Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 27
Í kringum diskana var notaður silf- urborði úr IKEA og fjaðrir. Fyrirmyndar forréttardiskur. Heimili Theodóru er í Hlíða- hverfinu. Síðasta máltíð ársins er snædd hjá tengdafjölskyldu Thedóru en ekki er hefð fyrir því að fara út á lífið heldur er dvalið heima við. * Til að útbúa áramótaborð í anda Theodóru Mjallar er sniðugt að leita í jólaskreytingarnar og nýta fjaðrir, silfurskraut og annað sem gefur bjarma og létt yfirbragð. * Theodóra vildi hafa borðið í léttum anda og því mætti nota bjarta liti eins og hér eru notaðir, ljósbláan, bleikan, gulan og eldrauðan en forðast þyngri tóna eins og gyllta og dökkgræna og dekkri bláa tóna. Þá er það sniðug hug- mynd að gera eins og húsfreyjan gerði; nota búta úr öðrum skreytingum og klippa í sundur það sem er orðið illa farið eða ljótt og ekki má gleyma pakkaskrautinu, gjafaborðum og öðru slíku eins og Theodóra notaði á fætur vínglasa og til að binda í kringum sælgætisskálar. * Sælgæti getur raunar verið afar fallegt skraut eins og hér sést sem og litlar kökur sem bera má fram með fordrykknum. * Að lokum eru lesendur hvattir til að nýta sér netið eins og Theodóra Mjöll gerði. Prenta út skemmtileg mynstur, myndir, jafnvel myndir af eftirlæt- ispersónum ársins og skreyta diska og glös með. Þetta er kvöldið til að sleppa fram af sér beislinu – líka hvað skreytingar varðar. Theodóra Mjöll er dugleg að klippa tilbúnar skreytingar niður og nota ýmsa hluta þeirra sér. Þessi fallegi „steinn“ er úr skreytingu sem var keypt í Garðheimum. Bleikir gjafaborðar úr Söstrene Grene voru bundnir um fætur vínglasanna. 30.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 smáratorgi 522 7860 • korputorgi 522 7870 • glerártorgi 522 7880 3.490 ver-d frá Knöll luktir 6/10 í pk -500/0-50 0/0 Nú 595 Áður 1.190 diskamotta1.290

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.