Morgunblaðið - 13.10.2012, Side 27

Morgunblaðið - 13.10.2012, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012 Dugnaður Mörg íslensk börn vita að sælla er að gefa en þiggja og hafa verið dugleg við að halda hlutaveltur til styrktar góðum málefnum, eins og þessar stúlkur á Laugaveginum. Eggert Furðulegt er að fylgjast með áróð- ursbrögðum fólksins sem berst nú um á hæl og hnakka fyrir því að eyðileggja stjórn- arskrá Íslands. Það talar t.d. í sífellu um „bráðabirgða- stjórnarskrána frá 1944“. Þetta er tómt rugl. Stjórnarskráin okkar er frá árinu 1874 og hún á sér traustar rætur aftur í aldir. Hún byggist á stjórnskipunar- og lýðræð- isþróun vestrænna samfélaga og skrifum fremstu hugsuða mann- kynssögunnar um þessi efni. Af þessum ástæðum er stjórn- arskráin okkar lifandi plagg. Það þýðir að túlkun hennar getur breyst í tímans rás. Í öllum vestrænum löndum hefur ráðandi túlkun á sum- rýru) mannréttindaákvæðum al- þjóðlegra sáttmála. Þessi breyting var í vissum skiln- ingi ávísun á stjórnlagaráðsruglið sem við höfum mátt þola undanfarin ár. Þar er haldið áfram á sömu braut – að gjaldfella stjórnarskrána með því að færa inn í hana ákvæði sem eiga heima í almennum lögum ásamt rétttrúnaðar-óskhyggju samtímans og jafnvel pólitískum ágreinings- efnum (sem þar með eru flutt af stjórnmálavettvanginum yfir í dómssali). Annað dæmi um sveigjanleika ís- lensku stjórnarskrárinnar er ákvæð- ið um svokallaðan „málskotsrétt“ forseta Íslands. Allan lýðveldistím- ann hefur verið litið svo á að þessi réttur væri í raun ekki virkur. En nú hefur hann verið vakinn til lífsins vegna sérstakra aðstæðna í þjóð- félaginu. (Í fyrsta skiptið var hann að vísu herfilega misnotaður, en stjórnarskráin með sínar aldagömlu rætur þolir það.) En það þýðir alls ekki að „málskotsrétturinn“ verði nýttur aftur í bráð eða að hann verði framvegis hluti af stjórnmálalífi landsmanna. Háværar raddir krefjast þess nú að ákvörðun um slíkar þjóð- aratkvæðagreiðslur eigi ekki að vera í höndum forseta Íslands heldur eigi að duga undirskriftir t.d. 15–20% at- kvæðisbærra manna. Hvað myndi það þýða í raun? Alþýðubandalagið var með 15–20% kjörfylgi á sínum tíma. Eigum við að búa í samfélagi þar sem „Alþýðubandalagið“ getur kallað þjóðaratkvæðagreiðslu yfir okkur að vild sinni? Vert er að hafa það ávallt hugfast að breytingin á mannréttinda- ákvæðum stjórnarskrárinnar 1995 hafði nákvæmlega engin áhrif á mannréttindi á Íslandi. Hið sama má segja um flestar fyrirhugaðar breyt- ingar stjórnlagaráðs, þær eru inn- antómt og illa stílað orðagjálfur sem á alls ekki heima í stjórnarskrá. Stjórnarskráin er grundvöllur stjórnskipunar þessa lands. Hún á að vera þannig orðuð að það sé hald í ákvæðum hennar, þau eigi sér rætur í sögunni og geti þannig lagað sig að breyttum aðstæðum á hverjum tíma. Þess vegna mega stjórnarskrár- ákvæði aldrei vera of nákvæm né geyma haldlitlar viljayfirlýsingar. Tillögur stjórnlagaráðs eru gróf aðför að grundvallarlögum þessa lands. Sláum skjaldborg um stjórn- arskrá Íslands! Segjum nei, nei og aftur nei við stjórnlagaráðsruglinu. um stjórnarskrár- ákvæðum breyst í tím- ans rás. Til dæmis var al- mennt lagður víðari skilningur í mannrétt- indaákvæði íslensku stjórnarskrárinnar undir lok 20. aldar en í upphafi aldarinnar. Þetta var vegna þess að ný lög og alþjóðlegir sáttmálar höfðu komið til sögunnar og hefðir og venjur fest í sessi. Þennan sveigjanleika bauð stjórn- arskráin upp á vegna þess að hún var kjarnyrt og með rætur í sög- unni. Því miður létu ístöðulitlir stjórn- málamenn undan kröfum kontórista Sameinuðu þjóðanna og fanatískra þrýstihópa um að breyta mannrétt- indaákvæðum stjórnarskrárinnar árið 1995 og færa þau nær hinum margorðu (og þar með innihalds- Eftir Jakob F. Ásgeirsson » Flestar fyrirhugaðar breytingar stjórn- lagaráðs eru innantómt og illa stílað orðagjálfur sem á alls ekki heima í stjórnarskrá. Jakob F. Ásgeirsson Höfundur er rithöfundur og útgefandi. Nei, nei og aftur nei Alþingi ályktaði 24. maí 2012 að efna til ráð- gefandi þjóðaratkvæða- greiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá Íslands. Með atkvæðagreiðsl- unni er verið að leita eftir afstöðu þjóð- arinnar til þess hvort Alþingi eigi að leggja tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar frum- varpi að nýrri stjórnarskrá, auk af- stöðu til fimm tilgreindra spurninga er varða tillögurnar. Að mínum dómi var það ekki stjórnarskráin sem brást íslenska samfélaginu í hruninu heldur var það samfélagið sem brást henni og sýndi ekki grunngildum stjórnskipulagsins þann trúnað sem nauðsynlegur er. Auk þess tel ég það óráð að breyta 2009 þar sem hann segir réttilega að breytingar á stjórnarská Íslands við núverandi aðstæður væru stjórn- skipuleg óvissuferð. „Er það sanngjörn niðurstaða að stjórnarskráin hafi brugðist íslensku samfélagi í meginatriðum og það hljóti að vera óhjákvæmilegur þáttur í viðreisn Íslands að byrja hér upp á nýtt? Eða hefur okkur hugsanlega mistekist að sýna núgildandi stjórn- arskrá nægilega hollustu og rækt- arsemi? Hér verður því haldið fram að án skilnings og trúnaðar við grunngildi stjórnskipunarinnar sé hætt við að ný stjórnarskrá fögur ásýndar verði létt á metunum og þeg- ar frá líði geti sótt í gamalt far. Yf- irvegaðar breytingar á afmörkuðum atriðum stjórnarskrárinnar eru af hinu góða og það eru vissulega atriði í íslenskri stjórnskipun sem þarf að koma til betri vegar. Öðru máli gegn- ir um stjórnskipulega óvissuferð á umbrotatímum sem kann að lykta með því að stjórnarskránni verði í heild sinni varpað fyrir róða með ófyrirséðum afleiðingum.“ Hættulegir ágallar Í tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá hafa ýmis ákvæði nú- gildandi stjórnarskrár verið tekin upp og orðalagi þeirra breytt. Má þar nefna atriði mannréttindakaflans, þótt þau séu tiltölulega ný af nálinni eins og fyrr segir. Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild Há- skóla Íslands, hefur bent á þær hætt- ur sem þessu geta fylgt. Þannig sagði hann í viðtali við Viðskiptablaðið 31. desember 2011 að einungis smávægi- legar orðalagsbreytingar gætu haft ófyrirséðar afleiðingar í för með sér og gætu t.d. í tilviki mannréttinda- ákvæðanna leitt til þess að dómstólar skýrðu ákvæðin á annan veg en áður. Og þá er ekki átt við breytingar í átt til ríkari mannréttindaverndar, held- ur bætir Hafsteinn við að í tillögum stjórnlagaráðs „kunni að felast breyt- ing á eðli stjórnarskrárinnar á þann hátt að hún veiti hinu opinbera minna aðhald“. Ég tel alltof marga ágalla vera á fyrirliggjandi tillögur stjórnlagaráðs og mun segja nei í þjóðaratkvæða- greiðslunni laugardaginn 20. október nk. stjórnarskrá Íslands á óvissutímum og tel að slíkt verði að gera með yfirveguðum og vönd- uðum hætti, eins og t.d. þegar mannréttinda- kafli stjórnarskrárinnar var endurskoðaður 1995 og ákvæði hans færð til nútímalegra horfs. Auk þess hafa margar breytingar ver- ið gerðar á stjórn- arskránni frá því árið 1944 þegar íslenska þjóðin samþykkti hana í þjóð- aratkvæðagreiðslu með ríflega 95% atkvæða og er þar skemmst að minn- ast breytinga á kjördæma- og kosn- ingaskipan og skipan Alþingis. Stjórnskipuleg óvissuferð Máli mínu til stuðnings langar mig fyrst að vitna í grein Skúla Magn- ússonar á visir.is 25. febrúar árið Eftir Elínu Hirst » Að mínum dómi var það ekki stjórn- arskráin sem brást samfélaginu í hruninu heldur var það sam- félagið sem brást stjórnarskránni Elín Hirst Höfundur er frambjóðandi í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi (Kraganum.) Þjóðin brást stjórnarskránni en ekki öfugt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.