Morgunblaðið - 13.10.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Pétur H. Blöndal alþingismaður hef-
ur óskað eftir því að fram fari sér-
stök umræða á Alþingi um tillögur
stjórnlagaráðs að nýrri stjórnar-
skrá. Hann biður um lengda umræðu
því hann telur málið svo mikilvægt
og umfangsmikið að það rúmist ekki
innan umræðumarka sérstakrar um-
ræðu. Auk lengri ræðutíma hvers
þingmanns og ráðherra vill hann að
sérstakt tillit verði tekið til þing-
manna stærstu þingflokkanna, sem
hann segir ætíð líða fyrir stærð þing-
flokka sinna í umræðum.
Tilefni þessarar óskar er ráðgef-
andi þjóðaratkvæðagreiðsla um til-
lögur stjórnlagaráðs sem fram á að
fara næsta laugardag, 20. október.
Umræðan verður að fara fram
„Enn hefur ekki farið fram efn-
isleg umræða um tillögur stjórnlaga-
ráðs á Alþingi,“ sagði Pétur. Hann
kvaðst telja að margar tillögurnar
séu góðar, aðrar verri og sumar
hættulegar. Nauðsynlegt sé að fram
fari umræða þar sem alþingismenn
tjái sig um tillögurnar, kosti þeirra
og galla.
Pétur hafði ekki fengið formlegt
svar í gær en kvaðst vera bjartsýnn
á að umræðan fari fram. „Ég geri
ráð fyrir því að formenn flokkanna
muni tjá sig. Síðan muni almennir
þingmenn fara í gegnum einstakar
tillögur,“ sagði Pétur. Hann telur að
þessi umræða verði að fara fram fyr-
ir þjóðaratkvæðagreiðsluna til þess
að kjósendur viti um hvað þeir eigi
að kjósa.
„Þetta eru þvílíkt viðamiklar til-
lögur. Ég eyddi öllu síðasta jólafríi
og öllum janúar í að lesa þær og
skrifaði svo 40 síðna umsögn um til-
lögurnar. Ég gerði athugasemdir við
nánast hverja einustu grein og
breytingartillögur við margar,“
sagði Pétur. „Margar tillögurnar
þjást af skrúðmælgi. Mér finnst að
grundvallarmannréttindi eigi ekki
að byggjast á skrúðmælgi heldur
skýrum orðum.“
Engan má hneppa í þrældóm
Pétur nefndi til dæmis að skýrt
ákvæði eins og „engan má hneppa í
þrældóm“ sé ekki nefnt. Hins vegar
segi að „öllum skal tryggður réttur
til að lifa með reisn“ og þykir Pétri
óljóst hvað það geti þýtt. Þá sé t.d.
sagt „öllum börnum skal tryggð í
lögum sú vernd og umönnun sem
velferð þeirra krefst“ í stað þess að
segja berum orðum að börn skuli
njóta verndar og umönnunar. Með
því nægi stjórnarskráin og engin
þörf á að Alþingi fylli upp í hana.
„Svo eru hættuleg atriði eins og
113. greinin um stjórnarskrárbreyt-
ingar. Mér finnst þær allt of auðveld-
ar. Stjórnarskráin á að vera treg-
breytanleg og sviptivindar í
stjórnmálum eiga ekki að ráða
stjórnarskránni. Þar segir auk þess
að 5⁄6 þingmanna geti breytt stjórn-
arskránni bara si svona. Þannig
gætu 53 þingmenn samþykkt að
næstu kosningar færu fram eftir 30
ár og að þingseta erfist!“
Vill stjórnarskrárumræðu
Pétur H. Blöndal hefur óskað eftir lengdri umræðu á Alþingi um tillögur stjórn-
lagaráðs Hann telur margar tillögur góðar, aðrar verri og sumar hættulegar
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Pétur H. Blöndal alþingismaður hefur óskað eftir lengdri umræðu
um tillögur stjórnlagaráðs fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag.
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opnun kl. 15
Allir velkomnir
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Keramikuppboð
13. – 22. október
Tvær sýningar
í Gallerí Fold
13. – 28. október
Baksalur
Móttökustöð fyrir mannsandann
Guðmundur Viborg
Hliðarsalur
Skiftandi ljós úr eystrið
Finleif Mortensen
Munir frá Guðmundi frá Miðdal
og Listvinahúsinu
Erum að taka á móti verkum á næstu uppboð
Hugljúfar gjafir
Kimidoll á Íslandi
Friðarþing skáta hófst í Hörpu í
gær en þar verður meðal annars
rætt um frið og ungmenni.
Þingið, sem er öllum opið, heldur
áfram í dag, laugardag, en þá verð-
ur boðið upp á fjölda örfyrirlestra
auk vinnusmiðja þar sem m.a.
Christin Barruel kynnir verkefnið
Cool Schools sem er vel þekkt að-
ferð í nýsjálenskum skólum þar
sem börnum er kennt að miðla mál-
um milli sinna jafningja. Í vinnu-
smiðjunni mun hún kynna og kenna
aðferðir Cool Schools sem raunhæf-
an möguleika í skólastarfi og skáta-
starfi hér á landi.
Þá standa skátarnir fyrir frið-
arleik sem er ætlaður fyrir börn og
fjölskyldur og fer fram í miðborg-
inni.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Friður Ólafur Ragnar og Katrín
Jakobsdóttir töluðu á þinginu í gær.
Skátar ræða
um frið og
ungmenni
„Þetta var gagnlegur fundur. Við treystum því að á okkar
sjónarmið verði hlustað og þessi áform verði dregin til
baka,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar, en hún átti ásamt Árna Gunn-
arssyni, formanni samtakanna, og fleiri fulltrúum grein-
arinnar fund með Katrínu Júlíusdóttur fjármálaráðherra
í gær. Katrín, sem áður hefur verið ráðherra ferðamála,
tók sem kunnugt er nýverið við lyklavöldum í fjármála-
ráðuneytinu af Oddnýju G. Harðardóttur.
Fundarefni í gær voru áform stjórnvalda um að hækka
virðisaukaskatt af gistingu úr 7% í 25,5%, eins og kveðið
er á um í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2013.
„Við fórum yfir málið með ráðherra, bæði hversu gríð-
arleg hækkun þetta er og eins hve fyrivarinn er stuttur.
Ráðherra tók við okkar upplýsingum og gögnum og það
er verið að skoða þessi mál í ráðuneytinu,“ segir Erna en
jafnframt er starfandi vinnuhópur með fulltrúum stjórn-
valda og ferðaþjónustunnar þar sem farið er yfir rekstr-
arumhverfi greinarinnar í heild sinni.
Bæði ferðaþjónustan og stjórnvöld hafa látið gera
skýrslur þar sem áhrif hækkunarinnar eru metin. Þó að
niðurstaða þeirra sé mismunandi bendir Erna á að
skýrsluhöfundar séu sammála í mörgum atriðum varð-
andi áhrifin á greinina. Að sögn Ernu er skaðinn þegar
skeður fyrir ferðaþjónustuna. Núna er aðalsölutímabilið í
gangi fyrir næsta ár og fyrirtækin búin að prenta bækl-
inga og kynna verðskrár. Erna segir þetta hafa komið
skýrt fram á ferðakaupstefnunni Vestnorden í Hörpu á
dögunum. bjb@mbl.is
Vonast enn til að skatta-
hækkun gangi til baka
Ferðaþjónustan fundaði með fjármálaráðherra í gær
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ferðamenn Ferðaþjónustan óttast mjög áhrif hækk-
unar á gistiskatti og að ferðamönnum muni fækka.