Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Side 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2012 Föt og fylgihlutir Klassískir straumar eru áberandi í tískuheim-inum eins og alltaf á krepputímum. Fólk villlíta út fyrir að vera ábyrgt og íhaldssamt og lít- ið um tilraunastarfsemi eða áhættusækni,“ segir Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar Lista- háskóla Íslands um tískuárið 2012. Linda Björg byrjar á að nefna það sem hefur vakið at- hygli hennar erlendis. „Nicolas Gesguire hætti hjá Balen- ciaga og Raf Simons hætti hjá Jil Sander og fór til Dior. Jil Sander kom þá til baka í sitt gamla starf og sannaði að hún getur enn hannað. Sonia Rykiel var selt til kínverskra fjár- festa en Rykiel var eitt af fáum tískufyrirtækjum með lúx- usvöru sem voru enn sjálfstæð, þ.e.a.s. ekki í eigu einnar af blokkunum þremur; LVHM, Gucci og Prada, sem hafa keypt upp öll smærri fyrirtæki í þessum geira sem varið var í. Þeir réðu nýjan yfirhönnuð, Geraldo Conceicao, sem er ættaður frá Macau en hann var áður í stjórnunarstöðu hjá Vuitton, Mi- uMiu og YSL,“ segir Linda en Geraldo þessi kenndi nem- endum LHÍ haustið 2011 í tvær vikur. Linda minnist Önnu Piaggi sem kvaddi þennan heim á árinu en hún var tískuritstjóri ítalska Vogue. „Hún var dásamlega flott og skemmtilegur karakter. Hún minnti okkur sífellt á að tíska á að vera skemmtileg og gefur okkur tækifæri til að vera hvað sem við viljum og að við eigum ekki að taka okkur of alvarlega, sama á hvaða aldri við erum.“ Hérlendis telur Linda upp viðburði eins og Reykjavík Fashion Festival sem haldið var í þriðja sinn, sýningar Kormáks og Skjaldar, ELLU, ÝRAR, Hildar Yeoman, Munda og Kronkron, sem henni þóttu bera af. Þá hef- ur hálfíslenska tískumerkið Ostvald Helgason gengið feiknavel á árinu og Linda nefnir Guðmund Jörundsson sem sýndi nýja línu undir vörumerkinu JÖR í ár. „H&M hafa ráðið annan nýútskrifaðan fatahönnuð frá Listaháskóla Íslands, Steinunni Björgu Hrólfsdóttur, en í fyrra réðu þeir Gígju Ísis Guðjónsdóttur sem útskrifaðist vorið 2011. Starfsmannastjóri H&M hefur boðað komu sína á út- skriftarsýningu Listaháskóla Íslands í vor með það í huga að ráða úrskriftarnema,“ segir Linda og telur það mjög spenn- andi. „ATMO var opnað í nóvember og er afar metnaðarfull stór- verslun með íslenska hönnun og þar má sjá á einum stað fjöl- breytni og sívaxandi gæði íslenskrar hönnunar. Að lokum má nefna að skýrsla um arðbærni skapandi greina kom út á árinu og sýndi mikilvægi þessara greina fyrir hagkerfi landsins. Ís- lendingar ættu að styðja við unga starfsgrein og gefa íslenska hönnun í jólagjöf í ár.“ LINA BJÖRG ÁRNADÓTTIR Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands. Í karlsmannstískunni erallt orðið grófara finnstmér, karlmennirnir farnir að láta sér vaxa fal- legt skegg, nota leður, feld og stórar flíkur svo eitthvað sé nefnt. Persónulega finnst mér ég alltaf sjá fleiri og fleiri stráka sem vita upp á hár hvað þeir eru að gera hvað varðar klæðnað,“ segir Helgi Ómarsson, ljósmyndari og tískubloggari. „Leðurermar skilja eftir sig stórt klór í 2012, það tröllreið öllu núna í ár. Mér finnst leðrið ótrúlega flott og keypti mér sjálfur tvo ágætis jakka með leðurermum. Derhúfur og svolítið stórar peysur hafa einnig verið áberandi finnst mér. Pönkið og „goth“ kom svolítið aftur.“ Helga finnst sem tískubloggin hafi náð að festa sig í sessi í ár og þá segir hann miðbæinn blóm- legan. „ATMO á Laugaveginum var frábær við- bót við miðbæinn með íslenska hönnuði í aðal- hlutverki.“ Ár leðurs og sjálfsöryggis Litið yfir tískuárið 2012 FJÓRIR ÁLITSGJAFAR SUNNUDAGSBLAÐS MORGUNBLAÐSINS KOMA ÚR ÝMSUM ÁTTUM, ERU FAGLÆRÐIR, ÁHUGAMENN EÐA HAFA LANGA REYNSLU AF TÍSKUSKRIFUM. ÞEIR SEGJA MIKLA GRÓSKU VERA Í TÍSKUHEIMINUM, HÉRLENDIS SEM ER- LENDIS OG SPENNANDI VERÐI AÐ FYLGJAST MEÐ ÞVÍ SEM FRAMUNDAN ER Á KOMANDI ÁRI. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Linda Björg minnist Önnu Piaggi sem lést á árinu. Ragnheiður Axel segir Sö- ruh Burton dæmi um valda- mikla konu í tískuheiminum Hönnun Guðmundar Jörundssonar. Fólk íhaldssamt Draumaflík ársins að mati Helga. Derhúfur komu sterkar inn á árinu. Helgi Ómarsson, ljós- myndari og tískubloggari, segist fylgjast með því hvernig karlmenn verða æ djarfari í klæðaburði. HELGI ÓMARSSON ELLA þykir eitt vandaðasta ís- lenska tísku- merkið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.