Morgunblaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 15.03.2013, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2013 Tónlistarhátðin Reykjavík Music Mess fer fram í þriðja sinn um hvítasunnuhelgina, 24.-26. maí, en á henni munu leika ólíkar hljóm- sveitir frá ýmsum löndum. Má þar nefna hina áströlsku DZ Deathrays, skoska söngvaskáldið Withered Hand og hina íslensku Bloodgroup, Oyama, Mammút og Muck. Meg- indagskráin mun fara fram á skemmtistaðnum Volta við Tryggvagötu en einnig verða haldnir tónleikar á Kex Hosteli og er ókeypis aðgangur þar. Fleiri hljómsveitir verða kynntar til leiks á næstu vikum á vef hátíðarinnar, reykjavikmusicmess.com. Ástralskt Popptvíeykið DZ Death- rays, Shane Parsons og Simon Ridley. DZ Deathrays á Rvk. Music Mess Hönnunarhátíðin Hönnunarmars var sett í gær og í dag verða margir forvitnilegir og skemmtilegir við- burðir í boði víða um höfuðborg- arsvæðið. Hér verða nokkrir tíndir til af fjölmörgum og eru áhuga- samir hvattir til að kynna sér dag- skrána á vef Hönnunarmars, www.honnunarmars.is. Í kvöld kl. 20 hefst í Netagerð- inni, Nýlendugötu 14, karnival þar sem boðið verður upp á sykur, liti og gleði. Bryndís Bolladóttir text- ílhönnuður sýnir þar innsetningu sína, Kúlu, og hönnunarfyrirtækin Volki og Stáss auk Þóru Breiðfjörð keramikers kynna verk sín og nýjar vörur. Benni Hemm Hemm og Prins Póló skemmta gestum með góðri tónlist og boðið verður upp á léttar veitingar. Sýningin HönnunarHlemmur var opnuð í gær á Hlemmi og eru þar sýnd arki- tektalíkön af ýmsum skipulags- hugmyndum frá síðustu áratugum sem margar hverjar hafa fallið í gleymskunnar dá. Hvernig hefði borgin litið út hefðu þær komið til framkvæmda? Svar við því fæst á Hlemmi. Töfraveröld Toppstöðvarinnar nefnist svo sýning í Toppstöðinni, orkuveri hugvits og verkþekkingar á Rafstöðvarvegi 4, sem verður opnuð kl. 20 í kvöld. Sýningarstað- urinn er ekki síður áhugaverður en það sem sýnt er, vélasalur Topp- stöðvarinnar, og setja tækin þar mikinn svip á sýninguna. Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt og Hildur Gunnarsdóttir arkitekt kynna m.a. hönnun sína, f.a.n.g.- útihúsgögn sem unnin eru úr ís- lenskum skógarviði, og Hnoss frumsýnir verkefnið Töfraveröld barnsins, leikföng ætluð börnum á aldrinum 1-5 ára. „Um er að ræða leikhús og veröld í kringum húsin þar sem börnin geta skapað sín eig- in ævintýri“ segir m.a. á vef Hönn- unarmars um Hnoss. Af öðru sem fyrir augu ber má nefna að UI Rac- ing team mun kynna rafknúinn kappakstursbíl. Karnival, töfraveröld og Hlemmur Toppstöðin Kynningarmynd fyrir sýningu sem verður opnuð þar. Bjóðum nú þennan einstaka stól endurborinn á frábæru verði frá kr. 79.900.- Fæst einnig með áritun hönnuðar í takmörkuðu tölusettu upplagi. Limited Edition Hönnuður: Valdimar Harðarson, arkitekt FAÍ Sóleyjarstóllinn hefur hlotið eftirtalin verðlaun: “Möbel des Jahres 1984 Award” “Design Center Price of Stuttgart” “The Rescoe Design Prize in USA” “Design Prices in Japan” “Deutscher Designer Club Medaille” “Menningarverðlaun DV 84” Penninn Húsgögn | Grensásvegi 11 – Gengið inn frá Skeifunni sími 540 2331 | www.penninn.is | husgogn@penninn.is árgerð 1983
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.