Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2012 Græjur og tækni Græjur ársins FARSÍMAR VORU Í AÐALHLUTVERKI Á ÁRINU OG HÖRÐ BARÁTTA MILLI SAMSUNG OG APPLE. ÞAÐ VAR ÞÓ LÍKA ÝMISLEGT AÐ GERAST Á ÖÐRUM TÆKNISVIÐUM, EKKI SÍST Í SPJALDTÖLVUMÁLUM, Á LEIKJATÖLVUSVIÐINU OG Í MYNDAVÉLAHÖNNUN. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Fyrst fyrirtækja til að skáka Apple á farsímamarkaði, og reyndar eina fyrirtækið sem hefur náð því hing- að til, var Samsung og trompið Samsung Galaxy SIII sem varð fljótlega eftirsóttasti sími heims. Stendur og vel undir því að vera krýndur sími ársins, enda komst enginn sími með tærnar þar sem hann hafði hælana fyrr en iPhone 5 kom út. Galaxy SIII er engin smásmíði, skjárinn er 4,8" með upplausnina 1280x720 dílar, og hreint út sagt frábær með magnaða litadýpt. Hann er líka þrælöflugur og sprækur með fjögurra kjarna 1,4 GHz ARM örgjörva sem gerir kleift að keyra fleiri en eitt forrit í einu á skjánum svo dæmi sé tekið. Myndavélin í honum er líka fram- úrskarandi. Wii U er kærkomin og vel heppnuð uppfærsla á Wii, leikjatölvu sem orðin er vel við aldur enda eru sex ár langur tími í tölvuleikjaheiminum. Stórtíðindin eru aftur á móti stýripinninn eða stjórntölvan sem fylgir, enda er hún með 6,2" snertiskjá, myndavél, hljóðnema og hátalara svo fátt eitt sé talið. Með henni er hægt að stýra leikj- um á sjónvarpsskjánum, nema hvað, en leikir sem skrifaðir eru fyrir Wii U nota báða skjáina og sumir bæta við ótrúlega skemmtilegri vídd í leikjaspilun, enda eru innbyggðir í hana hraða- mælir, jafnvægismælir og fleiri skynjarar. Canon EOS M er fyrsta atvinnu- amatöravélin sem fyrirtækið sendir frá sér sem er spegillaus en getur þó nýtt þau hundruð af fjölbreyti- legum linsum sem finna má í EOS- línu Canon. Gefur augaleið að þeir sem eiga Canon EOS-græjur og/ eða linsur fyrir ættu að kynna sér vélina, en hún hentar fyrir alla þá sem áhuga hafa á að færa sig frá imbavélum í meiri myndgæði og möguleika. Einfaldleikinn ræður ríkjum á boddíinu á vélinni, en þegar skyggnst er undir yfirborðið skort- ir ekki stillingar. Skjárinn á bakinu er snertiskjár og sáraeinfalt að breyta öllum stillingum enda er EOS M sannkölluð hátæknimynda- vél í felubúningi. Samsung velti Nokia úr sessi sem helsti far- símaframleiðandi heims á árinu, en Lumia 920, sem notar Windows f-rsíma- stýrikerfið, er til marks um að Nokia-menn eiga heilmikið eftir. Þótt ekki sé Lumia 920 besti sími ársins, er hann sá tæknilegasti að mörgu leyti og með bestu farsímamyndavél sem ég hef séð - 8,7 Mdíla myndavél með Carl Zeiss linsu, hristivörn og tveimur LED-leifturljósum. Hönnunin á símanum er líka til fyrirmyndar og hann vekur hvar- vetna eftirtekt fyrir útlitið. Samsung Galaxy III Canon EOS M Nokia Lumia 920 Wii U

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.