Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Side 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.12.2012, Side 45
Samræmingarstarfsemin hefur opnað sendiráð víða um heim, jafnvel þótt aragrúi sendiherra aðild- arríkjanna sé þar fyrir. Þar er ríkisfáni sambandsins á húni. Og að auki er gerð krafa um að við hlið þjóð- fána sendiráða aðildarþjóða hangi einnig ríkisfáni ESB, „starfsemi“ sem átti í upphafi aðeins að vera til að samræma reglur svo viðskipti innan tollmúra gætu gengi snurðulaust fyrir sig. Allt er markvisst gert til að minna á að viðkomandi ríki sé í raun ekki fullvalda lengur. ESB hefur gert eitt fegursta tónverk sem um getur að sínum þjóðsöng. Verið er að samræma yfirstjórn utanríkismálanna, þótt það hafi gengið hægar en að var stefnt. En þótt skrefin séu enn styttri í þeim efn- um, en að var stefnt, er áfram mjakast þó. Stofnaður hefur verið risavaxinn Seðlabanki Evr- ópu, sem með vaxtastefnu sinni (og raunar vaxta- stefnu Bandaríkjanna) lagði grunn að ósjálfbærri efnahagsbólu, sem sprakk haustið 2008, þessum tveimur risaseðlabönkum að óvörum. Sama má segja um þá 70.000 starfmenn (lauslega áætlaðar tölur), þar af eina 10.000 hagfræðinga, sem starfa í seðla- bönkum einstakra ESB-landa og sem litið er á sem ómerkileg útibú, sem sinni margvíslegum snúningum fyrir móðurbankann í Frankfurt. Sameiginlegur her er í undirbúningi. Vefst veruleikinn fyrir einhverjum? Forseti, þing, þjóðfáni, sendiráð, æðsti dómstóll, þjóðsöngur, utanríkismálastjóri, her, Seðlabanki, sameiginleg mynt, framkvæmdastjórn, sem semur meira en helming allra lagafrumvarpa sem lögð eru fyrir viðkomandi héraðsþing (þjóðþing landanna) til óbreyttrar afgreiðslu, svo fátt eitt sé nefnt. Í ráðu- neytum aðildarlandanna er búið að koma upp stórum hópi búrókrata sem hlotið hafa þjálfun í Brussel, sem eiga að gæta þess að þau mál sem hér- aðsþingin leyfa sér enn að fitla við stangist ekki á við 100 þúsund reglur ESB. Rannsóknarblaðamenn fara á stúfana Vikuritið Der Spiegel lagðist í rannsóknarblaða- mennsku um síðasta leiðtogafund Evrópusam- bandsins, sem fram fór fyrir luktum dyrum í anda lýðræðishefðar ESB og þar sem umræður eru tald- ar leynilegar af einhverjum ástæðum. Úttekt hins stóra hóps blaðamanna sem settir voru í rannsókn- ina er um margt eftirtektarverð, þótt hún sé auðvit- að yfirborðskennd eins og slíkar oftast eru og krydduð ómerkilegum smáviðburðum sem eiga að sýna að blaðamennirnir hafi grafið sitthvað upp. En hún er þó þúsund sinnum merkilegri en sumar skýrslur íslenskra „rannsóknarblaðamanna“ sem verðlaunaðir hafa verið fyrir, þótt eina framlag við- komandi hafi verið að nota skæri og lím á fyrirliggj- andi og margbirt efni. Þýsku rannsóknarblaðamennirnir velta sér vissu- lega um of upp úr smælkinu, en þrátt fyrir það má fá nokkuð glögga mynd af því hversu sundurlausir og ómarkvissir slíkir fundir eru. Hver leiðtogi talar fyrst í 4 mínútur eða svo og í það fara tveir klukku- tímar. Hver og einn kemur með texta að heiman og enginn þeirra bregst við neinu sem starfsbróðir sem á undan hefur talað hefur haft fram að færa. Jafnvel helstu pótintátar hinnar evrópsku hirðar fá ekki mikla athygli. Spiegel segir að þegar Barroso (for- seti framkvæmdarstjórnarinnar) „tekur til máls ein- hendi Merkel sér á kjaftatörn við Coelho (forsætis- ráðherra Portúgal), sem situr henni á vinstri hönd, og ber ekki á öðru en henni þyki það spjall mun áhugaverðara en það sem Barroso hefur fram að færa. Og hún sýni minni en engan áhuga þegar ræðumaðurinn sem kemur í kjölfar Barroso, tekur til máls. Það er forseti Kýpur (sjálfs formennsku- landsins), Dimitris Christofias. Hann er ekki óvanur þessum viðbrögðum hennar. Þegar forsetinn talar verður muldrið í salnum mun háværara. Kýpur er lítil fjarlæg eyja í Miðjarðarhafinu,“ bæta þýsku rannsóknarblaðamennirnir við, til skýringa á þeirri fyrirlitningu sem forseta „formennskuríkisins“ er augljóslega sýnd. Í framhaldinu nefna þeir Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar sl. 18 ár. „Hann fer stundum í taug- arnar á evrópskum starfsbræðrum sínum fyrir pré- dikanaáráttu sína og tilhneigingu til að láta bera mjög á hve honum leiðist mikið.“ „En,“ segja blaða- mennirnir, „án hans væri Lúxemborg auðvitað að- eins örríki í Evrópu, en á meðan hann er þar í for- ystu er næstum litið á það sem millistórt land.“ Gæti ekki verið gaman ef hin sauðtrygga frétta- stofa ríkisstjórnarinnar birti fljótlega eins og sjö átta viðtöl við þá Eirík og Baldur um hvað litlu ríkin njóti mikillar virðingar og ógurlegra áhrifa í ESB? Til dæmis gæti farið vel á að gera þetta fljótlega eftir þrettándann, þegar ekki er tilefni til að ræða lengur um hvað við Íslendingar séum öll rosalega trúuð á álfa, tröll og huldufólk. Morgunblaðið/RAX 30.12. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.