Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Qupperneq 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Qupperneq 9
30.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 Um áramót heitum við því gjarnan að gerabetur á nýju ári. Dæmi um heitstreng-ingar er að finna í sjálfum fornsögunum og ýmsum síðari tíma sögum um merka Íslend- inga. Skemmtileg er sagan af Jóhannesi Jósefs- syni, sem kenndur var við Hótel Borg. Hann var virkur í stofnun íslenskra ungmennafélaga og sagt er að hann hafi á einum slíkum félagsfundi strengt þess heit að vinna hina þekktu Íslands- glímu, ella verða minni maður. Sigurinn varð þó ekki hans það árið. Það gæti skýrst af því að Jóhannes á að hafa hjólað um langan veg til glímunnar og því mætt nokkuð lú- inn til leiks. En sigrar þessa mikla glímukappa urðu margir og fræknir og fyrir þá er hans frek- ar minnst en að hafa ekki náð að efna þetta eina heit. Hefð heitstrenginga lifir góðu lífi og flest ákveðum við með okkur sjálfum, eða í votta við- urvist, líkt og Jóhannes gerði, að setja okkur ný, ögrandi og mannbætandi markmið á nýju ári. En fyrir okkur sem þjóð er það einnig þess virði að velta fyrir sér hvert við viljum sameiginlega stefna á slíkum tímamótum. Ég vona að árið 2013 verði ár nýs upphafs fyrir Ísland. Ár þar sem við ákveðum að hefja upp- byggingu, vöxt og framfarir. Ár þar sem við ákveðum að breyta til góðs og kjósum að treysta fólki með því að fjölga tækifærum og auka val og vald einstaklinganna. Og ár sem við munum seinna horfa til og segja með stolti að við höfum lagt okkar af mörkum til baráttunnar fyrir betra samfélagi. Ég vona líka að árið 2013 verði ár vonar fyrir Íslendinga. Ár þar sem lausnir verða fyrirferð- armeiri en vandamál og við hættum að skil- greina verkefnin sem erfið og ómöguleg heldur viðráðanleg og spennandi. Ár þar sem almenn- ingur fær skýr skilaboð um lægri álögur, meiri atvinnu og aukinn skilning á erfiðri stöðu margra heimila. Og ár þar sem áramótaávarp forsætisráðherra einkennist af hugrekki, krafti og hvatningu, en síðustu ár hefur það því miður frekar minnt á einhvers konar áramótaandvarp. Þetta eru vissulega stórir draumar en þannig eigum við að hugsa um áramót. Gerum árið 2013 að árinu þegar við öll gerðum okkar besta - árinu þegar við gripum tækifærin og glímdum til sigurs fyrir Ísland. Íslandsglíman *„Ég vona að árið 2013verði ár nýs upphafsfyrir Ísland.“ ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Hanna Birna Kristjánsdóttir hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is Í endurminningu bernskunnar voru ára-mótin tregafull. Nú árið er liðið í aldannaskaut var sungið og barnið sat eftir með þá hugsun að hið liðna væri óafturkræft – kæmi aldrei til baka. Þessu fylgdi óútskýrð eftirsjá. En um leið var nýr forvitnilegur tími að hefjast. Hið ókomna bankaði upp á með fjöldann allan af ósvöruðum spurningum. Áramótin voru tími hins óræða. Ætli þessir þankar hrærist ekki í ungum hugum enn þann dag í dag og hugsanlega einnig með okkur sem eldri erum? Á áramótum sameinast kynslóðirnar; við veisluborð, fyrir framan sjónvarpið, við brennuna, og síðast en ekki síst undir flug- eldum með blys og stjörnuljós, jafnvel við sönginn um árið sem liðið er í aldanna skaut og aldrei kemur til baka. Áramótin eru tími tilfinninganna. Gamlir verða ungir á ný þegar þeir sprengja sig út úr árinu sem runnið hefur sitt skeið á enda og inn í nýtt, með börnum og barnabörnum. Nú þökkum við starfsmönnum sveitarfélag- anna fyrir brennurnar. Þeir hafa tekið að sér hlutverk krakkanna sem fyrr á tíð söfnuðu á áramótabrennurnar öllu sem ónýtt var og lík- legt til að loga. Eflaust eru brennurnar orðn- ar heldur umhverfisvænni en ekki er ég alveg frá því að það hafi verið á kostnað gleði hins unga athafnafólks. Ef að líkum lætur verður talsverðu skotið á loft af flugeldum til að minnast þess að árið 2012 er liðið og árið 2013 að hefja innreið sína. Og við það munu óskabörn þjóðarinnar hagnast. Flugeldasalan er fjáröflun björg- unarsveitanna. Þetta hef ég alltaf hugfast. Þess vegna kaupi ég með ánægju nokkra flugelda, stjörnuljós og blys til að kveðja hið liðna og fagna nýju ári. Það er góð tilfinning að vita af félögunum í Slysavarnafélaginu Landsbjörg – óskabörnum þjóðarinnar, sem við getum reitt okkur á og eru ætíð til staðar á ögurstundu. Áramótin og óskabörn Íslands ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is *„Á áramótum samein-ast kynslóðirnar.“ Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsælar á komandi ári Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.