Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.06.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2013 LEXUSNOTAÐIR BÍLAR Kauptúni 6 RX 450 hybrid 3,5 Bensín/Rafmagn Sjálfskiptur. Skráður 05/12 Ekinn 9.000 km. Verð 13.290.000 kr. LUXURY lexus@lexus.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Skaðabótamáli slitastjórnar gamla Landsbankans á hendur fyrrverandi stjórnendum og bankaráðs- mönnum og breskum trygg- ingafélögum var vísað frá dómi í gær með úrskurði Héraðs- dóms Reykjavíkur. Slita- stjórnin krafðist tuga milljarða í skaðabætur vegna ábyrgðar umræddra einstaklinga og tryggingafélaga á ráðstöfun- um sem gerðar voru haustið 2008 þegar bankinn var að komast í þrot. Upplýsinga- fulltrúi skilanefndar bankans telur yfirgnæfandi líkur á að málinu verði vísað til Hæstaréttar. Skaðabótakröfurnar grundvallast á ábyrgð mannanna á ráðstöfunum sem gerðar voru 6. október 2008 þegar fyrir lá að bankinn var ógjald- fær en það var síðasti dagurinn áður en Fjármála- eftirlitið tók hann yfir. Um er að ræða kaup á kröf- um af Landsvaka hf. fyrir tæpa 20 milljarða kr., útborgun til Straums fjárfestingarbanka fyrir rúma 7 milljarða og uppgjör á viðskiptum við MP banka að fjárhæð 7,5 milljarða kr. Landsvaki var dótturfélag bankans. Fram kemur í stefnunni að þrátt fyrir lokun viðskipta í sjóðum Landsvaka hafi þennan dag átt sér stað umtalsverð viðskipti milli bankans og verðbréfasjóða í umsjón Lands- vaka. Bankinn hafi keypt skuldabréfakröfur á yfirverði og orðið fyrir tjóni af þeim sökum. Fjárhæð kröfu í reynd getgátur Dómarinn telur að kröfugerð slitastjórnarinnar sé óljós um ákveðin atriði. Nefnir hann að sú fjár- hæð skaðabóta sem stefnandi kveðst krefja bankastjórana og bankaráðsmennina um, rúmir 28 milljarðar króna, komi hvorki fram berum orð- um í kröfugerð né annars staðar í stefnu. Byggist málatilbúnaðurinn í reynd á því að skilja beri kröfu- gerðina andstætt því sem leiðir af orðanna hljóðan. Til stuðnings tjóni sínu vísar bankinn til endur- gjalds sem hann hefur þegar fengið við sölu eigna, til væntanlegra endurheimta krafna við gjaldþrota- skipti skuldara eða verðmætis krafna við yfirfærslu þeirra til nýja Landsbankans samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins. Í niðurstöðu dómara segir að hvergi sé að finna gögn um ætlað tjón sem gæti orð- ið grundvöllur undir mat dómsins á tjóni bankans. Þá hafi stefnandi höfðað mál til riftunar á þeim kröfum sem keyptar voru af Landsvaka. Tjónið sé því ekki að fullu komið fram. Telur dómarinn að mjög skorti á að stefnandi hafi gert reka að því að fá tjón sitt staðreynt með þeim úrræðum sem honum eru tæk að lögum. „Er tjón stefnanda því vanreifað og grundvöllur fjár- hæðar kröfugerðar hans í reynd getgátur. Lúta þessir annmarkar að málinu í heild og eru þeir svo verulegir að ekki verður úr þeim bætt á síðari stig- um. Er því skylt að vísa málinu í heild frá dómi.“ Tuga milljarða skaðabótakröf- um skilanefndar var vísað frá  Dómari telur fjárhæðir krafna á hendur Landsbankamönnum getgátur Skaði Háar fjár- hæðir voru í húfi. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fiskiskipið Þórsnes II náðist af strandstað við Skoreyjar á flóðinu í gærkvöldi. Skipinu var siglt til Stykk- ishólms þar sem skemmdir verða kannaðar. Þórsnes II er á beitukóngsveiðum, gert út frá Grundarfirði. Áhöfnin var að leggja krabbagildrur í gærmorgun við Skoreyjar á Breiðafirði, skammt frá Stykkishólmi, þegar skipið strandaði á skeri. Níu eru í áhöfn og var þeim bjargað fljótt í land. Við björgunina voru nýttir hraðbátar sem notaðir eru til skemmtisiglinga um Breiðafjörð. Skipið sat á skerinu og fjaraði næstum alveg undan því. Umhverf- isstofnun sendi bráðameng- unarbúnað á staðinn og var farið með flotgirðingu út að skipinu en hún var ekki notuð þar sem ekki varð vart við neina olíumengun. Lögreglan tók skýrslu af skipstjór- anum og starfsmenn rannsókn- arnefndar samgönguslysa skoðuðu aðstæður og hófu gagnaöflun vegna rannsóknar sinnar á óhappinu. Sker- in sem skipið strandaði á eru merkt á sjókort. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er talið að mistök hafi valdið óhappinu. Helgi hjálpaði til Flóðið í gærkvöldi var 30-40 senti- metrum hærra en morgunflóðið. Þórsnesið flaut upp nærri klukku- tíma fyrir háflóðið. Togarinn Helgi frá Grundarfirði togaði létt í skipið og sneri því. Björgunarbátar Slysa- varnafélagsins Landsbjargar voru einnig á staðnum. Landhelgisgæslan stjórnaði aðgerðum.Vélar Þórsness- ins voru ræstar og það sigldi fyrir eigin vélarafli til Stykkishólms. Skip- ið virtist óskemmt en það verður skoðað betur. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Á þurru landi Mikill munur er á flóði og fjöru í Breiðafirði og koma skerin við Skoreyjar vel uppúr á fjöru. Myndin var tekin úr þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flaug yfir strandstað í gær. Þórsnes II komst lítt skemmt til hafnar  Níu manna áhöfn bjargað eftir strand við Skoreyjar Fékk ekki kaffið » Pétur Guðmundsson vél- stjóri á Þórsnesi sagði verst að nýtt kaffi hefði verið á könn- unni þegar skipið strandaði og kokkurinn ekki náð að ljúka við að sjóða Bayonne-skinkuna. „Ég er ennþá svangur,“ sagði Pétur við mbl.is og taldi að það yrði sitt fyrsta verk að fá sér steikarbita þegar vélin yrði gangsett. Í samantekt á skýrslu OECD um efnahagsmál á Íslandi er mælst til þess að dregið verði úr þeirri hækk- un sem var fyrirhuguð á sérstöku auðlindagjaldi á sjávarútveginn, sér- staklega botnfiskveiðar. Gjaldið verði þannig að atvinnugreinin standi undir því og er það í sam- ræmi við fyrirætlanir ríkisstjórnar. Frumvarp sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra um breytingar á lögum um veiðigjöld var afgreitt úr atvinnuveganefnd í gær og lagði meirihluti nefndarinnar til að frum- varpið yrði samþykkt óbreytt. Í áliti meirihlutans segir „Að mati meiri- hlutans er óumdeilt að nokkur ákvæði laga um veiðigjöld eru hald- in verulegum ágöllum. Þessir ágall- ar virðast gera það að verkum að ómögulegt er að óbreyttum lögum að leggja veiðigjald á með lögmæt- um hætti. Án vafa er rétt að bregð- ast við slíkum aðstæðum.“ Málið verður tekið til annarrar um- ræðu á Alþingi í dag. Bíða forsetans Frumvarp um veiðigjöld hefur vakið hörð við- brögð undan- farna daga. Pírat- ar hóta málþófi á Alþingi en Jón Þór Ólafsson, þing- maður Pírata, sendi í gær Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, bréf sem hann birti á heimasíðu sinni þar sem hann segir Pírata munu beita sér fyrir málþófi þar til forsetinn snýr heim frá útlöndum. „Nú er aftur gjá milli þings og þjóð- ar,“ segir Jón og vísar til þess þegar Ólafur Ragnar hafnaði staðfestingu fjölmiðlalaga árið 2004. mariamargret@mbl.is Frumvarp um veiðigjöld úr nefnd  OECD mælir með lægri veiðigjöldum Veiðigjöld eru á dagskrá þingsins. Samningur innanríkisráðuneytis og velferðarráðuneytis við þyrlulækna hefur verið framlengdur að því er fram kemur í tilkynningu frá Land- helgisgæslunni. Þar segir að næstu mánuðir verði nýttir í að skapa fjár- hagslegan grundvöll fyrir sjúkraflutn- inga með loftförum Landhelgisgæsl- unnar. Óvissa hefur ríkt undanfarið um stöðu þyrlulækna en uppsögn samn- ingsins átti að taka gildi þann 1. ágúst. Viðræður á milli ráðuneytanna hafa staðið yfir í nokkurn tíma um fjár- mögnun og framhald samstarfsins. Ljósmynd/Jón Sigurðsson Landhelgisgæslan Þjónusta lækna um borð í þyrlum er tryggð enn um sinn. Samningur þyrlulækna framlengdur Slitastjórnin gerði kröfu um skaðabætur á hendur Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristj- ánssyni bankastjórum og fjór- um bankaráðsmönnum, þeim Andra Sveinssyni, Kjartani Gunnarssyni, Svöfu Grönfeldt og Þorgeiri Baldurssyni. Fimmti bankaráðsmaðurinn, Björgólfur Guðmundsson, var ekki sóttur til greiðslu bóta þar sem hann var talinn ógjaldfær. Einnig var forstöðumanni fjárstýringar, Jóni Þorsteini Oddleifssyni, stefnt. Þá var 25 breskum vá- tryggingafélögum stefnt vegna ábyrgðartryggingar fyrir stjórn- endur. Andri, Kjartan og Þorgeir kröfðust frávísunar málsins og málskostnaðar. Héraðsdómari féllst á það og taldi svo mikla ágalla á kröfugerð að málinu í heild var vísað frá dómi. Gegn sjö stjórnendum SKILANEFND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.