Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 16
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Hugmyndin er að reyna að gæða bryggjuna smálífi,“ segir Barbara Guðnadóttir, menningarfulltrúi sveitarfélagsins Ölfuss, en um helgina verður efnt til bryggjudaga í Herjólfshúsinu í Þorlákshöfn. Er þetta í annað skipti sem hátíðin er haldin og er það félag áhugafólks um uppbyggingu ferðaþjónustu í bæn- um sem stendur fyrir henni. Bar- bara segir hátíðahöldin í fyrra hafa gengið vel fyrir sig. „Það gekk alveg ágætlega en auð- vitað tekur smátíma að byggja upp svona hátíðir,“ segir Barbara og bendir á að eftir lagningu Suður- strandarvegar hafi straumur ferða- manna, erlendra jafnt sem inn- lendra, til Þorlákshafnar aukist mjög. Búast má við miklu fjöri á bryggj- unni enda ýmislegt í boði fyrir þá sem sækja Bryggjudaga heim. Verð- ur m.a. hægt að fá lánaðar veiði- stangir til að dorga auk þess sem handverksfólk verður við vinnu. Boðið upp á grillaðan humar Þá verður einnig boðið upp á grill- aðan humar og sérstakt vöfflutilboð. „Við verðum með grillið úti en við erum svo heppin að fá góðan humar beint frá fyrirtækjum í Þorlákshöfn. Ætlum við því að bjóða upp á hum- arsmakk,“ segir Barbara. Þeir sem leið eiga um Vestfirði um helgina geta komið við á Hólmavík þar sem Hamingjudagar fara fram en hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2005. Sirkus Íslands stendur fyrir fjörugri sirkussýningu í félagsheim- ilinu í kvöld og hefst sýningin klukk- an 19. Að henni lokinni verður t.a.m. hægt að skella sér í sundlaugarpartí í íþróttamiðstöðinni. Hápunktur kvöldsins verður svo vafalaust brekkusöngur á Klifstúni, sem hefst klukkan hálfellefu, og má búast við því að sungið verði inn í nóttina. Esther Ösp Valdimarsdóttir, tóm- stundafulltrúi Strandabyggðar, er framkvæmdastjóri Hamingjudaga. „Búast má við að hamingjutónarnir verði svo hápunkturinn á laugardag. Þá eru hamingjuhlaupararnir að mæta í mark eftir að hafa hlaupið 53 kílómetra,“ segir Esther Ösp en eft- ir að yfir marklínuna er komið býður heimafólk upp á hnallþórur. „Þá er einnig keppt um flottustu kök- urnar.“ Annað kvöld fer svo fram stórdansleikur með hljómsveitinni Á móti sól í félagsheimilinu. Dagskrá Hamingjudaga er mjög fjölbreytt og má þar finna viðburði á borð við listsýningar, skrúðgöngur, jóga, kassabílarall og leikhópinn Lottu svo fátt eitt sé nefnt. „Svo verða líka furðuleikar Sauðfjárset- ursins á Sævangi. Það er mjög skemmtilegt líka.“ Morgunblaðið/Ómar Bæjarhátíð Það verður mikið um að vera um helgina og má búast við að margir leggi land undir fót og sæki ýmsa bæi heim. Á bæjarhátíðum eru hverfi oft merkt með ólíkum litum og fylkja íbúarnir liði í litríkum skrúðgöngum. Leikur og glens vítt og breitt um landið  Furðuleikar, skrúðgöngur, humarsmakk og listsýningar eru meðal þess sem í boði er um helgina  Bryggjudagar í Þorlákshöfn haldnir í annað sinn  Brekkusöngur á Klifstúni á Hamingjudögum 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 „Á laugardag er spáð skárra veðri. Helst gæti séð til sól- ar austantil á landinu en annars staðar verður skýjað en lítil úrkoma,“ segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, spurður út í helgarveðrið. Segist hann eiga von á því að veðrið hangi þurrt víðast hvar á morgun og gæti hiti náð 10 til 15 stigum yfir dag- inn. Í dag er hins vegar annað upp á teningnum því útlit er fyrir fremur svalt og vætusamt veður víðast hvar. „Breytingin til sunnudags er aðallega sú að spáð er meiri skúrum nokkuð víða,“ segir Haraldur og bendir á að veðrið um helgina verði best á morgun, laugardag. „Þótt það verði engin bongóblíða er þetta þó skárra en síðustu daga.“ Á laugardag spáir Veðurstofa Íslands suðvestlægri eða breytilegri átt, 3-8 m/s. Suðaustan- og austanlands verður bjart með köflum, annars skýjað og víða smá- skúrir. Hiti verður á bilinu 8 til 17 stig, hlýjast á Austur- landi. Á sunnudag er gert ráð fyrir fremur hægri breyti- legri átt eða hafgolu. Skýjað verður með köflum og skúrir, einkum síðdegis. Hiti verður á bilinu 10 til 16 stig. Á mánudag snýst í norðanátt með rigningu víða um land. Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson Náttúra Þessi fallegi regnbogi gladdi auga ljósmynd- ara sem átti leið um Suðurnesin í fyrradag. Engin bongóblíða sjáanleg í kortunum  Þorvaldsdalsskokkið hefst við Fornhaga í Hörgárdal og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógs- strönd. Djasshátíð Egilsstaða á Aust- urlandi. Öxi – þríþraut á Austurlandi. Kammertónleikar í Selinu á Stokkalæk. Humarhátíð á Höfn. Brákarhátíð í Borgarnesi. Snæfellsjökulshlaupið. Tónleikar í Stykkishólms- kirkju. Hekluganga. Alþjóðleg tónlistarhátíð í Ásbrú á Suðurnesjum. Föstudagsfiðrildi listhópa og Götuleikhúss Hins hússins. Gamla-Borg í Grímsnesi. Sönghátíð á Klaustri. Fjölbreyttir viðburðir HÉR OG ÞAR UM HELGINA Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is Spilliefni spilla Við fjarlægjum allan úrgang, bæði spilliefni og annan úrgang sem til fellur hjá bílaverkstæðum og öðrum fyrirtækjum sem vinna með spilliefni. Hringdu - við sækjum! 559 2200 Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) segir verga landsfram- leiðslu Íslands koma vel út í evrópsk- um og alþjóðlegum samanburði. Eft- irspurn sé í meiri takt við framboð og samsetning hennar sé mun betri, enda hafi innlend eftirspurn minnk- að en útflutningur stóraukist. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD um efnahagsmál á Íslandi sem kynnt var í gær. Stofnunin segir mikilvægt að gera tímasetta áætlun um niðurgreiðslu ríkisskulda til að auka gagnsæi og trúverðugleika. Fráfarandi ríkis- stjórn hafi lækkað skuldir ríkisins í 113% af vergri landsframleiðslu, sem sé þó hátt hlutfall í samanburði við önnur ríki. Þá er lagt til að ríkisút- gjöld verði endurskoðuð kerfisbund- ið til að auka hagkvæmni og skil- virkni, sérstaklega í mennta- og heilbrigðiskerfinu. OECD telur þá flötu lækkun lána sem boðuð hefur verið óráðlega, enda myndi slík lækkun að mestu nýtast þeim sem ekki ættu í erfið- leikum með afborganir. Árangurs- ríkara sé að einskorða lækkanir við þau heimili sem eigi erfitt með að standa í skilum, en skuldir heimila eru enn háar í alþjóðlegum saman- burði þrátt fyrir miklar afskriftir. OECD ræður frá því að gera af- borganir af húsnæðislánum frádrátt- arbærar frá skatti þar eð það skerði tekjuskattstofn ríkisins og hvetji til þess að fólk greiði síður niður lán sín og fjárfesti þess í stað, sem leiði til aukinnar áhættu fyrir heimilin í landinu. Þess í stað lagði David Ca- rey, hagfræðingur OECD, til fjár- framlög ríkisins til þeirra sem ættu erfitt með að standa undir húsnæð- iskostnaði án þess að hygla kaupend- um fram yfir leigjendur. hhjorvar@mbl.is Greiða þarf niður skuldir ríkissjóðs  Efnahagurinn á góðu róli þrátt fyrir erf- iðar aðstæður erlendis Morgunblaðið/Golli Kostnaður Vextir er einn stærsti einstaki útgjaldaliður ríkissjóðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.