Morgunblaðið - 28.06.2013, Side 1

Morgunblaðið - 28.06.2013, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. J Ú N Í 2 0 1 3  Stofnað 1913  149. tölublað  101. árgangur  DRAUMURINN AÐ KEPPA FYRIR ÍSLAND Í RÍÓ SPILA, SYNGJA, DANSA OG KVEÐA RÍMUR BITIST UM EVEREST Í HOLLYWOOD GLJÚFRABÚI 10 BALTASAR KORMÁKUR 46MARK JOHNSON ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Rósa Braga Norðurturn Væntanlega hefjast fram- kvæmdir við turninn fljótlega á ný.  Stærstu kröfuhafar í þrotabú Norðurturns ehf. ætla að stofna með sér félag og leysa til sín bygg- inguna Norðurturn við vesturhlið Smáralindar og hefja framkvæmdir á nýjan leik, en byggingin hefur lengi staðið hálfkláruð. Stærstu kröfuhafarnir eru Ís- landsbanki, þrotabú Glitnis, TM og Lífeyrissjóður verkfræðinga. Norðurturn verður beintengdur Smáralind á fyrstu og annarri hæð. Baðhúsið mun flytja starfsemi sína á aðra hæð Norðurturns og verður opnað þar 1. desember nk., samkvæmt upplýsingum frá Lindu Pétursdóttur, eiganda Baðhússins. »14 Ætla að hefja fram- kvæmdir við Norð- urturn á nýjan leik Kennaranám » Árið 2010 hófu 189 nem- endur nám við kennaradeild HÍ. » Úr þessum árgangi útskrif- uðust 80 nemendur í vor. » Sama ár hófu 45 nemendur nám í leikskólakennarafræð- um, en 20 útskrifuðust í vor. Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Aðsókn í kennaranám í Háskóla Ís- lands hefur dregist mikið saman á undanförnum árum, en árið 2008 voru sett lög sem lengdu skyldunám til kennarastarfa úr þremur árum í fimm ár. Í ár hafa 160 nemendur sótt um nám í grunnskólakennarafræð- um í deildinni en það er 31,6% fækk- un frá árinu 2010 þegar 234 nem- endur sóttu um. Mikið brottfall er einnig í náminu. Sem dæmi má nefna að í leikskóla- kennarafræðum hófu 45 nemendur nám árið 2010, en í vor útskrifuðust 20 nemendur, eða 44%. Anna Kristín Sigurðardóttir, for- seti kennaradeildar, segir að fækkun nemenda og brottfall eigi sér marg- þættar skýringar, en laun, lengd námsins og starfsaðstæður skipti miklu máli. Hún telur þó að um tíma- bundið ástand sé að ræða og nefnir því til stuðnings að í nágrannalönd- unum sé kennaranám jafnlangt eða lengra en hér á Íslandi, án teljandi áhrifa á aðsókn til námsins. Anna Kristín segir að styðja verði vel við nemendur deildarinnar og tengja þá betur við starfið, en um 50% kennara hætta kennslu eftir fyrsta ár í starfi. „Við viljum skila áhugasömum og kraftmiklum kenn- urum út á vinnumarkaðinn,“ bætir Anna Kristín við. MBrottfall úr kennaranámi »4 Laun og lengd náms letja  Mikið brottfall í kennaradeild Háskóla Íslands  Forseti deildarinnar segir að um tímabundið ástand sé að ræða  Nemendur upplifa óvissu í náminu „Úlfarsárdalurinn mun verða eft- irsótt hverfi og þess sér strax stað í fasteignaverði þar,“ segir Sveinn Ey- land löggiltur fasteignasali hjá Land- marki. Hann hefur að undanförnu selt nokkrar eignir í þessu nýjasta hverfi borgarinnar, en mál þar kom- ust aftur á hreyfingu fyrir um hálfu ári þegar bankar fóru að losa um eignir sínar þar. Fermetraverð í fasteignum í Úlf- arsárdalnum er í dag í kringum 240 til 260 þúsund kr. sem er sambæri- legt því sem gerist í nýjustu hverf- unum í Kópavogi. „Þegar hverfið er fullbyggt og öll þjónusta til staðar gæti eignaverð hækkað meira,“ segir Sveinn. Á næstu árum áformar Reykjavík- urborg að verja um fjórum millj- örðum króna til uppbyggingar í Úlf- arsárdal, þar sem áformað er að skóli, íþróttastarf og menning verði í sömu byggingu. Upphaflegar áætlanir um dalinn gerðu ráð fyrir 10 þúsund manna byggð, en hafa nú verið færð- ar niður í 3.500 íbúa. Íbúar í dalnum eru nú um 450 dagsins. »18-19 Verður eftirsótt hverfi  Um 450 manns búa nú í Úlfarsárdal Listamenn úr fjölleikahópunum Cirkus Xanti og Sirkus Aikimoinen léku listir sínar á leikstofu Barnaspítala Hringsins í gær við mikla hrifningu barna á sjúkrahúsinu. Sirkusmennirnir notuðu meðal annars þennan hring sem eitt barnanna, Egill Björgvinsson (til hægri), sýndi mikinn áhuga. Fjölleikafólkið ætlar að taka þátt í sirkushátíðinni Volcano sem hefst við Norræna húsið á fimmtudaginn kemur. »49 Börnin glödd með fjölleikasýningu Morgunblaðið/Eggert Gleðin tók völdin þegar sirkushópar léku listir sínar á Barnaspítala Hringsins  Kosning til stjórnar Skipta fer fram á hluthafafundi næsta þriðju- dag. Sjö eru í framboði en aðeins fimm stjórnarsæti eru í boði. Sig- ríður Hrólfsdóttir verður kjörin stjórnarformaður Skipta, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins, en hún nýtur stuðnings Arion- banka, stærsta hluthafa Skipta. Heimildir blaðsins herma einnig að Heiðrún Jónsdóttir, varaformaður stjórnar Skipta og stjórnarformað- ur Gildis lífeyrissjóðs, hafi sóst eftir endurkjöri. Skipti, sem hafa þurft að glíma við miklar skuldir, luku fjárhagslegri endurskipulagningu í mánuðinum. »22 Sjö sækjast eftir sæti í stjórn Skipta Þórsnes II náðist af strandstað við Skoreyjar á Breiðafirði á flóðinu í gærkvöldi. Skipið virtist óskemmt og sigldi fyrir eigin vélarafli til Stykkishólms. Ekki hefur orðið vart við olíumengun frá skipinu og þurfti því ekki að nota bráðamengunar- varnarbúnað sem sendur var á stað- inn. Togarinn Helgi frá Grundarfirði kippti í Þórsnesið þegar það flaut upp. Það var komið af strandstað um klukkan 21.20, 50 mínútum fyrir há- flóð. Björgunaraðgerðir gengu eins vel og hugsast gat, samkvæmt upp- lýsingum stjórnstöðvar Landhelgis- gæslunnar. »2 Fyrir eigin vélarafli til hafnar Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Laust Þórsnesið laust af strandstað. Togarinn Helgi aðstoðaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.