Morgunblaðið - 22.06.2013, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 22.06.2013, Qupperneq 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 2013 Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar sýningu í Flóru við Hafnarstræti 90 á Akureyri í kvöld kl. 22, en á sama tíma opnar hún samtals 10 sýningar í Listagilinu, þ.e. í öllum sýningarsölum Sjónlistamiðstöðv- arinnar, í sal Myndlistarfélagsins, Boxinu, Populus Tremula, Mjólk- urbúðinni, Ketilhúsi og Deiglunni. Um er að ræða lokin á verkefn- inu Réttardagur, sem er 50 sýn- inga röð, sem hófst á 45 ára af- mæli listakonunnar 23. júní 2008 og lýkur áður en stóri dagurinn gengur í garð á sunnudag. Allar sýningarnar 50 fjalla á einn eða annan hátt um íslensku sauð- kindina og þá menningu sem henni tengist. Sýningarnar hafa ratað í flesta landshluta og nokkrar farið út fyrir landsteinana til Danmerk- ur, Þýskalands, Bretlands og Hol- lands. Á sýningunum sem hefjast í kvöld verða alls sýnd nokkur hundruð verk eftir Aðalheiði unnin á síðustu fimm árum, auk aðkomu 15 annarra listamanna með eigin verk sem eru gestalistamenn á sýningunum. Á opnunarkvöldinu í Flóru verða lesin upp ljóð, sungið, fluttir gjörningar og tónlist. Þess má geta að á opnuninni í Flóru verður falið verk eftir Aðalheiði, sem einn sýningagesta fær til eigu, en afhendingin fer fram kl. 23.45. Aðalheiður leggur undir sig Listagilið Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sauðfé Aðalheiður S. Eysteinsdóttir á vinnustofu sinni í gamla Alþýðuhús- inu á Siglufirði umkringd sauðfé úr tré og vingjarnlegri konu. Orgelstykki nefnist tónleikaröð Listvinafélags Stykkishólmskirkju sem hefst mánudaginn 24. júní kl. 20 með tónleikum Friðriks Vignis Stefánssonar, organista í Nes- kirkju. Alls verða haldnir fimm tón- leikar í röðinni, sem lýkur 2. júlí. Fimmtudaginn 27. júní kl. 20 kem- ur Sveinn Arnar Stefánsson, org- anisti á Akranesi, fram. Laug- ardaginn 29. júní kl. 16 er röðin komin að þeim Erni Magnússyni, organista í Breiðholtskirkju, og Mörtu G. Halldórsdóttur sópran. Þriðjudaginn 2. júlí kl. 20 kemur Douglas Brotchie fram og enda- hnútinn rekur Lára Bryndís Egg- ertsdóttir organleikari, búsett í Danmörku. Tónleikarnir eru um einnar klst. langir. Allar frekari upplýsingar á stykkisholms- kirkja.is. Morgunblaðið/Ómar Tónleikar Stykkishólmskirkja Fimm Org- elstykki Elleftu tónlistarhátíðinni Við Djúpið lýkur um helgina með þrennum op- inberum tónleikum. Í Hömrum í dag kl. 17 frumflytur kammerhópurinn Decoda frá New York fjögur ný verk eftir ung íslensk tónskáld. Þau eru Úlfur Hansson, Finnur Karlsson og Árni Freyr Gunnarsson ásamt Önnu Þorvaldsdóttur. Verkin eru pöntuð af hátíðinni og samin fyrir tilefnið, en þetta er fimmta árið í röð sem há- tíðin pantar ný verk af ungum tón- skáldum. Tónleikarnir verða hljóð- ritaðir og þeim útvarpað á Rás 1 síðar. Að kvöldi sama dags kemur Sig- ríður Thorlacius fram ásamt hljóm- sveit Hússins á lokatónleikum tón- leikaraðarinnar Kenjar hússins. Bach hljómar í kirkjunni Á morgun lýkur hátíðinni með orgeltónleikum þar sem breski org- elleikarinn James McVinnie leikur verk eftir Jóhann Sebastian Bach í Ísafjarðarkirkju kl. 17. Tónleikarnir eru helgaðir minningu Erlings Blön- dals Bengtssonar sellóleikara sem lést fyrr í þessum mánuði. „Erling var mikill vinur tónlistarhátíð- arinnar Við Djúpið og var einn aðal- kennara hennar sumarið 2007 en í mars sama ár fagnaði hann 75 ára afmæli sínu á Ísafirði. Erling lék á opnunartónleikum hátíðarinnar sem og á sérstökum Jónsmessu- tónleikum sem sendir voru út beint á Rás 1. Leikur hans á þeim tónleikum er sá síðasti sem var tekinn upp en þar var einmitt um að ræða selló- svítu Bachs nr. 1. Tónskáldið var sellóleikaranum hugleikið og var hann sérfræðingur í túlkun verka Bachs,“ segir m.a. í fréttatilkynn- ingu frá skipuleggjendum. Meistara minnst Við Djúpið Sellóleikari Erling Blöndal Bengts- son horfir á fyrsta selló sitt. Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.