sér völl á þeim vettvangi svo ungir svo með- alaldur félagsmanna er töluvert yfir þeim aldursmörkum.    Síldin er komin enn eitt haust- ið, Jóna Eðvalds SF var við síld- arleit á Grundarfirði sl. miðvikudag og náði sér í 500 tonn, en smábátar sem veiða í reknet á Breiðafirði hafa verið að landa þetta frá tveimur upp í sex tonn síðustu daga. Það að gefa heimabátum möguleika á því að hirða nokkra brauðmola af því nægtaborði síldartorfanna er góð búbót fyrir margan smábátinn. En fljótt flýgur fiskisagan því í gær- morgun var fjölveiði- og vinnslu- skipið Vilhelm Þorsteinsson mætt á fjörðinn í síldarleit. Síldin komin í Breiðafjörð Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Leit Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson við síldarleit á Grundarfirði. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012 LEGO® STAR WARS BRICKMASTER Bók sem inniheldur kubba, karla og leiðbeiningar til að byggja átta spennandi farartæki www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu YFIR 240 LEGO® KUBBAR OG 2 MINIFIGURES KARLAR! Landssamband Stangaveiði- félaga heldur opið málþing um stöðu stangaveiði á Íslandi á Grand Hótel í Reykjavík í dag, laugardag, milli kl. 14 og 17. Frummælendur koma frá helstu hagsmunaaðilum í stangaveiði á Íslandi, en stangaveiðin stendur á ákveðnum tímamótum eftir síð- asta veiðisumar. Fiskifræðing- arnir Guðni Guðbergsson og Sigurður Einarsson rýna í hvað er að gerast í ánum og hvort sveifluna hafi mátt sjá fyrir. Rætt um nið- ursveifluna MÁLÞING UM STANGVEIÐI Guðni Guðbergsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.