Morgunblaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2013 SVIÐSLJÓS Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Anna Pála Sverrisdóttir var á dögunum kjörin formaður Samtakanna ’78, sem síðastliðin 35 ár hafa barist ötullega fyrir réttindum samkyn- hneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks á Ís- landi og unnið marga stóra sigra. En þótt laga- legu jafnrétti sé náð eru verkefnin ærin að sögn Önnu Pálu og hættulegt að sofna á verðinum. Hún segir mikið starf framundan. „Það er ekki óalgengt að ég fái þessa spurn- ingu; hvort þetta séu ekki bara orðin einhver puntsamtök, en það er aldeilis ekki þannig,“ segir Anna Pála. Áherslurnar hafi þó tvímæla- laust breyst og baráttan í dag snúist meira um lífsgæði en lagaleg réttindi. „Það er grunnt á fordómunum og það er ekki nóg að þjóðin mæti einn dag á ári í Gleðigöngu og horfi á skemmtilega sýningu, þótt það sé í sjálfu sér frábært, heldur er verkefnið núna að fá fólk til að muna eftir réttindum hinsegin fólks alla hina 364 dagana. Ég segi að það sé grunnt á fordómunum af því að það hefur sýnt sig í könnunum. M.a. í könnun á gildum Evr- ópubúa 2009 þar sem fram kom að 25% Íslend- inga þætti samkynhneigð ekki réttlætanleg.“ Þörf á aukinni fræðslu Anna Pála segir að blessunarlega hafi margir komið út úr skápnum án þess að það hafi verið nokkurt tiltökumál en enn sé fjöldi fólks sem hafi ljótar sögur að segja af þeirri lífsreynslu og á meðan sé brýn þörf fyrir samtökin. Anna Pála hefur starfað fyrir trúnaðarráð Samtakanna ’78 síðastliðið ár en það voru m.a. fréttir af árás á transmann í miðbænum í fyrra sem kveiktu í henni löngun til að leggja meira af mörkum. „Ég held að það sé mjög hættulegt viðhorf að baráttunni sé lokið, því þá byrja fordómarnir að grassera aftur og það er ekki sjálfsagt að við höldum þeim réttindum og þeirri stöðu sem við höfum í íslensku samfélagi í dag. Við sjáum bara t.d. á heimsvísu hvað það er ofboðslega mikil andstaða við aukna vitundarvakningu um réttindi hinsegin fólks,“ segir Anna Pála. Hún segir mikilvægt að starf samtakanna í framtíðinni snúi að aukinni fræðslu, t.d. til kennara og annarra fagaðila sem vinni með börnum. Orð eins og „hommi“ séu enn notuð í meiðandi tilgangi, t.d. á skólalóðinni, og það sé ekki sjálfgefið að fagaðilar viti hvernig þeir eigi að tala um fordóma. Þá hefur hún mikinn áhuga á að ráðgjafaþjónusta samtakanna verði áber- andi í starfi þeirra. „Við vitum alveg að það er mjög mikil þörf á ráðgjöf til einstaklinga því ásókn í hana hefur verið að aukast. Við erum með þrjá ráðgjafa í hlutastarfi en svo er líka talsvert haft samband við skrifstofuna okkar út af hinu og þessu,“ seg- ir hún. „Ég vil eindregið hvetja þá sem vantar ein- hvern að tala við til að hafa samband við okkur, því til þess erum við. Við höfum örugglega öll upplifað einhver rosalega vandræðaleg augna- blik í kringum það að koma út úr skápnum og það er miklu betra að halda þessu ekki fyrir sig, heldur tala við annað fólk sem þekkir það að vera í þessari stöðu.“ Hommar fái að gefa blóð Anna Pála segir að meðal annarra verkefna sem bíði nýrrar stjórnar sé baráttan fyrir því að samkynhneigðir karlmenn fái að gefa blóð og að sjá til þess að samkynhneigð ungmenni verði ekki útundan í umræðunni um kynheil- brigðismál og kynfræðslu. Þá verði fjöl- skyldumál í brennidepli, m.a. ættleiðingar sam- kynhneigðra. „Það voru sett lög árið 2006 sérstaklega til þess að samkynhneigð pör hefðu jafnan mögu- leika á við gagnkynhneigð pör til að ættleiða. En það er ekki raunin í dag vegna þess að Ís- land er ekki með samninga við lönd þar sem ættleiðingar samkynhneigðra eru leyfðar,“ seg- ir hún. „Svo þessi réttindi eru í raun ekki til, nema innanlands, þar sem ættleiðingar eru fá- ar.“ Nýkjörin stjórn Samtakanna ’78 ákvað á sín- um fyrsta fundi að boða til samráðsfundar um áherslur samtakanna. „Við ætlum að efna til stórs fundar um stefnumótun, nokkurs konar þjóðfundar ef svo má segja, þar sem við ætlum að bjóða öllum félögum okkar og velunnurum að koma saman og tala um það hvar baráttan stendur og hvernig sé mikilvægast að samtökin beiti sér,“ segir Anna Pála. Hún segir að sam- tökin hafi skipt öllu máli fyrir mannréttinda- baráttu hinsegin fólks í gegnum árin en þeirra hlutverki sé langt í frá lokið. Hættulegt að sofna á verðinum  Þrátt fyrir stóra sigra bíða ærin verkefni Samtakanna ’78  Grunnt á fordómum og orð eins og „hommi“ enn notuð til að meiða  Nýkjörinn formaður vill efla fræðslu  Efna til „þjóðfundar“ Morgunblaðið/Kristinn Barátta Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Samtakanna ’78, telur að huga þurfi betur að rétt- arvernd transfólks. Þá mæti tvíkynhneigt fólk enn fordómum, jafnvel frá samkynhneigðum. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílahúsið Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 5,6 L/100 KM Í BLÖNDUÐUM AKSTRI. WWW.BMW.IS Þú ert í leit að ævintýrum, við erum í leit að tæknilegri fullkomnun. Allar aðstæður eru kjöraðstæður fyrir BMW XDrive fjórhjóladrifskerfið. Þótt veðrið sé óútreiknanlegt er akstursánægjan í X línunni eitthvað sem þú getur treyst á. Verð frá 7.890.000**         ** A u ka b ú n a ð u r á m yn d ,M sp o rt p a kk iX LÍNAN Í TAKT VIÐ TÍMANN. E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 9 4 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.