Morgunblaðið - 22.06.2013, Síða 31

Morgunblaðið - 22.06.2013, Síða 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2013 Víst er fargi létt af fólki nú þegar fyrsta vinstri ríkisstjórn lýð- veldisins sem haldið hefur út í heilt kjör- tímabil er farin frá. Þegar hún var kosin 2009 var það vegna lof- orða um betri tíð og blóm í haga – margs- konar „blóm“. Fátt blóma kom þó úr gróðurhúsi rík- isstjórnar alþýðunnar – og mest voru það frostrósir. En þetta vitum við öll og ekki skal fjölyrt hér um þann harmleik – aðeins nefnt að þeir sem lofa, ljúga síðan og svíkja, falla fyrr eða síðar. Það er lögmálið. Ný ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks og þingmenn allir eru boðnir velkomnir til starfa. Margt ungt fólk, með nýfenginn veld- issprota í höndum, stendur á kross- götum. Til annarrar handar liggur gamalkunnur slóði. Hann geymir sögu valdapots, hrossakaupa, leynd- arhyggju, sérhagsmunagæslu, ósanninda og óheilinda. Til hinnar lið- ast lítt kannaður stígur heilinda, rétt- lætis, sanngirni, mannvirðingar, hóg- værðar, umhyggju og auðmjúks þakklætis fyrir traust þjóðarinnar og það tækifæri sem í því felst til að láta gott af sér leiða. Það er komið að því að velja leiðina. Vonin Kosningaloforðin byggja upp vonina sem við síðan fáum fyrir at- kvæðaseðilinn. Vonina um betra líf fyrir okkur og afkomendur okkar. Vonin breytist í væntingu og síðan í gleði og ham- ingju – eða í reiði og vonleysi ef hún ekki rætist. Það er sárt – mjög sárt. Okkur finnst við hafa verið svikin. Það sem verra er: Börn okkar og barnabörn hafa verið svikin um þá framtíð sem við reyndum að tryggja þeim. Fyrr eða síðar „fjúka hausar“ – með skömm. Það er lögmálið. En eigum við ekki að hefja þessa vegferð okkar nú með Framsókn og sjálfstæðismönnum full vonar? Vonar um að Alþingi og ríkisstjórn feti síð- arnefnda stíginn, full metnaðar og einlægs vilja til að standa undan- bragðalaust við loforð sín og vinna okkur öllum allt það gagn er verða má. Að gleyma því aldrei að þjóna þjóðinni – ekki Mammon eða öðrum tálsýnum. Og við landsmenn góðir, eigum við ekki líka að setja okkur markmið? Thomas Jefferson, þriðji forseti Bandaríkjanna, sagði eitthvað á þessa leið: „Fólk sem heldur að það geti búið í þjóðfélagi réttlætis, lýðræðis og jöfn- uðar, án þess að hafa nokkur afskipti af þjóðmálum er að óska sér þess sem aldrei hefur verið og aldrei verður.“ Þetta segir okkur að ef við viljum búa í öruggu, heiðarlegu þjóðfélagi er ekki nóg að kjósa á nokkurra ára fresti. Við verðum að fylgjast með, benda á og gagnrýna ef kjörnir fulltrúar okkar standa sig ekki. Minnumst þess sem oft er sagt; völd spilla og algjör völd spilla algjörlega. Sanngjarnt aðhald Það er ekki flókið að kveða sér hljóðs í okkar litla þjóðfélagi. Blogg- síður eru öllum opnar og lands- þekktir – og óþekktir – einstaklingar eru þegar að gera þar mikið gagn. Flest blöð taka við greinum og út- varpsstöðvar, t.d. Saga, taka við inn- hringingum í þjóðmálaþætti þar sem hægt er að koma skoðunum sínum á framfæri. Fréttastofur taka líka við ábendingum, a.m.k. ef um stærri mál er að ræða. Þá má á Alþingi.is finna nöfn allra alþingismanna ásamt síma- númerum og netföngum. Ekkert er auðveldara en að senda þeim línu eða hringja. Allir kannast við „nöldurstundir“ með vinnufélögunum í kaffitímanum. Þetta eru oft sterkar umræður sem e.t.v. skiluðu árangri ef hópurinn sendi tölvupóst til þingmanna með ábendingu, fyrirspurn, gagnrýni eða hrósi. Ísland er heimili okkar allra – því skyldum við ekki segja skoðun okkar á heimilishaldinu? „Sjónvarp Alþingi“ Það var fróðlegt að sjá og heyra stefnuræðu hins nýja forsætisráð- herra og ræður þingmanna úr öllum flokkum í beinni útsendingu. Þing- mönnum til hróss lögðu margir áherslu á jákvætt samstarf allra þingmanna og flokka. Einn a.m.k. nefndi að allir þingmenn væru kosnir til að ráða málum til heilla fyrir al- þjóð og annar taldi það ekki vera skyldu sína að berjast gegn ríkis- stjórn eða þingmeirihluta þó sjálfur væri í „stjórnarandstöðu“. Hér kveð- ur við nýjan tón á hinu háa Alþingi. Guð láti gott á vita. Forsætisráðherra var yfirvegaður og mæltist vel sem oft áður. Þess saknaði ég þó að hann minntist ekki á þátttöku okkar í Schengen- samstarfinu sem þegar hefur reynst okkur dýrkeypt. Það er orðið hreint öryggismál fyrir okkur að ganga úr þessu samstarfi og taka sjálf upp fulla gæslu á landamærum Íslands – nú þegar. Það gera engir betur en ís- lenskir löggæslumenn og -konur. Þetta er einfalt að framkvæma – vilji er allt sem þarf. Fjármál almennings tóku drjúgan tíma hjá forsætisráðherra enda hefur of lengi, og of nærri, verið höggvið nærri heimilunum í landinu. Mál er að linni. Þótt fullur vilji ráðherrans verði ekki dreginn í efa mátti samt skilja að fljótlegra og einfaldara yrði að lækka veiðigjöld útgerða og gefa ferðaþjónustunni eftir virð- isaukaskatt. Það vil ég hinsvegar segja að óviturlegt er að draga úr tekjum ríkisins rétt á meðan ekki er ljóst hvernig koma á böndum á risa- vaxinn, uppsafnaðan vanda heim- ilanna. Ég vildi síður að hinir nýju trúnaðarmenn okkar á Alþingi fengju á sig stimpil sérhagsmunagæslu á kostnað mannúðar. Það yrði blettur á íslenskri þjóð. baldur@landsmenn.is www.landsmenn.is Von þjóðar Eftir Baldur Ágústsson » Ísland er heimili okkar allra – því skyldum við ekki segja skoðun okkar á heimilishaldinu? Baldur Ágústsson Höfundur er fyrrverandi forstjóri og forsetaframbjóðandi. I. Ekki er öruggt með ártal, en ég man, að þá átti ég Volkswagen Variant, sem ég hafði keypt í ársbyrjun 1965, þannig að þetta hefur líklegast verið árið 1969. Bergljót dóttir okkar hjóna þá um fjög- urra ára. Ég bjó þá í Tjarnargötu 36, vakn- aði snemma, um sex- leytið, og ætlaði að ná í Moggann, en heyrði þá brothljóð neðan úr kjallara og skömmu síðar mætti ég innbrots- þjóf, sem kom úr kjallaranum, er ég opnaði dyrnar þangað niður. Ég brá mér í vetrarfrakka yfir náttfötin og buxurnar, sem ég hafði brugðið mér í, niður í kjallara, sá slóðina eftir þjóf- inn yfir í Suðurgötu, ræsti bílinn og hélt af stað í eftirför ætlaða leið, sem þjófurinn hefði farið. Reiknaði eftir sporunum, að hann hefði hlaupið yfir kirkjugarðinn í vestur. Síðan ók ég Suðurgötu, upp Kirkjugarðsstíginn, suður Ljósvallagötu og vestur Ás- vallagötu. Skammt hafði ég ekið vest- ur Ásvallagötuna, er ég kom auga á tvo menn á tali móts við Ásvallagötu 7. Annar þeirra var blóðugur og taldi ég þar kominn innbrotsþjófinn, snar- ast út úr bílnum, ávarpa manninn: „Voruð þér ekki að brjótast inn hjá mér?“ Hann svaraði krepptum hnefa og miðaði á andlit mér, en ég vék mér undan og lenti höggið á öxl mér. Síðan bið ég þann, sem þjófurinn var að tala við, að hringja á lögregluna, en á meðan hvarf þjófurinn út í buskann. Ég leitaði um alla norðurhlið Ásvalla- götunnar, milli 10A og 12, en allt kom fyrir ekki, maðurinn gersam- lega horfinn. Um svipað leyti kom rúta með um 18 lögreglumenn á leið út á Seltjarnarnes í leikfimi, en ekki fundu þeir manninn frekar en ég. En þeir vissu nafn hans, sem Bergljót dóttir mín stytti síðan í „Steini steliþjófur“. Var því leit hætt, en maðurinn fannst eftir hálfan mán- uð, var einn af góðkunningjum lög- reglunnar. II. Steini steliþjófur skýrði svo frá, að vinur hans Georg að nafni hefði boðið sér í Tjarnargötu 36, þar væru til sýnis alls konar matvæli í kjallara, er sneri að Tjarnargötunni, engin gluggatjöld, bara boðið til veislu. Georg þessi var handtekinn um svip- að leyti og Steini. Nú líður að kveldi og biður Njörður Snæhólm rann- sóknarlögreglumaður mig að finna sig inni á stöð. Þar var þá kominn all- ur matarforðinn úr geymslunni í Tjarnargötu 36. „Þetta er svipað og konan mín liggur með í geymslu okk- ar.“ Stuttu eftir innbrotið fara þær mæðgur, Bergljót dóttir mín og Hall- dóra kona mín, í verslun Silla og Valda í Aðalstræti 10, þar sem nú er verslunin Kraum, og þegar þær mæðgur gengu inn sér Bergljót í hillu í miðri versluninni maís og segir hún þá: „Mamma, mamma, þarna eru ma- ísinn, sem að Steini steliþjófur stal frá okkur,“ en Sigurjón Þóroddsson verslunarstjóri þekkti okkur vel og vissi af þjófnaðinum, svo að hann tók því vel að Bergljót skyldi halda að stolni maísinn væri kominn í sölu í búðinni, þar sem hann hafði verið keyptur. III. Þéringarnar voru í dauðateygj- unum á þessum tíma og hurfu alveg er Kristján Eldjárn vinur minn varð forseti. Hann var maður fólksins og útrýmdi þéringum. Steini steliþjófur mun hafa verið með síðustu afbrota- mönnum, sem voru þéraðir. Þeir inn- brotsfélagarnir munu hafa ratað á rétta braut og ég var varaformaður Verndar, fangavinafélagsins, í fjórtán ár. Þar með lýkur sögu þéringa á Ís- landi og er það vel. Þegar ég þéraði þjófinn Eftir Leif Sveinsson » Þéringarnar voru í dauðateygjunum á þessum tíma og hurfu alveg er Kristján Eld- járn vinur minn varð forseti. Leifur Sveinsson Höfundur er lögfræðingur. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum. Er á Facebook Breytingaskeiðið eða fyrirtíðaspenna? www.annarosa.is Ég er 56 ára og í góðu formi en fór að finna fyrir hitakófum. Þá ákvað ég að taka tinktúruna Maríustakk og melissu því ég vildi ekki hormónalyf. Og viti menn, eftir 10 daga fann ég mikinn mun á mér til hins betra. Nú er ég búin að taka tinktúruna í tvo mánuði og hitakófin eru bara í minningunni. Ég get því heilshugar mælt með þessari vöru frá Önnu Rósu við einkennum breytingaskeiðsins. - Kristín Halla Hilmarsdóttir Tinktúran Maríustakkur og melissa hefur reynst afar vel við hitakófum á breytingaskeiðinu og einnig fyrirtíðaspennu, óreglulegum blæðingum og bólum tengdum blæðingum. Slöngutengjasett með úðabyssu Q308 695,- Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Fyrir garðinn WZ-9006 Greinaklippur 795,- Þrýstiúðabrúsi 1 líter WZ-4001 495,- 1/2” slanga 15 metra með stút og tengjum 1.690,- WZ-9019 Greinaklippur 1.595,- Slöngutengjasett með úðara WZ-9304 395,- Slöngusamtengi 125,- (mikið úrval tengja) WZ-9008 Hekk klippur 8” 1.795,- Garðkanna 5 L 698,- 208 3ja arma garðúðari 395,- Þrýstiúðabrúsi 5 lítrar WZ-6004 1.590,- Slönguhjól 1/2” f/45 metra 1.590,-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.