Morgunblaðið - 13.10.2012, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012
Evrópusambandið hlýtur friðarverð-
laun Nóbels í ár. Þetta var tilkynnt
formlega klukkan níu í gærmorgun
að íslenskum tíma. Thorbjørn Jag-
land, formaður verðlaunanefndar
norska Stórþingsins, segir að ESB
og forverar þess hafi í yfir sex ára-
tugi unnið að friði og samkomulagi,
lýðræði og mannréttindum. Þetta
kom fram í máli hans þegar valið var
formlega tilkynnt.
Herman Van Rompuy, forseti leið-
togaráðs Evrópusambandsins, og
Jose Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, fögnuðu því í
gær að Evrópusambandið hefði
fengið friðarverðlaun Nóbels í ár.
Segir í yfirlýsingu þeirra að um
gríðarlegan heiður sé að ræða. Verð-
launin renni ekki bara til stofnana
ESB eða sambandsins sjálfs heldur
til allra þeirra 500 milljóna íbúa ríkja
sem eru innan sambandsins.
Í umfjöllun sinni um ákvörðun
verðlaunanefndarinnar nefndi Jag-
land m.a. aðkomu Evrópusambands-
ins að sameiningu Þýskalands eftir
fall Berlínarmúrsins og sagði að
ESB hefði stuðlað að stöðugleika í
Austur-Evrópu eftir fall Sovétríkj-
anna. Verðlaunin verða afhent í Ósló
10. desember en ekki er ljóst hver
tekur við þeim fyrir hönd sambands-
ins. vilhjalmur@mbl.is
Friðarverðlaun Nóbels til ESB
AFP
Nóbel Friðarverðlaunin fara í ár til Evrópusambandsins.
Sambandið hefur stuðlað að friði milli
gömlu stórveldanna í Evrópu í rúm 60 ár
Nóbelsverðlaunin
» Verðlaunin eiga rætur að
rekja til Alfreds Nóbels sem
fann upp dínamítið. Hann dó
árið 1896.
» Svíar veita flest nób-
elsverðlaun en norska Stór-
þingið kýs nefnd sem velur
friðarverðlaunahafa Nóbels.
» Sumar útnefningar hafa ver-
ið umdeildar, s.s. Yassers Ara-
fats árið 1994, Als Gore 2007
og Baracks Obama 2009.
» ESB er fyrsta ríkja-
sambandið sem fær friðar-
verðlaunin.
Líklegt er að
danskri þrí-
bytnu, sem
fannst mannlaus
við vesturströnd
Frakklands, hafi
hvolft í stormi,
samkvæmt
niðurstöðu rann-
sóknarnefndar sjóslysa. Þrír Danir
voru um borð en enginn þeirra hef-
ur fundist. Báturinn þeirra hafði
legið við festar í Moulin Blanc-höfn
í Brest. Danirnir þrír, sem eru á
aldrinum 30-50 ára, voru sjálfir
þrjá daga í Brest áður en þeir lögðu
úr höfn 23. september án þess að
segja nokkrum í bænum hvert þeir
ætluðu að sigla.
FRAKKLAND
Þrír Danir ófundnir
eftir sjóslys
Tyrkir hafa beint öllu almennu flugi
frá lofthelgi Sýrlands en töluverð
spenna ríkir milli landanna eftir að
nokkrir tyrkneskir borgarar létu líf-
ið þegar sprengjuhríð frá Sýrlandi
endaði innan landamæra Tyrklands
í síðustu viku.
Fyrr í haust skutu Sýrlendingar
niður tyrkneska herþotu á al-
þjóðlegu hafsvæði fyrir utan Sýr-
land. Tyrkir kölluðu þá saman
NATO-ríkin á fund vegna ástands-
ins.
Nýlega neyddu Tyrkir farþega-
þotu frá Sýrlandi til þess að lenda í
Ankara og gerðu tyrknesk yfirvöld
vopn og annan búnað upptækan úr
vélinni. Vopnin voru frá Rússlandi
en Rússar hafa selt Sýrlendingum
töluvert magn vopna í gegnum tíð-
ina. Þá hafa Tyrkir einnig gert upp-
tæk vopn frá Íran á leið til Sýrlands.
TYRKLAND
Flugi beint frá loft-
helgi Sýrlands Seðlabanki Íslands
gjaldeyrisútboð
Seðlabanki Íslands mun halda þrjú gjaldeyrisútboð 7. nóvember 2012. Útboðin þrjú eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum,
samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 (http://sedlabanki.is/afnam) og skilmála Seðlabanka Ís-
lands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum.
(http://sedlabanki.is/fjarfesting)
Útboð í fjárfestingarleið
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi.
Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um milligöngu munu annast framlagningu umsókna um
fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta
umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út í dagslok 19. október n.k.
Útboð í ríkisverðbréfaleið
Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Tilteknir aðalmiðlarar á
skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum.
Útboð um kaup á krónum gegn greiðslu í erlendum gjaldeyri
Seðlabanki Íslands kallar eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Við-
skiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri.
Seðlabankinn áskilur sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrir-
tækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á
sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í útboðunum þremur verður 3 dögum eftir að útboði lýkur. Tilboðum skal skilað eigi
síðar en 7. nóvember 2012. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna þriggja er að finna í útboðsskilmálum.
Útboðsskilmála og yfirlit um milligönguaðila, aðalmiðlara og viðskiptabanka má finna á heimasíðu Seðlabankans
http://sedlabanki.is/utbod.
Samkvæmt útboðsáætlun Seðlabankans er stefnt að næsta útboði 19. desember 2012.
Nánari upplýsingar veita milligönguaðilar, aðalmiðlarar og viðskiptabankar.
STOFNAÐ 1987
M
ál
ve
rk
:
Ú
lf
ar
Ö
rn
Úrva l e ins takra málverka og l i s tmuna ef t i r í s lenska l i s tamenn | S k i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
einstakt
eitthvað alveg