Morgunblaðið - 13.10.2012, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
Opið: 08:00 - 17:00alla virka daga
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í rennihurðir
- Í milliveggi
• Speglar
- Á baðið
- Á ganginn
- Á skápinn
- Í eldhúsið
- Í barnaherbergið
- Í svefnherbergiðSENDUM UM ALLT LAND
Vestmanneyingurinn og Reykvíkingurinn Björg Brynjarsdóttirtekur afmælisdeginum af mikilli ró og yfirvegun enda segisthún ekki vera mikið afmælisbarn í sér. „Mér finnst ekkert
merkilegt að eiga afmæli. Hins vegar hefur mér alltaf þótt gaman
að bjóða fólki í mat til mín og ætla því að nýta afmælisdaginn ein-
mitt til þess og bjóða vinkonum mínum í mat í kvöld.,“ segir Björg
sem minnist þess þó að hafa haft gaman af stórum afmælisveislum
sem barn. „Áður en ég flutti til Vestmannaeyja hélt ég stundum upp
á afmælið mitt með frænku minni sem á afmæli sama dag og ég. Mér
þótti það mjög skemmtilegt því þá fékk ég pakka frá svo mörgum,
líka fólki sem ég þekkti ekki.“
Björg er fædd í Reykjavík en flutti til Vestmannaeyja 11 ára göm-
ul og á því sterkar rætur í eldfjallaeyjunni fögru.
Eins og sannur Vestmanneyingur heldur Björg með ÍBV en hún
spilaði sjálf fótbolta með félaginu og varð Íslandsmeistari í 2. flokki.
„Þú kemst eiginlega ekki upp með það í Eyjum æfa ekki og spila
með ÍBV. Vinkonur mínar voru fljótar að fá mig í fótboltann þegar
ég flutti til Eyja og ég spilaði út 2. flokk en tók aldrei skrefið upp
meistaraflokk félagsins,“ segir Björg en hún er flutt aftur til höf-
uðborgarinnar til að stunda nám í iðnaðarverkfræði við Háskóla Ís-
lands og hefur skipt fótboltanum út fyrir crossfit. vilhjalmur@mbl.is
Björg Brynjarsdóttir er 22 ára í dag
Matarboð Afmælisbarnið Björg Brynjarsdóttir ætlar að bjóða vin-
konum sínum heim í mat í tilefni afmælisins.
Afmæli eins og
hver annar dagur
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Ásthildur Eva fæddist 15.
júní kl. 4.40. Hún vó 3.660 g og var 52
cm löng. Foreldrar hennar eru Ásta
Sigríður Guðjónsdóttir og Sigurður
Árnason.
Nýr borgari
Brúðhjón Hulda Heiðrún Óladóttir og
Hilmar Þór Harðarson giftu sig 8.
september síðastliðinn í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði. Sr. Einar Eyjólfsson gaf
þau saman.
Brúðkaup
Bergur fæddist í Reykjavík 14.10.
1937 og ólst þar upp, fyrst við
Freyjugötuna, en flutti síðan með
fjölskyldu sinni í Melahverfið, ný-
byggt, skömmu eftir stríð.
Bergur var í Ísaksskóla, Mela-
skóla og í Gagnfræðaskólanum við
Hringbraut. Hann var tólf ára er
hann missti föður sinn, stundaði
nám við MA og lauk þaðan stúd-
entsprófi 1958. Hann lauk síðar
kennaraprófi og stundaði fram-
haldsnám í stærðfræði og stærð-
fræðikennslu.
Bergur var skrifstofumaður hjá
Sementsverksmiðju ríkisins 1958-
61, stundaði skrifstofustörf hjá
tæknideild Loftleiða í Stavanger í
Noregi 1960-65, starfaði á Fræðslu-
skrifstofu ríkisins 1965-68, var
skólastjóri Barna- og unglinga-
skólans á Blönduósi 1968-75, fram-
kvæmdastjóri Sumargjafar 1975-78
og framkvæmdastjóri Leikskóla
Reykjavíkur 1978-2005.
Bergur starfaði í Lionsklúbbi á
Blönduósi, sat í skólastjórn Fóstur-
skóla Íslands um árabil frá 1985,
sat í nefnd menntamálaráðuneyt-
Bergur Felixson, fyrrv. framkvæmdastjóri - 75 ára
Stórfjölskyldan Bergur og Ingibjörg Sigrún með börnum, tengdabörnum, barnabörnum og fleirum á niðjamóti.
Sá um þau yngstu í 30 ár
Yngsta barnabarnið Bergur og Ingibjörg Sigrún með yngsta barnabarninu
síðustu jól.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is