Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 20
*Heilsa og hreyfingArna Sigríður hefur náð ótrúlegum árangri með stífri þjálfun og lætur lömun ekki stöðva sig »22 Þ á sem langar kannski ekki til að dvelja enn eitt árið á hlaupabrettinu og í tækjasaln- um í líkamsræktarstöðvum ættu að íhuga frumlegri leiðir að settum markmiðum. Fullsannað er að reglubundin hreyfing er andlegri og líkamlegri heilsu bráðnauðsyn- leg. Sjálfsagt eru margir vanafastir eða hæstánægðir með brettið sitt en þeir, sem langar til að ná nýjum hæðum heilsufarslega án þess að leiðast, þurfa ekki að örvænta. Margskonar hreyfing er í boði árið 2013 þar sem hvorki hlaupabretti, pallar né hefðbundnir fitubrennslutímar koma við sögu. Karate Þeim sem finnst þeir ekki ná nægilegri slökun andlega í rokkuðum og háværum sölum líkamsræktarstöðva en og vilja ná að aga bæði líkama og sál ættu að hugleiða að æfa karate. Fjöldi íþróttafélaga býður upp á karateæfingar, meðal annars Karate-félag Reykjavíkur þar sem byrjendanámskeiðið kostar 32 þúsund krónur á ári en svo skemmtilega vill til að karategalli fylgir þar með í kaupbæti. karatedo.is Morgunblaðið/Eggert Skíðaganga Skíðagöngugarpar eru meðal best þjálfuðu íþróttamanna heims og ekki úr vegi að skipta skíðagöngutækinu í ræktinni út fyrir alvöru búnaði á nýja árinu. Skíðagöngu- félagið Ullur hefur staðið fyrir byrjend- anámskeiðum fyrir þá sem vilja ná tökum á íþróttinni en skíðaganga reynir bæði mikið á hendur og fætur. Nánari upplýsingar á ullur.wordpress.com Morgunblaðið/Eggert YouTube Þeir sem kjósa helst að halda sig heima við og njóta sín best þar geta auðveldlega átt góðar brennslustundir. Á youtube.com er hægt að finna fjölda skemmtilegra mynd- banda þar sem meðal annars má læra dansana gangman style og nokkra gamla og góða eins og macarena og lambada. Enginn skyldi vanmeta orkubrennslu dansspora en það þykir kannski rétt að draga glugga- tjöldin fyrir á meðan mesta rykið er dustað af diskóskónum. Víkingaþrek Víkingaþrek Mjölnis hefur slegið rækilega í gegn og þangað flykkjast þeir sem vilja fá mikla útrás undir styrki stjórn Mjöln- ismanna. Námskeiðin virðast henta fólki af öllum stærðum og gerðum, í mismunandi formi og á ólíkum aldri. Allar nánari upp- lýsingar um næstu námskeið má nálgast á vefsíðu félagsins; mjolnir.is. Morgunblaðið/Styrmir Kári Strandblak Ein vinsælasta íþrótt síðustu Ólympíuleika var strandblak. Þótt margir tengi íþróttina við sólríkar strendur þá er engin ástæða til örvænta því byrjendur geta meðal annars skellt sér á námskeið í Sporthúsinu og í kjölfarið væri hægt að taka Nauthólsvíkina með trompi þegar sól tekur að hækka á lofti. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni strandblak.is AFP Klettaklifur Þetta er eflaust ekki íþrótt fyrir þá sem eru lofthræddir en kannski ágætisleið til að ná tökum á þeirri hræðslu. Klettaklifur reynir mikið á jafnvægið, hendur og fætur. Í Klifurhúsinu er hægt kynna sér þessa íþrótt enn frekar með því að fara byrj- endanámskeið en það er ætlað ótrúlega breiðum aldurshópi, frá 18-100 ára. klifurhusid.is Morgunblaðið/Eggert Heimakærir geta sett sér það sem markmið í ár að sleppa hálftíma sjónvarpsglápi á hverju kvöldi og dansa eftir myndböndum á youtube.com. AFP FJÖLDI MÖGULEIKA TIL HREYFINGAR Öðruvísi hreyf- ing árið 2013 TIL ERU ÓTAL FRUMLEGRI OG FJÖRUGRI LEIÐIR AÐ BÆTTRI HEILSU ÁRSINS 2013 EN HLAUPABRETTIÐ OG TÆKJASALURINN. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Ultimate frisbiee Íþrótt sem smám saman hefur verið að skjóta rótum hér á landi og fyrsta alþjóðlega svifdiskamótið á Ís- landi fer til dæmis fram um þessa helgi í Hafnarfirði. Íþróttin er keimlík ruðningi og býður oft upp á ansi mikinn hasar þar sem barist er grimmilega um hvern frisbídisk. Hver leikur getur tekið allt að tvo tíma. Borðtennis Þótt flestir tengi borðtennis við unglinga og fé- lagsmiðstöðvar þá var borðtennis leikinn af bresku yfirstéttinni upphaflega. Leikurinn er hraður og reynir á snerpu og einbeitingu. Hann er því um leið kjörin slökun þar sem ekkert annað en leik- urinn kemst að. Samkvæmt bandarísku vefsíðunni caloriecount.about.com brennir meðalmanneskjan um 270 hitaeiningum á klukkustund í leiknum. Áhugasömum er bent á heimasíðu Borðtennissambands Íslands; bordtennis.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.