Morgunblaðið - 13.10.2012, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2012
Nærri þúsund stuttmyndir hafa
verið sendar í stuttmyndakeppni
hljómsveitarinnar Sigur Rósar,
unnar út frá lögum af breiðskífu
hennar, Valtara. Myndirnar koma
víða að úr heiminum og hefur
fyrsta vinningsmyndin verið valin
af notendum vefjar hljómsveit-
arinnar en atkvæðagreiðsla fer
fram á undirsíðu sem helguð er
keppninni. Höfundur sigurmynd-
arinnar, sem unnin var við lagið
„Dauðalogn“, er Ruslan Fedotow.
Myndina og upplýsingar um hana
má finna á sigur-ros.co.uk/valtari/
videos/daudalogn-fedotow/. Fede-
tow fékk þrjá vini sína til liðs við
sig við gerð myndarinnar.
Nær þúsund stutt-
myndir við Valtara
Fjöld Gríðarlegur fjöldi stuttmynda
hefur verið gerður við lög af Valtara.
Bat for Lashes fæddist árið 1979
sem Natasha Kahn, stúlka af pakist-
önsku og ensku bergi brotin, ólst
upp í Wembley en gerir út frá Brig-
hton. Mann langar óneitanlega til,
og ef maður leyfir rómantíkernum í
sér að spretta úr spori, að tengja
þessar staðreyndir við það hvernig
tónlistarferill hennar hefur verið,
það er að segja allt annað en hefð-
bundinn. Í raun mætti segja að
Kahn feti í fótspor Bjarkar og Kate
Bush, hún höfðar á einhvern magn-
aðan hátt til fjöldans (upp að vissu
marki) en fylgir um leið kirfilega
þeim listrænu línum sem hún hefur
markað sér. Þannig nefnir Kahn
Steve Reich sem áhrifavald og sem-
ur tónlist fyrir listinnsetningar á
meðan lög hennar malla í morg-
unþáttunum á BBC. Súrt ... en sam-
þykkt.
Töfrakona
Listsystur á hún nokkrar, tónlist-
arkonur sem náðu eyrum fólks upp
úr miðjum síðasta áratug, nöfn eins
og Joanna Newsom og Feist og Reg-
inu Spektor og St. Vincent mætti
hæglega setja undir sama flokk. At-
hygli vakti hún fyrst árið 2006, þeg-
ar hún gaf sjálf út lagið „The Wiz-
ard“ á sjötommu (merki hennar
kallast She Bear). Þá um haustið
kom fyrsta breiðskífa hennar, Fur &
Gold, út og vakti mikla athygli. Plat-
an var m.a. tilnefnd til Mercury-
verðlaunanna árið 2007 og 2008 féllu
tvenn Brit-verðlaun í hennar skaut.
Önnur breiðskífan, Two Suns
(2009), reyndist afar metnaðarfullur
gripur og dulúðin í kringum hana
minnir helst á það sem proggbönd
áttunda áratugarins lögðu upp með.
Ef umslagið er ekki nóg til að gefa
slíkt til kynna þá snýst platan um
tvö „sjálf“ Kahn og er hliðarsjálfið
manneskja að nafni Pearl sem er
sjálfstortímandi og tákn fyrir þá tví-
ræðu þörf sem við höfum gagnvart
jafnvægi og glundroða. Eitthvað
þannig að minnsta kosti! En, eins og
fram kemur í upphafi, þá var Kahn
allan tímann með puttann á popp-
púlsinum eins og sýnir sig t.d. í lag-
inu „Daniel“ sem glumdi nokkuð
reglulega í viðtækjum Vest-
urlandabúa það árið. Þá gestaði
Scott Walker í lokalaginu, en tónlist
hans í dag er drekkhlaðin myrkum
skírskotunum (nokkuð ólíkt drama-
tísku barokkpoppinu sem hann er
hvað þekktastur fyrir) og því vel við
hæfi að hann legði okkar konu lið.
Nakið
Á meðal samstarfsmanna á plöt-
unni nýju eru Beck, Adrian Utley
(Portishead) og Dave Sitek (TV on
the Radio). Umslagið hefur þegar
vakið nokkra athygli en þar sést
Kahn nakin með nakinn karlmann á
bakinu (hún heldur á honum eins og
veiðimenn sem halda á stórri villi-
bráð, slengir honum yfir axlirnar).
Ljósmyndina tók Ryan McGinley.
Kahn sagði í spjalli við NME að hún
væri m.a. að heiðra konur eins og
Patti Smith með ljósmyndinni og
þegar maður pælir í því má sjá vísun
í Horses, tímamótaverk Smith frá
1975 sem ber einfalda, sterka og
nokk hráa svart/hvíta ljósmynd af
Smith.
„Mig langaði til að hafa þetta nak-
ið, einfalt, bert,“ sagði Kahn í sam-
tali við smekkmótarann Pitchfork
fyrir stuttu, en viðtalið er í formi vef-
innslags. „Ég er t.a.m. komin yfir
þrítugt og finnst ég vera orðin
kona!“ segir hún sposk í spjallinu
sem er tekið inni á kaffihúsi. Það er
ekki beint ára dulúðar yfir henni,
hún er bæði kankvís og afslöppuð og
greinilega komin á annan, náttúru-
legri stað, mætti segja. „Á fyrstu
plötunum dælir maður öllu út ein-
hvern veginn,“ segir hún. „Allt það
sem hafði áhrif á mig í æsku er
þarna í einni bendu. Nú er maður
hins vegar kominn með sjálfstraust
til að gera sitt eigið og útkoman er
fókuseraðri og í raun einfaldari.“
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Einstigið þrætt
Nakin Natasha Kahn, öðru nafni Bat for Lashes, hefur ekkert að fela.
Mikil eftirvænting hefur verið eftir nýrri plötu Bat
for Lashes, sem kom út rétt fyrir helgi Hefur náð
að samþætta framsækni við það sem „fólkið vill“
» „Ég er t.a.m. kominyfir þrítugt og finnst
ég vera orðin kona!“
segir hún sposk í
spjallinu sem er tekið
inni á kaffihúsi.
TRYGGÐU Þ
ÉR MIÐA Á
- Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN
- J.I., EYJAFRÉTTIR
-H.G., RÁS 2 - K.G., DV
- H.S.S., MORGUNBLAÐIÐ- H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
*AÐEINS LAUGARDAG **AÐEINS SUNNUDAG
LOVE IS ALL YOU NEED KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
LOVE IS ALL YOU NEED LÚXUS KL. 3 - 5.30 - 8 L
FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILB.) - 3.10 - 6 L
TAKEN 2 KL. 5.40 - 8 - 10.10 16
TAKEN 2 LÚXUS KL. 10.30 16
DJÚPIÐ KL. 1 - 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10
DREDD 3D ÓTEXTUÐ KL. 10.20 16
ÁVAXTAKARFAN KL. 1 (TILBOÐ) - 3.10 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 8 16
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.40 L
7 PSYCHOPATHS KL. 8 - 10.10 BLÓÐHEFND KL. 6 16
DJÚPIÐ KL. 6 - 8 10 TAKEN 2 KL. 10 16
ÁVAXTAKARFAN KL. 2 (TILB.) ÍSÖLD 3D 4 KL. 4 L
FUGLABORGIN 3D KL. 2 (TILBOÐ) - 4 L
“LJÚFSÁR OG BRÁÐSKEMMTILEG.”
- FRÉTTABLAÐIÐ
LOVE IS ALL YOU NEED KL. 3 (TILB.) - 5.30 - 8 - 10.30
BLÓÐHEFND KL. 6 ** - 8 - 10 16
THE KING AND CLOWN KL. 5.30* 14
200 POUNDS BEAUTY KL. 5.30* L
DJÚPIÐ KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 10
THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 3 10
ÁVAXTAKARFAN KL. 3.30 (TILBOÐ) L
INTOUCHABLES KL. 5.30 ** - 8 - 10.30 L
SEVEN PSYCHOPATHS Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20
TAKEN 2 Sýnd kl. 8 - 10
FUGLABORGIN 3D Sýnd kl. 2 - 4
DJÚPIÐ Sýnd kl. 3:50 - 6 - 8 - 10
INTOUCHABLES Sýnd kl. 5:50
PARANORMAN 3D Sýnd kl. 2 - (4 bara sunnud.)
ÁVAXTAKARFAN Sýnd kl. 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
HHHH
-Þ.Þ., Fréttatíminn
HHHHH
- J.I., Eyjafréttir.is
HHHHH
- H.H., Rás 2
HHHHH
- H.S.S., Morgunblaðið
HHHH
- H.V.A., Fréttablaðið
HHHH
- K.G., DV
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ÍSL TEXTI
ÍSL TAL
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
10
7
12
16
16
L
L