Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Garðsláttur Láttu okkur sjá um sláttinn í sumar STUTTAR FRÉTTIR ● Allir meðlimir peningastefnunefndar Seðlabankans studdu tillögu seðla- bankastjóra um óbreytta stýrivexti bankans á síðasta vaxtaákvörð- unarfundi nefndarinnar sem var 12. júní sl., samkvæmt fundargerð peninga- stefnunefndar sem birt var á heimasíðu Seðlabankans síðdegis í fyrradag. Greinendur eru sammála um að þetta komi ekki á óvart, enda hafi lítið gerst frá vaxtaákvörðuninni í maí sl. sem kalli á breytta afstöðu nefndarmanna. Allir voru sammála ● Fram kom á vef Hagstofunnar í gærmorgun að vísitala neyslu- verðs hefði hækk- að um 0,53% á milli mánaða í júní frá því sem var í maímánuði og verðbólga farið úr 3,4% í maí í 3,3%. Greiningardeild Arionbanka spáir því að verðlag lækki í júlí um 0,6% en þá koma útsöluáhrif fram af fullum þunga, en gangi svo til baka. Spáir greining því að árs- verðbólga verði komin í ríflega 4% í september. Ársverðbólga nú mælist vera 3,3 af hundraði Krónan hefur veikst undanfarið. FRÉTTASKÝRING Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Sjö bjóða sig fram til stjórnar Skipta, sem er meðal annars móðurfélag Símans, Skjásins og Mílu, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Í boði eru fimm stjórnarsæti en boðað hef- ur verið til hluthafafundar næsta þriðjudag. Framboðsfrestur rann út kl. 10 í gærmorgun, fimmtudag. Heimildir blaðsins herma að Sig- ríður Hrólfsdóttir, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Árvakurs, verði næsti stjórnarformaður Skipta en hún nýt- ur stuðnings Arion banka, stærsta hluthafa Skipta. Þá sækjast Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Gildis lífeyrissjóðs og núverandi varafor- maður stjórnar Skipta, Helgi Magn- ússon, varaformaður stjórnar Lífeyr- issjóðs verzlunarmanna, og Dagný Halldórsdóttir öll eftir endurkjöri. Dagný hefur notið stuðnings Klakka, fyrrverandi eiganda Skipta, en nú þegar nýir eigendur hafa tekið við fé- laginu telja heimildarmenn blaðsins ólíklegt að Dagný verði endurkjörin. Núverandi stjórnarformaður Skipta, Benedikt Sveinsson, hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri og heldur ekki Magnús Scheving Thorsteins- son, forstjóri Klakka. Herma heimildir Morgunblaðsins að Stefán Árni Auðólfsson héraðs- dómslögmaður, Ingimundur Sigur- pálsson, forstjóri Íslandspósts, og Svala Guðmundsdóttir, lektor við við- skiptafræðideild Háskóla Íslands, bjóði sig fram til stjórnar Skipta en Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins styður við bakið á Stefáni, Arion banki styður Ingimund en óvíst er hver veitir Svölu stuðning. Endurskipulagningu lokið Skipti luku fjárhagslegri endur- skipulagningu fyrr í mánuðinum en endurskipulagningin hófst í lok jan- úarmánaðar á þessu ári. Í samtali við Morgunblaðið sagði Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta, endur- skipulagninguna hafa verið gerða á mettíma en fyrirtækið hafi þurft að gera ákveðnar breytingar í rekstrin- um áður hún hófst. Allir kröfuhafar vaxtaberandi skulda Skipta, sem falla undir fjárhagslega endurskipu- lagningu, samþykktu meðal annars að breyta kröfum sínum í hlutafé og endurfjármögnun veðtryggðra lána fyrirtækisins. Arion banki stærsti hluthafinn Samhliða endurskipulagningu Skipta sótti fyrirtækið um átta millj- arða króna með útgáfu skuldabréfa um miðjan mánuð. 50% umframeft- irspurn var eftir kaupum á bréfum í þessum skuldabréfaflokki Skipta en áskriftarloforð fyrir tæpa 12 millj- arða króna bárust. Í tilkynningu, sem Skipti sendu frá sér í tengslum við skuldabréfaútgáf- una, kom fram að fjárhagslegri end- urskipulagningu fyrirtækisins muni endanlega ljúka hinn 5. júlí næst- komandi en þá verða núverandi for- gangslán félagsins greidd upp að fullu. Eftir endurskipulagninguna er Arion banki stærsti hluthafi fyrir- tækisins, með 38% hlut, en Lífeyr- issjóður verzlunarmanna sá næst- stærsti, með 13% hlut. Þá eiga nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins hlut í Skiptum, þ.á m. Líf- eyrissjóður starfsmanna ríkisins, Gildi lífeyrissjóður og Almenni lífeyr- issjóðurinn. Í kjölfar endurskipu- lagningarinnar munu vaxtaberandi skuldir fyrirtækisins lækka um meira en helming, áður voru þær 62 milljarðar kr. en verða nú 27 millj- arðar kr. Lengi hefur verið stefnt að skrán- ingu Skipta á hlutabréfamarkað en búast má við því að skráning bréfa fé- lagsins í Kauphöllina geti ekki orðið fyrr en á næsta ári. Það á hins vegar eftir að skýrast betur þegar ný stjórn tekur við völdum og markar félaginu stefnu til framtíðar. Harðar kosningar til stjórnar Skipta í vændum  Sigríður Hrólfsdóttir verður kjörin stjórnarformaður Skipta í næstu viku Skuldum vafið Undanfarin ár hafa Skipti glímt við háar skuldir í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008. Fjárhags- legri endurskipulagningu félagsins lauk í mánuðinum en skuldir félagsins lækkuðu úr 62 ma.kr. í 27 ma.kr. Harður slagur » Sjö einstaklingar eru í fram- boði til setu í stjórn Skipta, móðurfélags m.a. Símans og Skjásins, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. » Fimm sæti eru í boði en hluthafafundur fer fram næsta þriðjudag. » Herma heimildir blaðsins að Sigríður Hrólfsdóttir, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Árvak- urs, verði kjörin stjórnar- formaður. » Þá sækjast Heiðrún Jóns- dóttir, Helgi Magnússon og Dagný Halldórsdóttir öll eftir endurkjöri. » Benedikt Sveinsson, núver- andi stjórnarformaður Skipta, sækist ekki eftir endukjöri. Sigríður Hrólfsdóttir Heiðrún Jónsdóttir Ingvar Kamp- rad, stofnandi IKEA, ætlar að flytja aftur heim til Svíþjóðar en þar hefur hann ekki búið í fjöru- tíu ár. Hann býr nú í Sviss þar sem hann er rík- astur allra, en hann er í fimmta sæti yfir ríkustu menn í heimi. Eignir hans eru metnar á rúma fimm þúsund milljarða króna. Talsmaður Kamprads segir flutningana ráðgerða í lok ársins og muni þá Kamprad, sem er 87 ára, borga skatta af tekjum sínum í heimalandinu. Talið er líklegt að Kamprad muni flytja til Älmhult í Svíþjóð. Kamprad snýr heim Ingvar Kamprad  Stofnandi IKEA búið í Sviss í 40 ár                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./+ +00.12 ++0.+ ,+.//, ,3.-,0 +0.-,1 +-3./4 +.,/0, +0/.1+ +13.41 +,-.0 +02.+/ ++0.5/ ,+.1+/ ,3.-00 +0.-0 +-3.2- +.,1+2 +01.+1 +1+.,+ ,+4.5/-4 +,5.32 +02.1+ ++0.0 ,+.140 ,3.550 +0.5-5 +-+.,2 +.,1/1 +01.4+ +1+.11 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hagvöxtur mældist 1,8% í Bandaríkj- unum á fyrsta ársfjórðungi. Bráða- birgðatölur gerðu ráð fyrir 2,4% hag- vexti á tímabilinu, samkvæmt umfjöllun The Wall Street Journal. Vðskiptaráðu- neyti Bandaríkjanna gaf út nýjar hag- tölur í fyrradag. Helstu skýringar eru samdráttur í einkaneyslu og útflutningi og minni fjár- festing í atvinnulífinu. Hagvöxtur undir spám

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.